Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 6
6 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
Inngangur
Fyrsta heila starfsár Starfsendurhæfingarsjóðs
(VIRK) er að baki og fyrsta ársrit sjóðsins lítur
hér dagsins ljós. Með útgáfu ársrits vill sjóðurinn
miðla upplýsingum um starfsemina auk þess
að koma á framfæri bæði innlendri og erlendri
þekkingu og reynslu á sviði starfsendurhæfingar.
Þessum upplýsingum er komið á framfæri í
formi umfjöllunar, viðtala og greinarskrifa. Eitt af
hlutverkum Starfsendurhæfingarsjóðs er að auka
og miðla þekkingu á sviði starfsendurhæfingar
hér á landi. Það er von okkar sem að ársritinu
stöndum að það geti til framtíðar orðið mikilvægur
vettvangur til miðlunar aukinnar þekkingar og
reynslu á þessu sviði.
Að Starfsendurhæfingarsjóði standa öll helstu
samtök launamanna og atvinnurekenda hérlendis
og á milli allra þessara aðila hefur myndast góð
samstaða um uppbyggingu þjónustu á sviði
starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Um sjóðinn
var samið í kjarasamningum á vinnumarkaði
á árinu 2008 og mun hann til framtíðar verða
fjármagnaður af atvinnulífi, lífeyrissjóðum
og ríki. Sjóðurinn hóf starfsemi í ágúst 2008
og ráðgjafar sem starfa hjá sjúkrasjóðum
stéttarfélaga í samræmi við starfsaðferðir
Starfsendurhæfingarsjóðs, komu flestir til starfa
á haustmánuðum 2009.
Hér á eftir fer samantekt um starfsemi
Starfsendurhæfingarsjóðs undanfarið ár. Einnig
er gerð grein fyrir hlutverki, stefnu, verkefnum og
helstu áhersluþáttum.
Starfsendurhæfingarsjóður hefur ákveðið að
nota orðið VIRK yfir bæði starfsemi sína, nafn
á heimasíðu og í ýmsu samhengi í útgefnu efni
sjóðsins. Heimasíða sjóðsins er þannig www.
virk.is og kynningarbæklingur sjóðsins heitir
„Verum virk“. Orðin Starfsendurhæfingarsjóður
og VIRK eru því notuð jöfnum höndum í umfjöllun
um sjóðinn hér á eftir.
Hlutverk, stefna og verkefni
Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs samkvæmt
skipulagsskrá er að draga markvisst úr líkum
á að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna
varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu
starfsendurhæfingar og öðrum úrræðum.
Stefna
Starfsendurhæfingarsjóðs er að;
s• kipuleggja ráðgjöf og þjónustu fyrir starfs-
menn sem veikjast til lengri tíma eða slasast
þannig að vinnugeta skerðist.
st• uðla að snemmbæru inngripi með starfs-
endurhæfingarúrræðum í samstarfi við
sjúkrasjóði og atvinnurekendur.
fj• ármagna ráðgjöf og fjölbreytt endurhæf-
ingarúrræði sem miða að aukinni virkni
starfsmanna sem búa við skerta vinnugetu,
til viðbótar því sem þegar er veitt af hinni
almennu heilbrigðisþjónustu í landinu.
Fyrstu skrefin
í uppbyggingu og þróun
Starfsendurhæfingarsjóðs
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK
„Það þarf að
vera rými fyrir
einstaklinga með
mismunandi færni
og hæfni í okkar
samfélagi.
Með auknu rými
aukum við
möguleika allra
til virkrar þátttöku
í samfélaginu.“