Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 48

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 48
48 www.virk.is A TV IN N U LÍ F ATVINNULÍF leyfir. Markmiðið er að starfsfólk noti veikindaréttinn þegar það er of veikt til að vera í vinnu en vinnustaðurinn komi til móts við skerta starfsgetu ef viðkomandi getur unnið þrátt fyrir minniháttar veikindi eða langvarandi einkenni. Aldrei verður hægt að koma í veg fyrir fjarvistir vegna veikinda en það er hægt að draga úr þeim með vali á aðferðum sem taka tillit til aðstæðna á vinnustað. Alltaf þarf að taka tillit til fjölþættra ástæðna veikindafjarvista þegar verið er að leita leiða til að ná árangri við að aðstoða fólk í veikindum.4 Skrá þarf fjarvistir starfsmanna, greina þær og bera saman við meðaltöl eða markmið sem sett eru í samfélaginu, í viðkomandi starfsgrein eða í viðkomandi fyrirtæki. Mikilvægt er að hafa samband við starfsmenn sem eru oft eða lengi fjarverandi og umfram það sem eðlilegt getur talist. Ræða þarf við viðkomandi og reyna í samráði við þá að finna lausnir sem taka á vandamálum sem hugsanlega eru til staðar. Hluti af þessu er að greina á milli tegunda fjarvista, finna orsakir og kanna hvort hægt sé að hafa áhrif á ástæður sem liggja að baki. Hlutverk stjórnandans er að sýna eðlilega umhyggju og aðstoða starfsmanninn við að finna lausnir. Þær geta falist í upplýsingum um aðstoð og að finna tímabundna eða varanlega aðlögun að störfum eða starfsaðstæðum, hvort sem það varðar veikindi starfsmanns, veik börn, vanlíðan á vinnustað eða valkosti um til dæmis ferðir til og frá vinnu. Lokamarkmiðið er alltaf að gera starfsmanninum kleift að sinna sínu starfi. Skráning og eftirfylgd fjarvista og reglulegt samband við starfsmann á meðan hann er fjarverandi er ein margra leiða til að láta starfsfólk vita að þess sé saknað úr vinnunni og að fylgst sé með fjarvistum. Til að forðast streitu hjá starfsmönnum vegna fjarvistastjórnunar vilja sumir kalla þetta ferli mætingastjórnun til að leggja áherslu á jákvæðari þætti. En hvað sem ferlið er kallað er nauðsynlegt að hafa í huga nokkur grundvallaratriði. Fjarvistastefna „Ég skil ekki af hverju svo margir atvinnurekendur halda áfram að borga fólki fyrir að vinna ekki, þegar aðferðirnar til að vinna markvisst á vanda þess eru til staðar. Það er engin tilviljun að þeir atvinnurekendur sem nota þær hafa minni veikindafjarvistir.“ 5 Eitt það mikilvægasta sem fyrirtæki getur gert til að hafa stjórn á fjarvistum er að móta stefnu sem byggir á greiningu og umfangi fjarvista og leiðbeiningum um hvernig á að fyrirbyggja og bregðast við fjarvistum starfsmanna. Skýrir verkferlar og menning fyrirtækisins geta haft jákvæð eða neikvæð áhrif á fjarvistir starfsmanna og geta tengst upplifuðum hindrunum við að snúa til baka til vinnu eftir veikindi, hvort sem þau eru til skamms tíma eða langvinn. Íslensk fyrirtæki virðast almennt ekki hafa mótaða stefnu né skipulögð vinnuferli, sem bæði stjórnendur og starfsmenn þekkja, til að auðvelda starfsmönnum endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys. Í raun ætti þetta að vera hluti af mannauðsstefnu hvers fyrirtækis, ekki síður en ákvæði um forvarnir og vinnuvernd. Algengustu leiðbeiningar fyrir stjórnendur og starfsmenn í þessa veru eru í sambandi við hvenær og hvernig skuli tilkynna veikindi og ákvæði um læknisvottorð. Stærri vinnustaðir hafa trúnaðarlækni eða hjúkrunarfræðing með sérhæfingu í heilsuvernd starfsmanna. Árangursrík fjarvistastefna þarf að taka tilliti til fjölbreyttra ástæðna fyrir fjarvistum og þróa viðeigandi eftirfylgni. Einnig er mikilvægt að taka tillit til þess og viðurkenna að starfsmenn þurfa stundum að vera fjarverandi frá vinnu og hafa til þess réttmætar ástæður. Ákveðið hlutfall veikindafjarvista er óumflýjan- legt og sérhver fjarvistastefna veður að búa yfir nauðsynlegum stuðningi við veika starfsmenn. Grundvallarmarkmiðið er að auðvelda fólki skjóta og örugga endurkomu til vinnu, enda er vinnan mikilvægur þáttur í því að ná aftur starfsþreki eftir veikindi. Trúverðug stefna er sú sem gildir jafnt um alla. Ef starfsmenn sjá að Óli í bókhaldinu getur tekið sér frí og farið í golf af því að veðrið er óvenju gott, finnst þeim að slíkt eigi að gilda um þá líka. Ef slíkur sveigjanleiki er ekki fyrir hendi er
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.