Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
23.900
19.900
14.995
SILJA BORÐSTOFUSTÓLL
með fallegu koparlituðu flaueli.
Einnig til dökkgrár.
GOLD KOLLUR
með gráu flaueli
og gylltum botn.
MALY KOMMÓÐA
með 5 skúffum. Olíuborin eik.
L80xD48xH120 cm. 99.900 kr. PENDULUM KLUKKA
Svört með gylltum vísum.
L20xH50 cm. 14.995 kr.
MONKEY STYTTA
svartur api. H25 cm. 6.495 kr./stk.
Ný t t
me a egu ve r æ . ms r ir.
L222xD148 cm. 139.900 kr.
Ný t t
N ý t t
N ý t t
Vögguvísur og sálmar er yfirskrift
tónleika sem haldnir verða í Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag kl. 12 og
eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúf-
um nótum. Fytjendur eru söng-
konurnar Særún Harðardóttir, Lilja
Eggertsdóttir og Ólöf G. Sigurðar-
dóttir, píanóleikarinn Gunnar
Gunnarsson, kontrabassaleikarinn
Þorgrímur Jónsson og trommu-
leikarinn Erik Qvick.
Flytja vögguvísur og
sálma í Fríkirkjunni
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 276. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Úrvalsdeild karla í körfuknattleik,
Dominos-deildin, hefst í kvöld. KR-
ingar hafa orðið Íslandsmeistarar
sex ár í röð og eru til alls líklegir í
vetur enda með reynda og góða
leikmenn. Mörg liðanna hafa tekið
miklum breytingum í sumar. Meðal
annars vegna þess að nokkrir er-
lendir leikmenn eru í flestum lið-
anna. »55
Hverjir geta veitt KR-
ingum keppni í vetur?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Óður til hins stutta nefnist mál-
þing sem haldið verður í dag í Ver-
öld – húsi Vigdísar frá kl. 16.30 til
18. Tilefni þess er stofnun nýrrar
rannsóknastofu í smásögum og
styttri textum sem nefnist STUTT.
Markmið STUTT er að auka veg
smásögunnar og gera sýnilegri
innan bókmenntaheimsins og í
samfélaginu. Meðal þátttakenda í
málþinginu eru Ás-
dís Rósa Magn-
úsdóttir, Ástráð-
ur Eysteinsson,
Kristín Guðrún
Jónsdóttir,
Rósa Þorsteins-
dóttir og Sig-
urbjörg
Þrast-
ardóttir.
Málþing um smásögur
og styttri texta
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Anna Júlía Þorgeirsdóttir, hár-
greiðslumeistari á Akranesi, hefur
gengið tæplega 600 sinnum á Háa-
hnúk (555 m) á Akrafjalli síðan hún
byrjaði að ganga á fjallið í júní 2015.
„Þetta eru mun fleiri ferðir en ég
hélt,“ segir hún eftir að hafa tekið
ferðirnar saman.
Iðkun íþrótta hefur aldrei skipað
stóran sess í lífi Önnu Júlíu. „Ég
æfði reyndar handbolta í stuttan
tíma sem barn og komst einu sinni í
liðið vegna góðrar mætingar, en
annars hef ég ekki verið virk í íþrótt-
um nema hvað ég hef farið í ræktina
eins og gengur og gerist.“
Akrafjall og Skarðsheiði, eins og
fjólubláir draumar, söng Raggi
Bjarna og Anna féll fyrir fyrrnefnda
fjallinu. „Ég er með það fyrir aug-
unum alla daga, bæði í vinnunni og
heima, og einn daginn ákvað ég að
kanna það nánar.“ Hún segist hafa
fengið eiginmanninn með sér á fjall-
ið í nokkrar ferðir í fyrstu, en annars
hafi hún yfirleitt verið ein á ferð með
sjálfri sér. „Það er dásamlegt að
ganga ein, það er mín hugleiðsla,
hreyfihugleiðsla.“
Árrisull göngugarpur
Anna Júlía á og rekur Classic hár-
stofu á Akranesi. Hún fer oft á fjallið
árla morguns fyrir vinnu og einnig
um helgar og hittir sjaldan aðra
göngugarpa á leiðinni. Gangan tekur
yfirleitt um 75 til 90 mínútur hverju
sinni. Hækkunin er um 500 metrar
og hver ganga ríflega fjórir kíló-
metrar.
„Ég er í miklum samskiptum við
fólk og þess vegna er gott að hreinsa
hugann með því að ganga á Háa-
hnúk,“ segir hún. „Og ég fer alltaf
sömu leið.“ Hún segir að klettabeltið
sunnan Berjadalsár í byrjun upp-
göngunnar hafi verið svolítill far-
artálmi fyrir sig til þess að byrja
með. Það sé bæði bratt og fara þurfi
varlega. „Mér óx fljótt ásmegin og
finnst lítið mál að fara þessa leið
núna. Ég læt veðrið ekki stöðva mig
nema ef vindurinn er mikið meiri en
10 metrar á sekúndu, þá fer ég ekki,
því þá er enn hvassara uppi.“
Anna segist hafa upplifað allar
tegundir af veðri á göngunni og oft
hafi útsýnið verið frábært til allra
átta en komið hafi fyrir að hún hafi
rétt séð niður á tærnar á sér. „Gang-
an gefur mér fyrst og fremst góða
hreyfingu og andlega ró,“ segir hún.
„Svo er hver ferð sigur í sjálfu sér og
gefur af sér mikla vellíðan.“
Þegar Anna byrjaði að ganga á
Akrafjallið 2015 var hugmyndin að
fara upp einu sinni í viku en þegar
árið var á enda hafði hún farið 100
ferðir. „Ég fann hvað þetta gerði
mér gott og hélt því uppteknum
hætti, setti mér það markmið að
gera enn betur. Árið eftir gekk ég
202 sinnum á Háahnjúk eða fjórum
sinnum í viku að meðaltali og setti
nýtt persónulegt met sem ég reikna
nú ekki með að ég reyni að bæta.“
Hún bætir við að skemmtilegast sé
að ganga á veturna. „Það er engu
líkt að ganga inn í myrkrið og vet-
urinn,“ leggur hún áherslu á og tek-
ur fram að hún reyni að hugsa sem
minnst á leiðinni og sé hvorki með
tónlist eða mælt mál í eyrunum.
„Það besta er að hlusta á náttúr-
una og leyfa huganum að reika og
smám saman færist yfir mann friður
og fallegar hugsanir. Ég er því alltaf
léttari í skapi að hverri ferð lokinni
enda ekki annað hægt því það er svo
mikil núvitund að vera ein á gangi í
náttúru fjallsins.“
Friður og fallegar
hugsanir á göngu
Akrafjall Anna Júlía Þorgeirsdóttir er með fjallið fyrir augum alla daga.
Anna Júlía Þorgeirsdóttir hefur gengið nær 600 sinnum á Háahnúk
Háihnúkur Anna Júlía hefur gengið á toppinn nær 600 sinnum.