Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Blaðsíða 8
8 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
starfseminni hafa ráðið uppbyggingu og
ákvörðunum um ráðningar starfsmanna.
Hjá sjóðnum þarf að starfa mjög öflugt
þverfaglegt teymi sem getur bæði „haldið
utan um“ ráðgjafa um allt land og veitt
þeim faglegan stuðning. Samhliða þessu
þarf að byggja upp starfsemi sjóðsins
til framtíðar og tryggja að hann hafi for-
göngu um þekkingarþróun og hagnýtingu
reynslu í starfsendurhæfingu hér á landi.
Gildi starfsmanna
Starfsmenn VIRK hafa mótað sér gildi
sem eru leiðarljós þeirra við dagleg
störf. Sameiginleg gildi starfsmanna
og menning á vinnustað móta breytni,
ákvörðunartöku, samskipti og vinnu-
brögð. Þau tryggja samræmi í daglegum
störfum og stýra viðhorfum og nálgun
starfsmanna að verkefnum. Gildin
styðja jafnframt við hlutverk, stefnu og
framtíðarsýn VIRK.
Gildi starfsmanna VIRK eru eftirfarandi:
Fagmennska
V• ið búum yfir þekkingu, færni og
reynslu.
Við erum áreiðanleg.•
Við leggjum áherslu á trúnað, öryggi •
og traust.
Virðing
Við berum virðingu fyrir sjálfum •
okkur og samferðafólki okkar.
Við leggjum áherslu á samvinnu og •
samstarf í öllum verkefnum.
Við erum sveigjanleg.•
Við leggjum áherslu á umburðarlyndi •
og auðmýkt.
Metnaður
Við höfum kraft og hugrekki til að •
fara nýjar leiðir.
Við sýnum frumkvæði og framsækni.•
Við lærum af reynslunni og viljum •
stöðugt gera betur.
Ýmsar stefnur og áætlanir
Sjóðurinn hefur mótað sér stefnur,
starfsreglur og áætlanir í ýmsum málum.
Hér er talið upp það helsta en nánari
upplýsingar um þessar stefnur og áætlanir
er að finna á heimasíðu sjóðsins
(www.virk.is):
S• tarfsáætlun fyrir hvert ár. Gerð
er sundurliðuð starfsáætlun
fyrir hvert ár og er hún uppfærð
ársfjórðungslega á fundum
starfsmanna.
I• nnkaupastefna hefur verið mótuð og
samþykkt af stjórn.
U• pplýsingaöryggisstefna hefur verið
mótuð og samþykkt af stjórn. Einnig
hefur verið útbúin handbók fyrir
starfsmenn á grundvelli þessarar
stefnu.
Fr• amtíðarsýn og stefna um
starfsendurhæfingu á vinnustöðum
hefur verið mótuð og samþykkt af
stjórn sjóðsins. Þar eru sett fram
markmið til lengri og skemmri tíma
og skilgreindar leiðir að hverju
markmiði.
V• innuferlar og verklagsreglur
ráðgjafa í ýmsum verkefnum hafa
verið mótaðar og eru stöðugt í þróun
hjá sjóðnum.
R• eglur um úthlutun styrkja vegna
rannsóknarvekefna hafa verið
mótaðar og samþykktar af stjórn
sjóðsins.
Við undirritun nýrrar skipulagsskráar fyrir Starfsendurhæfingarsjóð í janúar 2009