Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 45

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 45
45www.virk.is ATVINNULÍF „Hér geta þeir margt gott unnið“ Hjörtur Ingólfsson verkstjóri Smiðjunnar í Straumsvík / viðtal Í Smiðjunni er rólegt, þótt allir hafi nóg að sýsla. Þegar Hjörtur Ingólfsson verkstjóri leiðir blaðamann inn í húsið verður fyrst fyrir slöngugerðin, þar sem útbúnar eru hæfilega langar kraftslöngur, en af slíkum slöngum þarf að vera nóg í álveri. Magnús Guðmundsson sinnir slöngunum þennan daginn. Við næstu vinnustöð er Jan Nielsen og merkir bréfpoka, sem notaðir verða til að safna sýnum í steypuskála. Við hlið hans er staflað upp bútum af álpappír, sérstaklega þykkum. „Þessi álpappír er vinsæll í grillin, en hann er nú reyndar notaður í allt annað í kerskálanum,“ segir Hjörtur verkstjóri. Þarna eru handslökkvitæki í tugatali. Um allt álver er slík tæki að finna, alls 400 stykki, og veitir ekkert af. Sá sem aldrei hefur starfað í álveri á erfitt með að ímynda sér hversu oft þarf að grípa til þeirra, en Hjörtur segir tilefnin ærin og nefnir sem dæmi, að stundum aki vinnutæki yfir logandi kolamola og þá geti kviknað í hjólbarðanum. Eins gott að hafa slökkvitæki við slíkar aðstæður. Og gott er að geta treyst á að Smiðjumenn yfirfari þau reglulega, svo ekki sé gripið í tómt. Það er líka á ábyrgð Smiðjunnar að fara yfir sjö kæliherbergi álversins. Í þeim herbergjum eru baðker og vaskar, sem starfsmenn hafa aðgang að fyrirvaralaust, ef þeir brenna sig. Til allrar hamingju eru slík slys ekki tíð, en búnaðurinn þarf að vera klár, ef á þarf að halda. Síur, reiðhjól, sorp og slökkvilið Verkefnin eru fleiri. Smiðjumenn útbúa litlar síur, sem notaðar eru í steypu- skálanum og stórar síur, sem settar eru í vinnuvélar og eiga að tryggja stjórnendum þeirra gott loft. Þegar Hjörtur útskýrir síugerðina vindur sér inn maður með Hjörtur Ingólfsson og samstarfsmenn hans í Smiðjunni

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.