Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 34
34 www.virk.is
Þ
JÓ
N
U
S
TA
Mikilvægt er að skilja samhengið á milli
vinnu og heilsu fólks. Góð heilsa eykur líkur
á því að við finnum vinnu eða getum verið í
vinnu og fáum notið þess bæði fjárhagslega
og félagslega. Atvinnuleysi, hvort sem það er
vegna heilsubrests eða af öðrum ástæðum,
leiðir til verri efnahagslegra og félagslegra
aðstæðna sem aftur hafa áhrif á heilsu og
vellíðan og þannig myndast oft vítahringur
sem erfitt er að rjúfa.
Snemmbært inngrip fyrir þá sem hafa skerta
starfsgetu vegna heilsubrests er mikilvægt til
að auka líkur á að þeir geti haldið vinnunni
eða farið aftur í vinnu. Til að svo geti orðið
þarf náið samstarf milli atvinnurekenda,
heilsugæslu og stéttarfélaga um breytt viðhorf
og áherslur vegna skertrar starfsgetu. Það
er mikilvægt að horfa ætíð til þess sem fólk
getur þrátt fyrir heilsubrest, frekar en til þess
sem fólk getur ekki og vinna út frá þvi að
endurkomu til vinnu.
Á síðustu árum hafa komið fram marktækar
niðurstöður rannsókna sem benda eindregið
til þess að vinnan sé almennt góð fyrir bæði
líkamlega og andlega heilsu*. Rannsóknir sýna
að vinna sem fer fram í öruggu og heilsusam-
legu umhverfi og gefur einstaklingnum
tækifæri til að hafa áhrif á hvernig vinna
hans fer fram eykur bæði vellíðan hans
og sjálfsvirðingu. Jákvæð áhrif vinnunnar
eru miklu meiri en áhættan af því að vera
án atvinnu til langs tíma eða í langvinnri
veikindafjarvist. Það er því mikilvægt að bæði
atvinnurekendur og heilbrigðisstarfsfólk átti
sig á mikilvægi vinnustaðarins í viðhaldi og
eflingu heilsu starfsmanna og vinni saman að
því að finna leiðir til að fólk geti haldið vinnu
sinni þrátt fyrir skerta starfsgetu, hvort sem
hún er tímabundin eða varanleg.
Heilsa fólks á vinnumarkaði er mikilvæg fyrir alla.
Fyrir einstaklingana vegna þess að heilsan hefur
áhrif á lífsgæði þeirra, starfsgetu og sjálfsmynd.
Fyrir atvinnurekendur af því að heilsuhraust
vinnuafl skilar betri vinnu og mikilvægt er að sem
flestir geti verið þátttakendur á vinnumarkaði.
Fyrir samfélagið, af því að afleiðingar slæmrar
heilsu eru félagsleg einangrun, minni skatttekjur,
hærri kostnaður við heilbrigðis- og trygginga-
kerfið og meiri þrýstingur á sameiginlega sjóði
landsmanna.
Starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður til að
styðja við einstaklinga og atvinnurekendur til að
auðvelda endurkomu til vinnu. Hér á eftir eru
viðtöl við tvo notendur þjónustu sjóðsins, sem
gefa mynd af þeirri þjónustu sem einstaklingum
stendur til boða.
Heimild: *Waddell, G. and Burton A.K. (2006),
Is work good for your health and well-being?,
London: TSO (The Stationery Office).
Þjónusta VIRK
og mikilvægi vinnunnar
Rannsóknir sýna
að vinna sem fer
fram í öruggu og
heilsusamlegu
umhverfi og gefur
einstaklingnum
tækifæri til að hafa
áhrif á hvernig vinna
hans fer fram, eykur
bæði vellíðan hans
og sjálfsvirðingu.