Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
Lagersala
Tískufatnaður og heimilsvara
Föstudag 4. okt. kl. 15-19 Laugardag 5. okt. kl. 11-16
2.-5. október
Í dag 3. okt. kl. 15-19
EDDA
HEILDVERSLUN
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Loftslagsmál voru í deiglunnií Flensborgarskóla í Hafn-arfirði sl. þriðjudag, 1.október, sem er raunar af-
mælisdagur skólans, sem hóf starf-
semi sína árið 1882. Dagur þessi er
jafnan nýttur í skólanum til þess
ræða og fræða um álitamál sem ber
hátt í samfélaginu á hverjum tíma.
Fjallað hefur verið um jafn-
réttismál og flóttamenn og nú má
segja að blasað hafi við að ræða um
hlýnun andrúmsloftsins og þær
breytingar sem af því leiða. Þannig
mætti á annan tug fyrirlesara í Flens-
borg á mánudaginn og sagði hver frá
ákveðnum þáttum umhverfismála
sem síðan voru rökræddir frekar.
Meðal þeirra sem lögðu orð í belg var
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra, nýkomin af loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í New York.
Meðvituð um ógnir
„Umhverfismálin eru mikilvæg
og mikið rædd meðal ungs fólks.
Flestir á mínum aldri eru meðvitaðir
um ógnirnar sem að okkur steðja og
þá líka að við þurfum að breyta lífs-
venjum okkar í þágu umhverfisins,“
segir Arna Rún Skúladóttir. Hún er á
þriðja ári, nemandi á raunvísinda-
braut Flensborgarskóla og mun – ef
að líkum lætur – útskrifast með stúd-
entspróf næsta vor.
Að undanförnu hefur Arna tekið
þátt í umhverfisstarfi sem fer fram
innan skólans, sett fram ýmsar
áhugaverðar spurningar og tekið þátt
í verkefnum. Er hún einnig í nýstofn-
aðri umhverfisnefnd nemendafélags
Flensborgar. Þá er umhverfisfræði
orðin skyldugrein allra nemenda við
skólann. „Öll þurfum við og getum
lagt eitthvað af mörkum í umhverfis-
málum og unnið gegn hlýnun jaðar og
lofslagsbreytingum Sjálf er ég að
vinna í því að ganga eða hjóla oftar í
skólann en ég geri, draga úr plast-
notkun og sömuleiðis að minnka
matarsóun. Þar byrjar maður á ein-
földu atriðunum eins og því að taka
bara mátulega mikið á diskinn í einu.
Býð öðrum að klára skammtinn minn
ef ég er orðin södd,“ segir Arna Rún
og heldur áfram: „Við Íslendingar
hendum miklu af mat. Til að draga úr
matarsóun getum við farið frekar oft-
ar í verslun og keypt minna í einu í
stað þess að fara sjaldnar og gera
stór innkaup. Sem dæmi má nefna að
ef mikið er til í ísskápnum, er alltaf
hætta á að eitthvað gleymist og
skemmist og endi í ruslinu.“
Frábært frumkvæði
Fræðsla er mikilvæg í um-
hverfismálum; að leita sér upplýsinga
og taka þátt í krafti þekkingar. „Við
fylgjumst öll með Gretu Thunberg.
Frumkvæði hennar er frábært. Ef
fólk hlustar ekki á Gretu ætti það að
leggja sig eftir því sem sérfræðingar
segja, því staðreyndirnar liggja fyrir.
Jörðin er að hlýna og haldi fram sem
horfi getur farið illa. Því er ég sam-
mála og vil leggja þessu málefnum
lið,“ segir Arna og að lokum: „Nei, ég
hef ekki farið á baráttufundina vegna
loftslagsmála sem verið hafa að und-
anförnu, enda eru þeir á skólatíma.
Hins vegar ættu skólar að gefa nem-
endum eitthvert svigrúm til að taka
þátt í slíkum viðburðum enda snertir
málefnið alla.“
Þess má geta að við upphaf dag-
skrár í Flensborg afhentu Kolbrún
María Einarsdóttir, oddviti nemenda,
og Magnús Bernharðsson skóla-
meistari Berginu – Headspace – ráð-
gjafarstöð fyrir ungt fólk – 400 þús-
und króna styrk sem safnað var í
Flensborgarhlaupinu 17. september.
Sigþóra Bergsdóttir frá Berginu
veitti upphæðinni viðtöku.
Við þurfum að breyta lífsvenjum
Fróðleikur í Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði. Lofts-
lagsmálin voru rædd og
forsætisráðherra lagði
orð í belg. Allir þurfa að
leggja sitt af mörkum,
segir nemandi.
Ljósmynd/Aðsend
Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir ræddi umhverf-
ismál við nemendur, nýkomin af loftslagsráðstefnu SÞ.
AFP
Fyrirmynd Greta Thunberg hefur
haft mikil áhrif á viðhorf ungs fólks.
Ljósmynd/Aðsend
Stuðningur Magnús Þorkelsson skólameistari, Sigur-
þóra Bergsdóttir og Kolbrún María Einarsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framtíðin Umhverfismálin eru mikilvæg. Flestir á mínum aldri eru meðvitaðir um ógnirnar, segir Arna Rún.
Vetrarstarf Karlakórs Hveragerðis
er nú hafið og verður kórinn með
tónleika í Hveragerðiskirkju næst-
komandi laugardag, 5. október,
klukkan 16. Heiðursgestir þarna
verða söngvararnir Ólafur M. Magn-
ússon, Jón Magnús Jónsson og Ás-
dís Rún Ólafsdóttir. Undirleikari
með þeim verður Arnhildur Val-
garðsdóttir. Sérstök hljómsveit
kemur fram á tónleikunum, skipuð
Sigurgeir Skafta Flosasyni, Unni
Birnu Björnsdóttur, Rögnvaldi
Pálmasyni og Örlygi Atla Guð-
mundssyni, en sá síðastnefndi er
stjórnandi og undirleikari kórsins.
Lagaval á tónleikunum verður létt
og skemmtilegt. Einsöng með kórn-
um syngur Arnar Gísli Sæmunds-
son. Undirleikari og stjórnandi kórs-
ins er Örlygur Atli Guðmundsson.
Miðaverð verður kr. 2.500 en frítt
fyrir börn 12 ára og yngri.
Nú eru þrjú ár frá því að Karlakór
Hveragerðis var stofnaður og hefur
þátttaka í kórnum farið fram úr
björtustu vonum, en að jafnaði
syngja á milli 35 og 40 karlar með
kórnum á öllum aldri. Eftir haust-
tónleikana heldur kórinn í söng-
ferðalag til Suður-Tíról á Ítalíu þar
sem allt það helsta á svæðinu verð-
ur skoðað, auk þess sem tónleikar
verða haldnir og félagar og makar
þeirra munu skemmta sér saman í
vikutíma.
Hausttónleikar Karlakórs Hveragerðis
Lögin eru létt og skemmtileg
Söngur Karlakór Hveragerðis er fjölmennur og hér sjást nokkrir liðsmenn.