Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 55
55www.virk.is
ATVINNULÍF
hvernig tekið er á veikindum og fjarvistum
á vinnustað, í heilbrigðisþjónustunni og
af félagslega kerfinu.
Samspil vinnuumhverfis og
fjarvista
Samspil milli vinnuumhverfis, heilbrigðis
og fjarvista er flókið. Vinnuumhverfið getur
stuðlað að einkennum eða sjúkdómum
sem leiða til fjarvista. Aðstæður í
vinnunni geta líka haft áhrif á það hvort
fólk ákveður að fara ekki til vinnu þegar
því líður illa vegna einhvers sem tengist
ekki starfi beint. Sálfélagslegar aðstæður
á vinnustað geta leitt til fjarvista þótt
ekki sé um sjúkdóm að ræða. Meiri
líkur eru á því að einstaklingur með
almennan slappleika velji að vera heima
ef mikil streita og andlegt álag er á
vinnustaðnum. Að sama skapi eru meiri
líkur á því að starfsmaður komi fyrr til
vinnu eftir veikindi eða slys ef hann er
ánægður i starfi og vinnuumhverfið er
gott og hvetjandi. Á heimasíðu danska
stjórnendafélagsins www.lederne.dk
kemur fram að í fyrirtækjum þar sem
vinnuumhverfi er slæmt eru starfsmenn
að meðaltali veikir fjórum dögum lengur
en þar sem vinnuumhverfi er gott.
Rannsóknir benda til að þegar fólk hefur
verið óvinnufært í nokkra mánuði dragi
fljótt úr sjálfsöryggi og sjálfsbjargarviðleitni
og þar með minnka líkur á því að
viðkomandi fái starf á ný eða treysti
sér til að fara á vinnumarkaðinn aftur.
Þetta gildir bæði um öryrkja og þá sem
verða atvinnulausir af öðrum ástæðum. Í
Bandaríkjunum fer helmingur þeirra sem
eru frá vinnu í meira en átta vikur ekki
aftur út á vinnumarkaðinn og 85% þeirra
sem eru frá vinnu í hálft ár eða lengur
koma ekki aftur til starfa.8
Skammtíma og langtíma
fjarvistir
Skilgreiningar á skammtíma og langtíma
fjarvistum eru ekki samræmdar á Íslandi,
né í öðrum löndum. Þær fara yfirleitt eftir
réttindum til greiðslu (framfærslu) vegna
veikindaréttar. Sumstaðar er talað um
skammtímafjarvistir í 1-3 daga og allt
upp í 2-4 vikur. Í sumum löndum eru
langtíma fjarvistir skilgreindar umfram
2 vikur þegar réttur til framfærslu vegna
veikinda fer yfir til opinbera aðila og í
öðrum löndum gerist það ekki fyrr en
eftir 28 daga. Þar sem skilgreiningar á
skammtíma og langtíma fjarvistum eru
mismunandi er erfitt að gera samanburð
á tíðni fjarvista út frá skammtíma og
langtímafjarvistum.
Reynslan sýnir að fjarvistir aukast yfir
vetrartímann og að yngra fólk er mun
oftar frá vegna veikinda en þeir sem
eldri eru. Konur eru oftar frá vinnu vegna
veikinda barna og er sú fjarvera oftast
talin með í veikindatölum. Fram kemur
i skýrslu sem byggð er á íslenskum
gagnagrunni ráðgjafafyrirtækis að yngra
fólk er oftar frá vinnu og í stuttan tíma
í einu, en tímalengd fjarvista eykst með
aldri. Skráning fjarvista starfsmanna
vegna veikra barna getur skýrt þennan
mun að einhverju leyti. Sjá nánar í töflu
3 um fjölda veikindadaga á árinu 2006
miðað við aldur starfsmanna. Meðalfjöldi
veikindadaga í viðmiðunarhópnum var
8,4 dagar eða 3,8% vinnudaga á því ári .9
Í Svíþjóð eiga að minnsta kosti 26%
langtíma veikindafjarvista rót sína að
rekja til andlegrar vanlíðunar. Einkenni
frá stoðkerfi eiga líka stóran þátt í
fjarvistum. Í Noregi eiga 49% langtíma
fjarvista rót sína að rekja til einkenna frá
stoðkerfi (2002). Næst stærsti hópurinn
er fjarverandi vegna andlegrar vanheilsu
eða 19%. Í Danmörku eru einkenni frá
stoðkerfi líka algeng orsök langtíma
fjarvista en minna er vitað um þróunina
varðandi aðra sjúkdóma. Þó er vitað að
geðraskanir eiga stóran þátt í fjarvistum.
Langtíma veikindafjarvistir í þessum
löndum miðast yfirleitt við fjarvistir í
meira en tvær vikur. Í danskri athugun,
sem gerð var árið 2000, kom fram að fólk
sem bjó við andlega vanheilsu var oftar
frá vinnu en aðrir. Andleg vanheilsa er
Heimild: Veikindafjarvistir 2000-2006 samkvæmt gagnagrunni InPro
Tafla 3. Tíðni veikindadaga miðað við aldur starfsmanna árið 2006
25 ára 14 dagar 6%
26 - 30 ára 12 dagar 5%
41 - 45 ára 5 dagar 2,3%
> 50 ára 6-7 dagar 3-3,5%
Aldur starfsmenna Fjöldi veikindadaga á ári Hlurfall veikindafjarvista á ári