Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 41
Tíðni mígrenikasta
minnkaði verulega
Fjöldi rannsókna hafa sýntfram á að þarmaflóran gegnilykilhlutverki í samspili garna og
heila (gut-brain-axis) og getur ójafnvægi
í þarmaflórunni m.a. tengst ýmsum
taugasjúkdómum. Tenging milli tauga- og
meltingarfærasjúkdóma getur hugsanlega
verið afleiðing aukins gegndræpis í
þörmunum þar sem óæskleg efni úr þeim
ná að komast út í blóðrásina og valda
ýmiskonar bólgum. Gagnlegir stofnar af
örverum í þörmunum gegna lykilhlutverki
í að styðja við heilbrigði meltingarfæranna
ásamt því að viðhalda og bæta virkni
þarmanna og breyta þannig ónæmissvörun
ásamt því að draga úr bólgum.
Ójafnvægi á þarmaflóru
Þegar ójafnvægi kemst á þarmaflóruna
(örveruflóruna) í meltingarveginum, koma
fram óþægindi sem geta verið af ýmsum
toga. Þetta er t.d. :
n Uppþemba
n Brjóstsviði
n Harðlífi/niðurgangur
n Sveppasýkingar
n Húðvandamál
n Höfuðverkur/mígreni
n Iðraólga (IBS)
Mataræði, lyf og streita
Það er ýmislegt sem getur valdið ójafnvægi
á þarmaflórunni þannig að við finnum fyrir
óþægindum. Slæmt mataræði hefur mikil
áhrif og eins og alltaf þá eru unnin matvæli
og sykur þar fremst í flokki. Lyf eins og
sýklalyf, sýrubindandi lyf og gigtarlyf eru
slæm fyrir þarmaflóruna og svo getur
streita einnig haft alvarlegar afleiðingar.
Rannsóknir á Bio Kult
Í stærstu tvíblindu samanburðarrannsókn*
sem gerð hefur verið á tengslum
þarmaflóru við höfuðverki og mígreni
hefur verið sýnt fram á að Bio Kult, sem
inniheldur 14 stofna af góðgerlum, getur
dregið verulega úr tíðni og alvarleika
mígrenis hjá fullorðnum.
Í rannsókninni fengu 100 sjúklingar sem
greindir hafa verið með langvarandi
mígreni annað hvort Bio-Kult® Advanced
(14 góðgerlastofna; 4 milljarða gerla á dag)
eða lyfleysu í 8-10 vikur. Niðurstöðurnar
sýndu að tíðni mígreniskasta hafði
verulega minnkað hjá rannsóknarhópnum
samanborið við lyfleysuhópinn eða um 40-
45%. Styrkur mígrenikastanna dróst einnig
saman um 29-31%.
Bio Kult Migréa
Bio-Kult Migréa er háþróuð góðgerlablanda
sem inniheldur einnig magnesíum og B6-
vítamín en það tvennt stuðlar að eðlilegri
starfsemi taugakerfisins og dregur úr
þreytu og lúa. Rannsóknir benda til þess
að magnesíum geti aukið mót-stöðu gegn
streitu á meðan B6 stuðlar að eðlilegri
starfsemi ónæmiskerfisins og að því að halda
reglu á hormónastarfseminni.
Bio Kult Migréa er ný vara í Bio Kult
góðgerlalínunni sem margir kannast við.
Hver vara er sérstök og hönnuð til að vinna á
eða draga úr ákveðnum einkennum. Migréa,
eins og nafnið bendir til, er þróað með það í
huga að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru og
draga úr höfuðverkjum. Eins og fram kemur
hér að framan eru tengsl milli þarmaflóru
og annarar likamsstarfsemi vel þekkt og er
talið að léleg þarmaflóra geti m.a. haft áhrif á
höfuðverki og tíðni þeirra.
Bio Kult Migréa inniheldur:
n 14 góðgerlastofna
(2 milljarðar gerla í hverju hylki)
n B6 - vítamín
n Magnesíum
Hylki og innihald er vegan og hentar einnig
fyrir ófrískar konur.
Heilbrigður lífsstíll
Eins og ávallt þá þarf að huga vel að
lífsstílnum og tileinka sér heilbrigt líferni.
Sofa nóg, hreyfa sig daglega, drekka vatn
og borða hreinan og óunninn mat. Forðast
óreglu, sykur og áfengi í óhófi og muna að
þakka hvern dag og vera glaður. Við getum
öll náð ótrúlegum árangri ef viljinn er til
staðar.
* https://journals.sagepub.com/ : The effects
of a multispecies probiotic supplement on
inflammatory markers and episodic and chronic
migraine characteristics: A randomized double-
blind controlled trial.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana
„Niðurstöðurnar sýndu að tíðni mígreniskasta hafði verulega minnkað
hjá rannsóknarhópnum samanborið við lyfleysuhópinn eða um 40-
45%. Styrkur mígrenikastanna dróst einnig saman um 29-31%“
Bio-Kult Migréa
Hvítari tennur – bjartara bros
NuPearl®32x Advanced Teeth Whitening
er sérlega auðvelt í notkun.
Mjúkur sílikon gómur, Led ljós, hvíttunarefni og
hvíttunarpenni saman í kassa og svo er hægt að kaupa áfyllingar
Náttúruleg innihaldsefni og jurtir.
n Getur hvíttað um allt að 8 tóna
n Lýsir bletti á tönnum sem myndast með árunum vegna
kaffdrykkju, reykinga, víns ofl.
n Öruggt fyrir glerunginn og extra milt vegna
náttúrulegra innihaldsefna og jurta.
n Hentar einnig viðkvæmum tönnum
n Mælt með af tannlæknum
Útsölustaðir: Flest apótek.
Þarmaflóran gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í heilsufari
okkar, hvort sem um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu.
Bio Kult getur dregið verulega úr tíðni höfuðverkja og mígrenis.