Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 11

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 11
11www.virk.is STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR Ráðgjafar bjóða öllum einstaklingum sem fá greidda dagpeninga frá sjúkra- eða styrktarsjóðum stéttarfélaga upp á þjónustu og stærstur hluti þeirra sem koma til ráðgjafa hafa þaðan framfærslu sína. Töluverður hópur, sem er enn á launum hjá atvinnurekanda vegna veikinda, leitar einnig til ráðgjafa, og er þá yfirleitt um að ræða fólk sem á rétt á launa- greiðslum í nokkra mánuði. Eins hafa leitað til ráðgjafa einstaklingar sem eru á örorkulífeyri, en hafa líka verið í hlutastarfi á vinnumarkaði, og einstaklingar sem eru á endurhæfingarlífeyri. Ráðgjafar hafa þá aðstoðað viðkomandi við gerð og eftirfylgni endurhæfingaráætlunar. Af þeim 770 einstaklingum sem hafa leitað til ráðgjafa hafa 173 lokið ráðgjöf frá ráðgjafa. Í töflunni hér á eftir má sjá yfirlit yfir stöðu þeirra við lok ráðgjafar: Eins og sjá má er um helmingur þeirra sem hafa lokið ráðgjöf í vinnu og um 83% hafa vinnugetu þó ekki hafi allir fundið vinnu. Þeir sem eru í námi við lok ráðgjafar hafa yfirleitt hafið nám að tilstuðlan ráðgjafanna. Um 17% þeirra sem hafa útskrifast eru á örorkulífeyri og langflestir þeirra voru á örorkulífeyri þegar þeir leituðu sér aðstoðar hjá ráðgjafa. Í sumum tilvikum eru þessir einstaklingar einnig í einhverri vinnu og hafa leitast við að auka getu sína á vinnumarkaði með aðstoð ráðgjafa. Í einhverjum tilvikum er þó um það að ræða að einstaklingar hafa farið af bótum hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga og á örorkulífeyri þegar um er að ræða mjög alvarleg veikindi. Ákveðinn fyrirvari er settur við þessar tölur. Upplýsingakerfi og skráningarferlar VIRK eru í uppbyggingu og þróun og má segja að ekki sé kominn sá fjöldi og sú reynsla sem þarf til að draga áreiðanlegar ályktanir af tölunum. Þó er jákvætt að sjá að um 83% af þeim sem hafa lokið ráðgjöf hafa vinnugetu að fullu eða að hluta. Þessa dagana er unnið að því að bæta skráningarferla, skráningu, og skýrslugjöf úr upplýsingakerfinu til að geta á hverjum tíma fengið sem best yfirlit og upplýsingar um þróun mála. Árangur, gæðaeftirlit og viðhorf notenda Ráðgjafar, starfsmenn VIRK og starfsmenn stéttarfélaga hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð frá félagsmönnum stéttarfélaga við þjónustu ráðgjafanna og mörg dæmi eru um góðan árangur af starfi þeirra. Viðtöl hafa verið tekin við nokkra einstaklinga sem hafa náð árangri fyrir tilstuðlan ráðgjafa og þeirrar þjónustu sem í boði er hjá VIRK. Þessi viðtöl eru mjög lýsandi um þjónustu sjóðsins og er þau að finna á heimasíðu VIRK (http://virk.is/page/hvatning). Sé litið til framtíðar er mikilvægt að gæði og árangur þjónustunnar séu mæld og skráð á kerfisbundinn og samræmdan hátt. Að þessu er unnið en það tekur tíma að koma upp nauðsynlegum ferlum og eftirliti til að gera þetta mögulegt. Áhersluþættir í þjónustu og gildi starfsmanna hafa nú þegar verið mótuð og nú er unnið að gerð formlegrar þjónustustefnu með mótuðum ferlum um úrvinnslu kvartana og könnun á viðhorfum notenda. Einnig hefur verið ákveðið að ráðgjafar fylgi eftir þeim einstaklingum sem þeir hafa veitt þjónustu og hafi samband við þá eftir tiltekinn tíma frá útskrift og staða Útskrifaðir einstaklingar frá ráðgjafa – staða við lok ráðgjafar: Í vinnu 91 53% Í námi 19 11% Atvinnulaus en með vinnugetu 33 19% Á örorkulífeyri 30 17% Samtals 173 100% Fjöldi einstaklinga Hlutfall viðkomandi athuguð. Upplýsingakerfi VIRK sér um að minna ráðgjafa á þessa eftirfylgni. Í samningum við úrræðaaðila eru ákvæði er varða gæðaeftirlit VIRK með þeirri þjónustu sem veitt er. Sérfræðingar VIRK hafa fylgt eftir þessum samningum og fundað reglulega með þjónustuveitanda um gang mála og árangur úrræðisins. Í upplýsingakerfi VIRK eru ennfremur skráð öll úrræði sem veitt eru og unnið er að því að ráðgjafar skrái inn samræmdar upplýsingar um árangur mismunandi úrræða. Starfshæfnismat og vinnu- aðferðir Hjá Starfsendurhæfingarsjóði hefur átt sér stað þróun á verkfærum og vinnuferlum sem hafa það að markmiði að meta getu og færni einstaklinga til virkrar þátttöku á vinnumarkaði, ásamt því að draga fram þau tækifæri sem eru til staðar og virkja og hvetja einstaklinga til dáða. Hér er um að ræða svokallað starfshæfnismat sem að hluta til hefur verið unnið í samstarfi við faghóp um matsaðferðir. Faghópurinn var settur á laggirnar af opinberum aðilum og hafði það hlutverk að koma með tillögur að leiðum í nýju starfshæfnismati. Skýrslu þessa faghóps er að finna á vef félagsmálaráðuneytisins. Stór hluti þeirra verkfæra sem þar eru sett fram hafa verið þróuð og prófuð af sérfræðingum Starfsendurhæfingarsjóðs og mynda grunn þess mats sem notað er hjá sjóðnum í dag. Áframhaldandi þróun þessara verkfæra og vinnuferla er ákaflega mikilvæg og leggur Starfsendurhæfingarsjóður mikla áherslu á að standa vel að þeirri vinnu í samvinnu við fjölmarga aðila bæði hérlendis og erlendis. Nánari lýsingu á bæði aðferðarfræðinni og áframhaldandi þróun er að finna í grein Ásu Dóru Konráðsdóttur sérfræðings hér aftar í ritinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.