Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 21
21www.virk.is
ÞJÓNUSTA
starfsmenn hér hafa kynnt þjónustuna
á fundum á vinnustöðum. Við höfum
notað trúnaðarmannakerfið til þess að
benda fólki á þetta og það hafa verið
haldnir fundir með heilsugæslustöðvum
til þess að læknar geti bent á þjónustu
Starfsendurhæfingarsjóðs. Öll félögin
fóru svo núna í mars í sameiginlega
kynningarferð til Ólafsfjarðar, Siglufjarðar,
Dalvíkur, Grenivíkur og Hríseyjar auk
Akureyrar .“
Björn kveðst fullviss um að þjónustan
hafi orðið til þess að menn hafi komist
fyrr til vinnu eftir veikindi. ,,Það er alveg
augljóst. Ef menn lenda í áföllum þá fer
heilmikill tími í að hugsa um hvað eigi
að gera og hvað sé til ráða. Mönnum
finnst mjög dýrmætt að geta fengið svona
þjónustu, farið í viðtöl og í framhaldinu
fengið aðstoð til þess að byggja sig upp.
Menn líta á þetta sem mjög gott tækifæri
til þess að koma sér aftur til vinnu.“
Árangurinn sem náðst hefur með
þjónustu Starfsendurhæfingarsjóðs er
mjög góður, að mati Björns. ,,Það er
ótrúlegt hversu mikill árangurinn er af því
sem menn hafa verið að gera þann stutta
tíma sem þetta hefur verið við lýði. Margir
voru mjög óþolinmóðir og fannst að þetta
,,Við fengum strax mikinn áhuga á
að koma þessu á hér á Norðurlandi
og hóuðum saman formönnum allra
stéttarfélaganna innan ASÍ í Eyjafirði um
það leyti sem verið var að stofna Starfs-
endurhæfingarsjóðinn. Á fundinum var
ákveðið að fara í samstarf við sjóðinn
og við gerðum eiginlega vart við okkur
um leið og hann var stofnaður,“ segir
Björn um þróun þjónustu ráðgjafa í
starfsendurhæfingu fyrir norðan.
,,Stéttarfélög opinberra starfsmanna
komu einnig inn í þetta og hjá Einingu-Iðju
starfa nú ráðgjafar fyrir alla launamenn á
svæðinu, bæði opinbera og hina,“ bætir
Björn við.
Hann telur að á annað hundrað manns
hafi notið þjónustu sjóðsins fyrir norðan.
,,Fólki líkar þetta mjög vel og það er
mjög ánægt með að þessu skuli hafa
verið komið á fót. Það er ánægt með að
fá þessa þjónustu, ekki síst vegna þess
að það þarf ekki að fara langa leið til
þess að fara í viðtöl. Ráðgjafarnir fara á
þéttbýlisstaðina út með Eyjafirði.“
Kynningarstarfið hefur verið viðamikið,
að sögn Björns. ,, Við höfum gert heil-
mikið í að kynna þetta. Ráðgjafarnir og
Stéttarfélög
og starfsendurhæfing
Björn Snæbjörnsson
formaður Einingar-Iðju á Akureyri / viðtal
ætti að virka samstundis en við höfum
alltaf sagt að góðir hlutir gerist hægt. Það
finnst mér hafa verið að gerast. Menn
hafa farið varlega í þetta og hugsað hvert
skref mjög vel. Það var faglega staðið að
þessu og þess vegna eru menn að ná
árangri.“
Það er von Björns að starf sjóðsins eflist.
,,Ég vona að þeim sem vinna við þetta
fjölgi til þess að möguleikar fólks á að
komast aftur út á vinnumarkaðinn verði
enn meiri. Það er mikilvægt að geta orðið
aftur þátttakandi úti í atvinnulífinu. Ég er
viss um að þetta er bara byrjunin. Þetta
er það sem mun eflast mjög í framtíðinni
og það verður að koma í veg fyrir að starf
sjóðsins fari á einhvern hátt í baklás.
Þjónusta ráðgjafa í starfsendurhæfingu
er samstarfsverkefni Starfsendurhæf-
ingarsjóðs og stéttarfélaga um allt land.
Þjónustan er veitt á vegum stéttar-
félaganna en á grundvelli samninga
þeirra við Starfsendurhæfingarsjóð og sér
sjóðurinn um faglega þróun, uppbygg-
ingu og fjármögnun starfsins. Stéttarfélög
ráða hins vegar ráðgjafa til starfa, sjá
til þess að þeir hafi góða vinnuaðstöðu
og nýta tengsl sín við félagsmenn og
atvinnulíf til að koma þjónustunni vel á
framfæri. Þetta samstarf hefur gengið
mjög vel og stéttarfélög um allt land hafa
lagt mikinn metnað í að byggja upp góða
og faglega starfsendurhæfingarþjónustu
í samstarfi við Starfendurhæfingarsjóð.
Hér á eftir er viðtal við Björn Snæbjörns-
son formann Einingar-Iðju á Akureyri um
ráðgjafastarfið og starfsendurhæfingar-
þjónustuna. Eining-Iðja hefur, í samstarfi
við önnur stéttarfélög á Akureyri og
Eyjafjarðarsvæðinu, séð um að ráða ráð-
gjafa til starfa og útvega þeim góða
starfsaðstöðu. Tveir ráðgjafar eru nú starf-
andi á þessu svæði.