Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 12
12 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
Kynningarstarf, námskeið og
ráðstefnur
Mikið kynningarstarf hefur farið fram hjá
VIRK undanfarið ár. Starfsmenn VIRK
og ráðgjafar um allt land hafa undirbúið
og tekið þátt í kynningarstarfinu, haldið
fyrirlestra, skrifað greinar, farið í viðtöl hjá
fjölmiðlum og fleira. Gefnir hafa verið út
upplýsinga- og fræðslubæklingar. Hér á
eftir verður farið yfir helstu þætti þessa
starfs.
Kynningar og fræðsla um
starfsemi VIRK
Fjölmargar kynningar hafa verið á
starfsemi VIRK. Sem dæmi má nefna:
N• ámskeið fyrir trúnaðarmenn
og starfsmenn stéttarfélaga um
allt land. Fræðsla um starfsemi
VIRK og starfsendurhæfingu
er hluti af námskeiðum fyrir
trúnaðarmenn um allt land og
sérfræðingar VIRK hafa séð
um þessa fræðslu. Fjallað er
um Starfsendurhæfingarsjóð,
hugmyndafræði starfsendur-
hæfingar og hlutverk ráðgjafa og
trúnaðarmanna. Ráðgjafar hafa
einnig haldið sérstakar kynningar
á starfi sínu fyrir starfsmenn
stéttarfélaga um allt land.
K• ynningar á vinnustöðum – bæði
fyrir starfsmenn og stjórnendur.
Sérfræðingar VIRK og ráðgjafar hafa
heimsótt fjölmarga vinnustaði og
haldið kynningar á starfseminni fyrir
starfsmenn og stjórnendur. Þessar
kynningar hafa verið vel sóttar og er
mikill áhugi fyrir starfseminni.
Ky• nningar á heilsugæslustöðvum
um allt land. Sérfræðingar VIRK og
ráðgjafar hafa skipulega heimsótt
heilsugæslustöðvar um allt land
og kynnt starfsemina og rætt um
nauðsynlegt samstarf. Margir
heilsugæslulæknar eru áhugasamir
um starfsemi VIRK og beina
skjólstæðingum sínum til ráðgjafa í
auknum mæli.
Ky• nningar á öðrum
heilbrigðisstofnunum. Sérfræðingar
VIRK og ráðgjafar hafa verið beðnir
um að kynna starfsemina innan
fjölmargra heilbrigðisstofnanna,
svo sem á Reykjalundi og innan
ýmissa deilda og sviða LSH. Góðar
umræður hafa síðan skapast um
gagnlega samstarfsfleti í kjölfar
þessara kynninga.
K• ynningar á öðrum opinberum
stofnunum. Margar opinberar
stofnanir hafa beðið um kynningu
á starfseminni, bæði innan ríkis og
sveitarfélaga.
K• ynningar/fræðslufyrirlestrar
í háskólum og öðrum
menntastofnunum/samtökum.
Sérfræðingar VIRK hafa haldið
fjölmargar kynningar og fræðslu-
fyrirlestra um atvinnutengda starfs-
endurhæfingu í háskólum og öðrum
menntastofnunum hér á landi.
Fé• lagasamtök. Ýmis félagasamtök
hafa beðið sérstaklega um kynning-
ar á starfseminni.
F• yrirlestrar á ýmsum ráðstefnum og
fundum. Sérfræðingar VIRK hafa
haldið kynningar og fræðsluerindi
á fjölmörgum ráðstefnum og
fundum um allt land – bæði á
vegum félagasamtaka, stofnana
og fyrirtækja. Fræðslufyrirlestrar
og vinnustofur um starfsemi og
vinnuaðferðir VIRK voru þannig
haldnir á læknadögum, á ársfundi
sjúkraþjálfara, á afmælisfundi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og hjá Rannsóknastofu í
vinnuvernd.
Auk þessa hafa fulltrúar VIRK verið með
auglýsingastanda og kynningarefni á
ársfundum ASÍ og BSRB, Læknadögum,
ársfundi hjúkrunarfræðinga og ársfundi
sjúkraþjálfara.
Fræðslufyrirlestrar
Sérfræðingar VIRK hafa útbúið
fræðslufyrirlestra og námskeið um
starfsendurhæfingu á vinnustað og í
fjarvistastjórnun. Markmiðið er að fræða
stjórnendur um mikilvægi þess að
halda vel utan um starfsmenn í löngum
fjarvistum og tryggja árangursríka endur-
komu til vinnu eftir veikindi eða slys.
Fyrirlestrarnir og námskeiðin hafa verið
haldnir víða og verið mjög vel tekið af
stjórnendum sem sjá möguleika í að ná
árangri með breyttum vinnubrögðum
hvað þetta varðar. Þessir fyrirlestrar eru í
takt við stefnu VIRK hvað varðar samstarf
við atvinnulífið og starfsendurhæfingu á
vinnustöðum.
Ráðstefnur og fræðslufundir
Í tengslum við ársfund VIRK var haldinn
morgunverðarfundur þar sem fagfólki
er boðið upp á fyrirlestur erlends
sérfræðings í starfsendurhæfingu. Hug-
myndin er að koma á framfæri við inn-
lenda sérfræðinga þekkingu og reynslu
annarra þjóða. VIRK íhugar einnig að
bæta við fleiri opnum fræðslufundum
fyrir fagfólk í starfsendurhæfingu.
Ráðstefnan „The Capacity to Avoid
Incapacity“ var haldin í nóvember 2009
í samvinnu við félagsmálaráðuneytið
og Vinnumálastofnun. Þetta var tveggja
daga ráðstefna með mörgum erlendum
fyrirlesurum og heppnaðist hún mjög vel.
Ráðstefnan „Vinnum saman“ var haldin í
mars 2010 í samstarfi VIRK og Sambands
íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík og á
Akureyri. Þessi ráðstefna heppnaðist
ákaflega vel, var vel sótt og mikil ánægja
var með efni hennar. Í kjölfarið hafa
komið fjölmargar fyrirspurnir til VIRK
um fræðslufyrirlestra innan stofnana og
aðgang að frekari upplýsingum.
Fulltrúar VIRK voru valdir til að halda
erindi á stórri alþjóðlegri ráðstefnu um
starfsendurhæfingu sem fer fram í haust
í Los Angeles. Erindið heitir: Breaking
The Barriers To Work, The Icelandic
Organizational Model Of Vocational
Rehabilitation, og fjallar um starfsemi
Starfsendurhæfingarsjóðs. Um er að
ræða fjölsótta ráðstefnu þar sem margir
af þekktustu fræðimönnum á þessu sviði
halda erindi. Sjá nánar á: http://www.
ifdm2010.com/index.html.
Greinaskrif
Sérfræðingar VIRK hafa skrifað
greinar í fagtímarit hjúkrunarfræðinga,
sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa. Um er
að ræða greinar um starfsemi og
vinnuaðferðir VIRK og faggreinar um
starfsendurhæfingu.