Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Síða 27
27www.virk.is
ÞJÓNUSTA
í alþjóðlegri rannsókn þar sem verið er
að meta ákveðna þætti sem snúa að mati
á starfshæfni einstaklinga. Markmiðið
með rannsókninni er að prófa kjarnasafn
EUMASS sem byggt er á sérhæfðu mati
og þá með tilliti til ríkjandi menningar. Hér
á landi hefur Starfsendurhæfingarsjóður
fengið sérfræðinga á sviði endurhæfingar
til þátttöku í verkefninu en einnig er
fyrirhugað að fá inn í þessa tilraun
sérfræðinga í mati á örorku. Fyrstu
niðurstöður úr þessari rannsókn hafa
verið kynntar á þingi EUMASS og eru nú
aðgengilegar á heimasíðu VIRK.
Samstarf við ICF Research
Branch í Nottwill í Sviss
Sérfræðingar sjóðsins hafa farið til funda
við helstu sérfræðinga ICF-kerfisins í
Sviss. Rannsóknarhópur sem starfar í
tengslum við Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunina er staðsettur í Nottwill í Sviss
og hefur það hlutverk að rannsaka og
þróa ICF-kerfið. Ákveðinn vilji er fyrir hendi
hjá þessum sérfræðingum að taka þátt í
þróun á ákveðnum þáttum starfshæfnis-
matsins. Nú er unnið í samvinnu við
þessa aðila að verkefnaáætlun um þróun
starfshæfnismats. Einnig er sérfæðingum
VIRK boðin þátttaka á námskeiði sem er
hið fyrsta sinnar tegundar og haldið á
vegum WHO, ICF Research Branch og
Ludwig-Maximilian háskólans í Þýska-
landi þar sem farið er í kennslu og
þjálfun á ICF-kerfinu og innleiðingu þess.
Í áframhaldinu er fyrirhugað að halda
svipað námskeið hérlendis sem verður
opið öllum.
Samstarf við Sören Brage
Sören Brage er varaforseti EUMASS
samtakanna og leiðir vinnuhóp innan
þeirra samtaka er varðar notkun á ICF-
kerfinu. Hann er einn þeirra sem eru
í forsvari fyrir gerð og frekari þróun
á kjarnasafni EUMASS. Hann hefur
tekið að sér að vera leiðbeinandi fyrir
einn af sérfræðingum sjóðsins vegna
gerðar meistaraverkefnis þar sem
nýtt starfshæfnismat er viðfangsefnið.
Heiti ritgerðarinnar er: „New work
ability assessment in Iceland, a help-
ful tool in disability rating“. Ákveðin
áreiðanleikaprófun á starfhæfnismatinu
er meðal viðfangsefna þessa verkefnis.
Lokaorð
Verkfæri og vinnuferlar Starfsendur-
hæfingarsjóðs eru og verða í stöðugri
þróun. Sérfræðingar sjóðsins hafa haldið
utan um starfið, en lögð er áhersla á að
eiga sem mesta og besta samvinnu við
aðra aðila, s.s. frá opinberum stofnunum,
ásamt færustu sérfræðingum bæði
hérlendis og erlendis. Víða erlendis eru
sambærileg verkefni í gangi og af þeim
er hægt að draga mikinn lærdóm. Matið
verður þó alltaf að taka sérstaklega mið
af aðstæðum hér á landi og þróast í takt
við áherslur og þarfir á hverjum tíma.
Það sem skiptir þó alltaf mestu máli
þegar upp er staðið er að okkar verkfæri
og vinnuferlar skili árangri í að auka
starfsgetu og lífsgæði þeirra einstaklinga
sem til okkar leita.
Um höfundinn
Ása Dóra Konráðsdóttir er sérfræðingur
hjá VIRK. Hún er sjúkraþjálfari að mennt,
með framhaldsmenntun í stjórnun heil-
brigðisþjónustu. Hún hefur starfað sem
verkefnisstjóri á sviði atvinnulegrar
endurhæfingar undanfarin ár þar sem hún
hefur stýrt fjöldamörgum verkefnum, bæði
á sviði rannsókna sem og faglegrar
þróunar. Hún hefur viðamikla reynslu
af greiningu og meðferðarvinnu, faglegri
stefnumótun og uppbyggingu henni
tengdri og reynslu á sviði rannsókna og
stýringu rannsóknarverkefna.
Ása Dóra Konráðsdóttir sérfræðingur hjá VIRK