Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 59
59www.virk.is
UPPLÝSINGAR
5.
Jákvætt starfsumhverfi
Ef starfsmanni liður ekki vel í vinnunni
eru meiri líkur á að hann sé oftar frá vinnu
vegna veikinda. Vinnustaður þar sem
hlustað er á starfsmanninn, vinnuálag er
viðeigandi og sanngjarnt og stuðningur er
frá yfirmönnum og samstarfsfólki stuðlar
að vellíðan. Þegar fólki líður vel í vinnunni
vill það vera þar.
6.
Hreinskilni og skilningur
Starfsmaður sem upplifir óöryggi í vinnu
er oftar frá vegna veikinda en sá sem er
öruggur í starfi. Ef raunveruleg ástæða
er fyrir óöryggi starfsmanns, þarf að ræða
það við hann af hreinskilni og skilningi.
7.
Góður starfsandi
Ágreiningur milli starfsmanna eða
starfsmanna og yfirmanna er skaðlegur
ef ekki er tekið á honum strax og af festu.
Hann getur leitt til aukinna fjarvista og
streitu á vinnustað og verður flóknari og
dýrari eftir því sem hann nær að búa um
sig lengur. Ekki láta togstreitu eyðileggja
starfsandann.
8.
Hrós og umbun
Láttu starfsmanninn vita að vinna hans
er metin. Starfmaður sem veit að hann
skilar góðu verki er ánægður í vinnunni.
Það getur haft áhrif á fjarvistir og marga
aðra þætti sem varða vellíðan og árangur
í vinnu.
9.
Sveigjanleiki
Það er mikilvægt að gefa kost á aðlögun (á
vinnuskyldu og vinnutíma) að vinnugetu
ef hún er skert tímabundið. Einnig er
mikilvægt að sýna skilning ef einstaklingur
þarf að „skreppa“ frá skamma stund
vegna viðtals við sálfræðing eða lækni.
Ef mikið mál er gert úr slíku er eins
líklegt að næst þegar starfsmaðurinn þarf
að hitta meðferðaraðila tilkynni hann sig
veikan til að losna við óþægindi.
10.
Fjarvistarstefna og vinnuferli
Það er mikilvægt að fylgja fjarvistastefnu
og samræmdu vinnuferli sem henni
tengjast fast eftir. Það þarf að vera
skilningur og sveigjanleiki en starfsfókið
þarf að skilja að ef það misnotar kerfið þá
fylgja því afleiðingar. Ef um er að ræða
reglubundnar og/eða tíðar fjarvistir þarf
að taka á því fljótt, á sanngjarnan hátt og
samkvæmt vinnureglum.
Höfundur: Gabrielle Lis. Sótt 8
desember 2009, af vefnum http://www.
rtwmatters.com/.