Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Síða 42
42 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
Lipur þjónusta og stuttar
boðleiðir
Þegar litið er til starfsmannastefnu
Orkuveitunnar er ekki að undra að
stjórnendur hafi tekið Starfsendur-
hæfingarsjóði fagnandi. „Margir starfs-
menn, sem missa starfsgetuna um tíma,
þurfa stuðning utan vinnunnar,“ segir
Skúli Waldorff starfsmannastjóri. „Þeir
eru að reyna að fóta sig í nýjum veruleika
og þá er nauðsynlegt að einhver fylgi
þeim eftir. Fyrirtæki geta ekki, hvert og
eitt, fylgt starfsmönnum eftir svo vel sé.
Þar kemur Starfsendurhæfingarsjóður
til skjalanna, en þar á bæ er greinilega
lögð mikil áhersla á að fólk fái viðeigandi
hjálp, hvort sem er læknisfræðilega eða
á félagslega sviðinu. Þjónustan er lipur,
boðleiðir allar stuttar og ekki verið að
flækja mál að óþörfu. Þeir starfsmenn
Orkuveitunnar sem leitað hafa til
Starfsendurhæfingarsjóðs eru sammála
um þetta og segja að þeim mæti einungis
frábær þjónustulund. Mér sýnist því
hárrétt staðið að málum.“
Skúli segir augljóslega öllum til
hagsbóta að starfsmenn séu studdir
aftur til starfa, í stað þess að þeir þurfi
jafnvel að horfast í augu við örorku.
„Ég hef þegar öðlast beina reynslu af
starfi Starfsendurhæfingarsjóðs í þágu
starfsfólks Orkuveitunnar og hef ekkert
nema gott um það að segja. Starfsmenn
fá aðstoð sem Orkuveitan hefur ekki tök
á að veita þeim og sem þeir ættu erfitt
með að verða sér úti um á eigin spýtur.
Stærsti kostur Starfsendurhæfingarsjóðs
er að þar eru kraftar margra sameinaðir á
einum stað. Þar næst heildarsýn á vanda
einstaklingsins og um leið er boðið upp á
heildarlausnir, með aðkomu allra þeirra
sem geta hjálpað.“
Mikil tækifæri
Skúli kveðst fyrst hafa frétt af tilurð
Starfsendurhæfingarsjóðs þegar starfs-
maður sjóðsins kynnti starfsemina í
Orkuveitunni. „Síðar fékk ég nánari
upplýsingar um sjóðinn og tilgang hans.
Ég vissi auðvitað að samið hefði verið
um stofnun sjóðsins í kjarasamningum,
en ég hafði ekki gert mér grein fyrir
hversu mikil tækifæri felast í þessu
starfi. Nú er þegar komin reynsla á að
starfsmenn Orkuveitunnar njóti aðstoðar
Starfsendurhæfingarsjóðs og það er
óhætt að reikna með að tilvikin verði fleiri,
á svona stórum vinnustað. Mér finnst
gott til þess að vita að starfsmenn, sem
þurfa kannski að vera lengi frá störfum
vegna veikinda og finna til vanmáttar
vegna þess, geti nú fengið þann stuðning
sem þarf. Stjórnendum Orkuveitunnar
er metnaðarmál að standa vel að
starfsmannamálum. Starfsfólkið er mikil
auðlind og við tökum því að sjálfsögðu
fagnandi að njóta þess stuðnings sem
Starfsendurhæfingarsjóður býður upp á.“
„Mér líst mjög vel á starfsemi Starfsendur-
hæfingarsjóðs. Sjóðurinn tekur að sér
að hjálpa ágætu starfsfólki sem hefur
misst vinnugetuna. Sú þjónusta er
ákaflega þörf viðbót fyrir vinnuveitendur
og kemur auðvitað bæði starfsfólkinu
og fyrirtækjunum til góða,“ segir Skúli
Waldorff, starfsmannastjóri Orkuveitu
Reykjavíkur.
Í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur
við Bæjarháls í Reykjavík starfa um 600
starfsmenn við öflun og dreifingu orku,
vatns og við að sinna alhliða þjónustu við
viðskiptavini. Starfsfólk Orkuveitunnar,
sem er stærsta jarðvarmaveita heims,
kemur alls staðar frá og tilheyrir
fjölda stéttarfélaga. Samkvæmt starfs-
mannastefnu fyrirtækisins eiga stjórn-
endur og starfsfólk Orkuveitunnar að
þjóna markmiðum fyrirtækisins og
bera sameiginlega ábyrgð á að veita
sem besta þjónustu og tryggja að
langtímamarkmiðum sé náð.
Stjórnendum Orkuveitunnar ber að
tileinka sér góða og nútímalega stjórn-
unarhætti sem meðal annars felast í
jákvæðu viðhorfi til samstarfsmanna og
virku upplýsingastreymi. Þeir eiga að
leitast við að hafa samráð við starfsmenn
sína um málefni vinnustaðarins er þá
varða, beita sér fyrir sem víðtækastri sátt
um þau og að gera starfsmönnum kleift
að taka framförum, bæði faglega og sem
einstaklingar. Orkuveitan lítur svo á að
viðleitni starfsmanna til að auka hæfni
sína sé besta tryggingin fyrir starfsöryggi
og telur æskilegt að starfsmenn leggi rækt
við eigin heilsu og ástundi heilbrigt líferni.
Skúli Waldorff starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur / viðtal
Hárrétt
staðið
að málum