Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 15
15www.virk.is
ÞJÓNUSTA
til að auka þekkingu sína. Með aukinni reynslu og
þróun ráðgjafastarfsins hafa ráðgjafar tekið þátt í
endurskoðun og breytingum á þeim verkfærum
sem Starfsendurhæfingarsjóður leggur þeim til.
Mikilvægt er að ráðgjafi í starfsendurhæfingu
búi yfir góðri samskiptahæfni og hafi áhuga á
að vinna með fólki. Ráðgjafinn þarf að mæta
einstaklingnum þar sem hann er staddur án
fordóma og sýna honum virðingu. Hann þarf
að vera fær í viðtalstækni og byggja upp traust
þannig að einstaklingnum líði vel og geti rætt
mál sín í trúnaði. Ráðgjafinn þarf að geta unnið
skipulega og hafa góða yfirsýn yfir mál hvers
einstaklings og yfir þau úrræði sem í boði eru.
Hann þarf einnig að þekkja vinnumarkaðinn og
nærsamfélag viðkomandi til að geta aðstoðað.
Það er mikilvægt að þeir sem hafa átt við veikindi
eða aðra erfiðleika að stríða fái aðstoð, stuðning
og upplýsingar um hvaða þjónusta er í boði og
hver réttur þeirra er.
Til að gefa innsýn í hlutverk og verkefni ráðgjafa
í starfsendurhæfingu eru hér birt viðtöl við tvo
ráðgjafa sem starfa hjá stéttarfélögum/samtökum
stéttarfélaga. Í viðtölunum er farið yfir hlutverk
þeirra, áherslur, verkefni og ábyrgð.
Tuttugu og tveir ráðgjafar í starfsendurhæfingu
starfa nú hjá stéttarfélögum um allt land á grund-
velli samninga við Starfsendurhæfingarsjóð.
Sjóðurinn hefur faglega umsjón með starfi
ráðgjafanna og veitir þeim nauðsynlega fræðslu
og stuðning.
Starf ráðgjafa í starfsendurhæfingu er í senn
fjölbreytt, krefjandi og gefandi. Hlutverk hans
er að aðstoða einstaklinga við að viðhalda og
efla starfsgetu eða starfshæfni. Ráðgjafinn þarf
einnig að hvetja einstaklinginn og veita honum
upplýsingar um möguleika og þjónustu tengda
starfsendurhæfingu. Mikilvægt er að ráðgjafinn
hafi ávallt í huga að hverju er stefnt en það er
að aðstoða einstaklinginn við að auka starfshæfni
sína og varðveita vinnusambandið ef það er til
staðar. Starf ráðgjafans reynir meðal annars
á samskiptahæfni og færni í að finna lausnir í
samvinnu við þann sem leitar ráðgjafar.
Viðtöl við einstaklinga og umsjón með málum
þeirra er einn stærsti þáttur ráðgjafastarfsins.
Einnig taka ráðgjafarnir þátt í að kynna
Starfsendurhæfingarsjóð á vinnustöðum og
stofnunum. Þeir eru í samstarfi við ýmsa aðila
varðandi mál einstaklinga, svo sem lækna,
sálfræðinga, sjúkraþjálfara og stjórnendur á
vinnustöðum. Það skal tekið fram að ráðgjafi
hefur aldrei samband við þessa aðila nema
með samþykki einstaklingsins sem hann er að
aðstoða. Ráðgjafar Starfsendurhæfingarsjóðs eru
bundnir þagnarskyldu um það sem þeir verða
áskynja í starfi sínu og varðar einstaklinga sem
til þeirra leita.
Ráðgjafarnir vinna í nánu samstarfi við sérfræð-
inga Starfsendurhæfingarjóðs og hefur hver
ráðgjafi sinn tengilið hjá sjóðnum. Einnig sækja
ráðgjafar reglulega fræðslu og námskeið hjá VIRK
Ráðgjafar
í starfsendurhæfingu
hjá stéttarfélögum um allt land
„Mikilvægt er að
ráðgjafinn hafi
ávallt í huga hvert
er stefnt en það
er að aðstoða
einstaklinginn
við að auka
starfshæfni sína
og varðveita vinnu-
sambandið ef það
er til staðar. “