Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 16
16 www.virk.is
Þ
JÓ
N
U
S
TA
hendi, þrátt fyrir heilsubrestinn. Aðrir hafa fallið
út af vinnumarkaði vegna veikinda, vilja gjarnan
komast aftur til starfa, en þurfa til þess ýmiss
konar stuðning og aðstoð. Svo eru ýmsir, sem
hafa sérhæft sig í starfi, sem þeir treysta sér
ekki til að sinna áfram af ýmsum ástæðum. Þá
er nauðsynlegt að fara rækilega yfir hvort þeir geti
ekki fært sig yfir á annað svið, sem hefur ekki í
för með sér sama andlega og líkamlega álagið og
fyrra starf. Loks eru svo þeir, sem hafa náð fullri
heilsu á ný, en geta af einhverjum ástæðum ekki
snúið aftur til fyrra starfs.“
Margrét segir að sjúkrasjóðir félaganna, BHM, KÍ
og SSF, vísi félagsmönnum til sín. „Fólk er smám
saman að átta sig á þessu úrræði. Frá hausti
2009 hefur starfsemi Starfsendurhæfingarsjóðs
og ráðgjafa stéttarfélaganna verið vel
kynnt, til dæmis meðal trúnaðarmanna á
vinnustöðum, starfsmannastjóra og starfsmanna
heilsugæslunnar. Ég finn að það mikla kynningar-
starf hefur skilað ágætum árangri.“
Stefnan er að bjóða öllum einstaklingum, sem
eru frá vinnu vegna heilsufarsvanda, upp á ráð-
gjöf. „Í mörgum tilvikum er staðan sú, að fólk
einfaldlega jafnar sig á veikindum og getur snúið
aftur til fyrri starfa,“ segir Margrét. „Stundum
telur fólk sig hafa náð fullum bata, en áttar sig
svo á að það getur ekki sinnt starfinu sem skyldi.
Það er ákaflega misjafnt hversu mikla aðstoð þeir
þurfa, sem til mín leita. Stundum vilja þeir bara
fullvissa sig um að þeir séu á réttu róli, hafi fengið
þá aðstoð sem þeir þurfi.“
„Margir hafa haft á orði við mig að þeir óskuðu
þess að ég hefði verið til taks fyrr, en að sama
skapi er fólk ákaflega þakklátt fyrir að geta nú
leitað á einn stað, í stað þess að vera sjálft að
leita aðstoðar á 3-4 stöðum, þar sem enginn
hefur heildarsýn yfir vandann. Oft bíður fólk of
lengi með að leita sér aðstoðar, það ætlar að
þrauka. En það á rétt á að leita sér aðstoðar og
ráðgjafar og á að nýta þann rétt. Ég er viss um að
þegar fram líða stundir kemur í ljós að þetta starf
skilar miklum árangri. Til dæmis sé ég í hendi
mér að samræmd aðstoð af þessu tagi leiði til
skilvirkari nýtingu á heilbrigðisþjónustu og aukinni
virkni fólks á vinnumarkaði, einstaklingum og
samfélaginu öllu til hagsbóta.“
Margrét Gunnarsdóttir ráðgjafi er til taks
fyrir félagsmenn í Bandalagi háskólamanna,
Kennarasambandi Íslands og Samtökum starfs-
manna fjármálafyrirtækja. Hún er sjúkraþjálfari
og hefur starfaði við það fag í 18 ár, aðallega við
endurhæfingu krabbameinssjúklinga. Árið 2007
lauk hún hins vegar námi í samtalsmeðferð og
þegar staða ráðgjafa var auglýst vorið 2009 vissi
hún að þar var komið tækifærið til að söðla um og
láta reyna á nýju kunnáttuna.
Fólk í misjafnri stöðu
Margrét segir að fólk sem leitar til hennar
sé í misjafnri stöðu. „Sumir eru enn í vinnu,
en finna að starfsgetan er að minnka vegna
heilsufarsvanda af ýmsum toga. Þá reynum við
að átta okkur á hvort hægt sé að haga starfinu
á þann veg, að viðkomandi geti leyst það af
Finnur leiðina
um frumskóginn
Margrét Gunnarsdóttir ráðgjafi hjá BHM, KÍ og SSF / viðtal
„Starfsemi
Starfsendur-
hæfingarsjóðs er
mikil framför.
Það eru forréttindi
að fá að vinna að
þessum verkefnum
og löngu tímabært
að bjóða upp á
þessi úrræði. “