Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 7
7www.virk.is
STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR
s• tuðla að fjölbreytni og auknu fram-
boði úrræða í starfsendurhæfingu.
b• yggja upp og stuðla að samstarfi
allra þeirra aðila sem koma að
starfsendurhæfingu viðkomandi
einstaklinga.
h• afa áhrif á viðhorf og athafnir í
samfélaginu til að stuðla að aukinni
virkni starfsmanna.
s• tyðja við rannsóknir og þróunarvinnu
á sviði starfsendurhæfingar.
Meginverkefni
Starfsendurhæfingarsjóðs eru að;
s• kipuleggja störf ráðgjafa sem
starfa á vegum sjúkrasjóða stéttar-
félaganna og aðstoða þá sem þurfa
á starfsendurhæfingu að halda.
Starfsendurhæfingarsjóður greiðir
kostnað af störfum ráðgjafanna,
hefur umsjón og eftirlit með starfi
þeirra og veitir þeim faglegan
stuðning. Sérstök áhersla er lögð
á snemmbært inngrip og fjölþætt
starfsendurhæfingarúrræði.
g• reiða kostnað af ráðgjöf ýmissa
fagaðila s.s. lækna, sálfræðinga,
iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, félags-
ráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa
o.s.frv. vegna mótunar sérstak-
rar einstaklingsbundinnar
endurhæfingaráætlunar.
gr• eiða kostnað við úrræði og
endurhæfingu til að auka
vinnugetuna, til viðbótar því
sem þegar er veitt af almennri
heilbrigðisþjónustu í landinu.
Áhersluþættir
Mótaðir hafa verið megináhersluþættir
sem hafðir eru að leiðarljósi í starfsemi
sjóðsins. Þeir eru eftirfarandi:
J• ákvæð nálgun. Við viljum hafa
jákvæð áhrif á einstaklinga,
atvinnurekendur, stéttarfélög,
opinbera aðila og fagaðila til að ná
sem bestum árangri.
G• ott samstarf. Við leggjum áherslu á
gott samstarf við alla þá aðila sem
koma með einum eða öðrum hætti
að starfsendurhæfingu einstaklinga.
Við viljum einnig leggja okkar
af mörkum til að stuðla að góðu
samstarfi mismunandi aðila, með
hagsmuni þeirra einstaklinga að
leiðarljósi sem þurfa á þjónustu og
aðstoð að halda.
A• ð nýta úrræði og byggja upp úrræði
í nærumhverfi einstaklingsins. Það
er mikilvægt að fólk um allt land
hafi aðgang að góðri þjónustu í
sinni heimabyggð og þjónustan taki
mið af aðstæðum einstaklinga á
hverjum stað.
A• ð mæta fólki þar sem það er statt
hverju sinni. Til að geta haft jákvæð
áhrif á einstaklinga þarf að vera til
staðar skilningur á aðstæðum þeirra
og líðan. Með góðri samvinnu náum
við árangri.
V• irkni einstaklinga. Við viljum horfa
á styrkleika hvers einstaklings en
ekki veikleika og leggja áhersla á
eiginleika og hæfileika viðkomandi.
Út frá þeirri stöðu er metið hvernig
unnt er að auka starfshæfni
einstaklingsins eða viðhalda henni
– allt eftir aðstæðum.
A• ð skapa rými fyrir alla. Það þarf
að vera rými fyrir einstaklinga
með mismunandi færni og hæfni í
okkar samfélagi. Með auknu rými
aukum við möguleika allra til virkrar
þátttöku í samfélaginu.
A• ð efla þekkingu og reynslu. Við
viljum efla þekkingu og reynslu á
sviði starfsendurhæfingar á Íslandi.
Mikilvægi snemmbærs
inngrips
Snemmbært inngrip er lykilhugtak í
starfsendurhæfingu og forsenda góðs
árangurs – þetta sýna bæði fjöldi erlendra
rannsókna og reynsla fagmanna. Það
þarf að bjóða upp á þjónustu um leið og
fyrirséð er að einstaklingur verði frá vinnu
í meira en fjórar vikur vegna heilsubrests.
Mikilvægt er að ná til þessara ein-
staklinga snemma og hvetja þá til að
nýta sér þjónustu sem eykur virkni þeirra
og þátttöku. Hér á landi er snemmbært
inngrip af þessu tagi ekki mögulegt
nema í samstarfi við atvinnurekendur
og stéttarfélög því réttur til launa og bóta
í veikindum liggur að mestu leyti hjá
atvinnurekendum og hjá sjúkrasjóðum
stéttarfélaga. Framfærsluskylda hins
opinbera vegna veikra einstaklinga hefst
oft ekki fyrr en mjög seint í ferlinu – oft
ekki fyrr en einu og hálfu ári eftir að
viðkomandi veiktist. Þessu er öðruvísi
farið á hinum Norðurlöndunum en þar eru
launagreiðslur í veikindum að verulegu
leyti fjármagnaðar af opinberum aðilum
og einstaklingar þurfa að eiga samskipti
við opinberar stofnanir mun fyrr en hér á
landi vegna bótagreiðslna til framfærslu.
Þetta er ein ástæða þess að aðilar
vinnumarkaðarins ákváðu að stofna
Starfsendurhæfingarsjóð og byggja
upp ráðgjafaþjónustu í samvinnu við
sjúkrasjóði stéttarfélaga sem greiða
bætur vegna veikinda eða slysa.
Með því að staðsetja ráðgjafana hjá
stéttarfélögum um allt land næst að veita
þjónustuna á landsvísu og sem næst
þeim einstaklingum sem þurfa á henni
að halda. Tengsl og nálægð stéttarfélaga
við atvinnulíf og atvinnurekendur skiptir
einnig miklu máli því stafsendurhæfing
þarf að eiga sér stað í mun meiri
tengslum við atvinnulíf en tíðkast hefur
hér á landi.
Starfsfólk
Starfsendurhæfingarsjóðs
Hjá Starfsendurhæfingarsjóði starfa níu
manns í ríflega sjö stöðugildum. Fremst í
þessu riti er að finna lista yfir starfsmenn-
ina. Verkefni starfsmanna og sérfræðinga
á skrifstofu Starfsendurhæfingarsjóðs
felast aðallega í stjórnun, uppbyggingu
og þróun starfseminnar og faglegum
stuðningi við ráðgjafa á vegum sjúkrasjóða
stéttarfélaganna. Aðal starfsemin á vegum
sjóðsins fer hins vegar fram hjá ráðgjöfum
sjúkrasjóðanna og hjá utanaðakomandi
starfsendurhæfingaraðilum sem kostaðir
eru af Starfsendurhæfingarsjóði og starfa
með þeim einstaklingum sem þurfa á
ráðgjöf og starfsendurhæfingu að halda.
Hlutverk sjóðsins, verkefni og áherslur í
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK