Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 56

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 56
56 www.virk.is A TV IN N U LÍ F ATVINNULÍF orsök 15% þeirra fjarvista sem standa lengur en tvo mánuði og fólk sem á við slíka vanheilsu að stríða er 2–3 sinnum líklegra til að vera frá vinnu en aðrir. Á Íslandi eru einkenni frá stoðkerfi og andleg vanheilsa algengustu orsakir örorku bæði meðal kvenna og karla.10 Á þessu má sjá að örorka hér á landi sem og annarsstaðar er ekki endilega vegna alvarlegra veikinda heldur yfirleitt vegna algengs heilsuvanda sem flestir eiga við að stríða einhverntíma á lífsleiðinni. Kostnaður vegna veikinda og örorku Kostnaður vegna veikindafjarvista er oft ekki sýnilegur þar sem launakerfi sjá um réttindi og útreikninga vega fjarveru starfsmanna og oft eru þeir útreikningar ekki greindir nægjanlega vel til að fá út heildarkostnað við fjarvistir starfsmanna. Mikill beinn og óbeinn kostnaður er vegna fjarvista og þar af leiðandi er mikið í húfi fyrir atvinnulífið að halda þeim í lágmarki. Beinn kostnaður er oftast vegna afleysinga og yfirvinnu og dæmi um óbeinan kostnað er þjálfunarkostnaður og minnkuð tímabundin framlegð eða aukin frávik vegna lítillar starfsreynslu og nýliðunar. Árið 2008 voru heildarlaun allra launamanna á Íslandi ásamt launatengdum gjöldum áætluð um 850 milljarðar króna. Ef miðað er við að hlutfall veikindafjarvista hafi verið um 4 % vinnudaga það ár, má ætla að launagreiðslur í veikindum hafi numið ríflega 34 milljörðum króna. Við þá fjárhæð bætist síðan kostnaður vegna staðgengla þeirra sem voru fjarverandi, s.s. launakostnaður, yfirvinnu, minni framlegð og ýmiss annar kostnaður vegna röskunar á starfsemi, auk útgjalda sem starfsmaður verður sjálfur fyrir vegna veikinda sinna. Erfitt er að bera saman kostnað vegna fjarvista á Norðurlöndunum vegna breytilegra skilgreininga og forsendna í kostnaðargreiningu hjá löndunum. Á Íslandi hefur kostnaður TR sem hlutfall af vergri landsframleiðslu aukist frá 0,8% árið 1993 í 1,5% árið 2006. Þá er ekki reiknað með kostnaði atvinnurekenda eða sjúkra- og lífeyrissjóða sem hefur verið um 50% hærri en kostnaður TR.11 15.677 einstaklingar voru á örorkulífeyri á Íslandi í byrjun árs 2010. Á árunum 1999-2009 fjölgaði örorkulífeyrisþegum um rúmlega 6.000 og hefur fjöldi örorkulífeyrisþega sem hlutfall af íbúafjölda á aldrinum 16-66 ára farið úr 5,5% á tímabilinu í 7,4 %. Á árinu 2009 bættust 1.474 nýir öryrkjar við og hafa ekki áður verið fleiri. Töluverð aukning hefur orðið á fjölda ungra örorkulífeyrisþega. Hver einstaklingur sem fer á örorku kostar samfélagið tugi milljóna króna. Greiðslur TR vegna örorkulífeyris voru 17,2 milljarðar á árinu 2008 og greiðslur lífeyrissjóðanna námu um 8,4 milljörðum, sem er um 17% af heildargreiðslum þeirra til lífeyrisþega.12 Á þessu má sjá að samfélagslegur kostnaður vegna veikindafjarvista og örorku er gríðarlegur og mikilvægt er að leita leiða til að minnka hann. Með markvissri fjarvistastjórnun og starfsendurhæfingu á vinnustöðum ætti að vera hægt að draga talsvert úr þessum kostnaði og þar með talið kostnaði sem atvinnulífið og einstaklingar verða fyrir vegna veikindafjarvista. Stefna Norðurlandanna í tak- mörkun veikindafjarvista Á undaförnum tveimur áratugum hefur kostnaður vegna veikindafjarvista og örorku verið vaxandi á Norðurlöndunum. Fyrir tilstuðlan sjúkratryggingastofnunar Svíþjóðar var hrundið af stað samstarfsverkefni meðal Norðurlandanna þar sem sjúkratryggingakerfin í löndunum voru borin saman og leiðir til að minnka veikindafjarveru skoðaðar. Niðurstaða þessarar vinnu birtist í skýrslu, Socialförsäkringsrapport 2008:1. Á öllum Norðurlöndunum nema í Finnlandi er verið að innleiða miklar skipulagsbreytingar á tryggingakerf- unum, til að auka skilvirkni og styðja betur við einstaklinginn í veikindafjarvistum og flýta fyrir endurkomu hans til vinnu. Á Íslandi eru fyrirhugaðar miklar kerfisbreytingar með endurskoðun á örorkumatinu og áherslu á starfshæfni og virkni.13 Í Noregi og Svíþjóð er lögð áhersla á aukna ábyrgð atvinnurekenda varð- andi veikindafjarvistir. Í Noregi bera vinnustaðir mikla ábyrgð á að fylgja veikindafjarvistum eftir og skipuleggja og framkvæma viðeigandi ráðstafanir til að auðvelda fólki að koma aftur til vinnu. Áður fyrr báru atvinnurekendur í Svíþjóð ábyrgð á að meta þörf starfsmanna fyrir starfsendurhæfingu, nú hefur verið fallið frá þessu, en þeir bera nú ábyrgð á að framkvæma og greiða fyrir aðgerðir sem tengjast starfsendurhæfingu á vinnustaðnum. Í Danmörku eru ekki gerðar kröfur um að atvinnurekandi framkvæmi eða greiði fyrir starfsendurhæfingu, en áhersla er á ábyrgð starfsmannsins vegna endurkomu til starfa enda er starfsöryggi á vinnumarkaði í Danmörku ekki eins mikið og á hinum Norðurlöndunum. Á undanförnum árum hefur þó verið lögð mikil áhersla á það í Danmörku að vinnustaðir beri samfélagslega ábyrgð og áhersla er lögð á að þeir taki þátt í starfsendurhæfingu og taki á móti einstaklingum með skerta starfsgetu. Í Finnlandi hefur atvinnurekandinn óbeina ábyrgð, honum er skylt að skipuleggja og greiða fyrir starfsmannaheilsuvernd
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.