Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 19
19www.virk.is
ÞJÓNUSTA
að leggja alla þá vinnu sem þarf í að
finna rétta úrræðið, svo fólk geti áfram
verið virkt á vinnumarkaði. Þessi nálgun
Starfsendurhæfingarsjóðs, að vinna með
sjúkrasjóðum stéttarfélaganna, er mjög
góð. Margir höfðu áttað sig á þörfinni fyrir
markvissa starfsendurhæfingu, en núna
fyrst hefur fólk beinan aðgang að slíku
úrræði. Við höfum ágætar fyrirmyndir að
slíku starfi frá nágrannaþjóðum.“
Sprenging í aðsókn
Soffía hóf störf með því að hringja í
alla sem fengu sjúkradagpeninga, en
nú hefur starfið spurst út og fólk leitar
til hennar að fyrra bragði. „Eftir að
markvisst kynningarstarf hófst haustið
2009 varð sprenging í aðsókn og við
sjáum fram á að þurfa að ráða annan
ráðgjafa til Eflingar. Og árangurinn er
þegar farinn að koma í ljós. Sumir hafa
náð að halda sér í vinnu, aðrir snúið
aftur eftir veikindaleyfi, sem þeir héldu
að tækist ekki. Fólk er afskaplega ánægt
með að við skulum sinna þessu, veita
fræðslu og hjálpa því að rata um kerfið,
sem oft getur reynst flókið. Sá sem aldrei
hefur veikst þekkir auðvitað ekki það kerfi
sem hann verður að ganga inn í og veitir
ekkert af aðstoðinni.“ Atvinnuástandið er
því miður ekki með þeim hætti, að allir
geti gengið að starfi vísu, þótt þeir nái
fullri heilsu. „Það þýðir ekki að einblína á
þann neikvæða þátt. Ég vil miklu fremur
leita tækifæranna. Markmiðið er að efla
og viðhalda starfsgetu einstaklinga, svo
þeir séu tilbúnir á vinnumarkaðinn þegar
færi gefst. Það markmið breytist aldrei.
Við verðum að líta á stöðu hvers og eins
og styðja við hann eftir mætti, sama hver
staðan er á vinnumarkaði hverju sinni.“
Soffía Erla Einarsdóttir ráðgjafi hjá Eflingu og Hlíf / viðtal
„Fólk á vissulega rétt
á sjúkradagpeningum
en það á líka þann
sjálfsagða rétt að fá
starfsendurhæfingu.“