Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
Diðrik Kristófersson Nekron opnar
einkasýningu í sal SÍM, Hafnarstræti
16, í dag kl. 17 og mun einnig sýna á
samsýningunni Torgi-listamessu sem
opin verður 4.-6. október á Korpúlfs-
stöðum. Verk Diðriks eru um 40
talsins og gerð sérstaklega fyrir
þessar tvær sýningar. Um helmingur
verkanna verður á sal SÍM og helm-
ingur á messunni.
„Myndirnar eru einfaldlega svart-
ar og gerðar með akrýlmálningu á
striga, en þykk málningin er nýtt til
að byggja upp formin svo að þau rísi
þrívíð upp úr striganum sem „re-
lief“,“ segir Diðrik m.a. í tilkynn-
ingu.
Andlit Eitt af verkum Diðriks, unnið
með þykkri akrýlmálningu á striga.
Þykk málning byggir upp form
Claire Denis, heiðursgestur Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík, RIFF, tekur við heiðursverð-
launum hátíðarinnar á Bessastöð-
um í dag úr hendi forseta Íslands,
Guðna Th. Jóhannessonar. Denis er
frönsk og hefur leikstýrt kvik-
myndum sem hlotið hafa mikið lof
og hlýtur hún verðlaunin fyrir
framúrskarandi listræna sýn.
Denis verður í meistaraspjalli í
Norræna húsinu í dag kl. 11, mun
þar ræða við rithöfundinn Auði Övu
Ólafsdóttur um feril sinn og verk.
Klukkan 15 verður kvikmynd henn-
ar Chocolat sýnd í Bíó Paradís og
mun Denis kynna hana.
Denis er ein þekktasta kvik-
myndagerðar-
kona heims og er
hvað þekktust
fyrir kvikmynd
sína Beau Trava-
il frá árinu 1999
og segir á vef
RIFF að sú mynd
sé talin ein besta
kvikmynd tíunda
áratugarins.
Nýjasta kvikmynd hennar, High
Life, kom út í fyrra og er einnig
sýnd á RIFF sem og Chocolat,
Nenette et Boni og Un beau soleil
intérieur. „Denis er þekkt fyrir
áhugaverð sjónarhorn þar sem
jaðarhópar og mismunandi menn-
ingarheimar fá vægi og rödd sína
heyrða,“ segir m.a. um leikstjórann
á vef RIFF. Hátíðin stendur yfir til
og með 6. október og má nálgast
frekari upplýsingar á riff.is.
Denis og Auður í
meistaraspjalli
Claire Denis
Forlagið er umsvifamest íslenskra
bókaútgefenda að vanda og gefur
út fjölda nýrra skáldverka, ævi-
sagna og fræðirita fyrir börn og
fullorðna.
Sterkasta kona í heimi er skáld-
saga eftir Steinunni Helgadóttur,
fjölskyldusaga um leitina að ham-
ingjunni, breyskleika og óvænta
krafta.
Korngult hár, grá augu eftir Sjón
er einnig skáldsaga en segir frá
Gunnari Kampen, ungum Reykvík-
ingi í málaflokki þjóðernissinna í
Vesturbænum á 6. áratug síðustu
aldar.
Væntanlegt er sjálfstætt fram-
hald Verjanda Óskars Magnús-
sonar og heitir Dýrbítar.
Við erum ekki morðingjar er
önnur skáldsaga Dags Hjartar-
sonar, sem var tilnefndur til Bók-
menntaverðlauna Evrópusam-
bandsins fyrir fyrstu skáldsögu
sína.
Helköld sól Lilju Sigurðardóttur
er glæpasaga um fjölskyldur og
flókin sambönd, leynilega banka-
reikninga og ást á villigötum.
Einnig er væntanleg skáldsaga
eftir Arnald Indriðason en að vanda
fæst ekkert uppgefið um titil eða
innihald fyrr en bókin kemur út.
Delluferðin heitir söguleg skáld-
saga eftir Sigrúnu Pálsdóttur og
varpar ljósi á meðferð Íslendinga á
menningarverðmætum og afstöðu
þeirra til þeirra.
HKL ástarsaga eftir Pétur
Gunnarsson dregur upp mynd af
metnaðarfullu skáldi í upphafi ferils
síns, ástum hans og lífsátökum.
Pétur leitar fanga víða, til dæmis í
einkabréfum, minnisbókum, tíma-
ritum og verkum Nóbelsskáldsins.
Tilfinningabyltingin er skáldsaga
um skilnað eftir Auði Jónsdóttur,
sem byggð er á persónulegri
reynslu hennar. Frásögnin spannar
fyrsta árið eftir að söguhetjan
gengur út úr hjónabandi sínu á nýj-
um, rauðum strigaskóm, en fjallar
ekki síður um árin þar á undan,
jafnvel alla ævi parsins og fólksins
sem að því stendur.
Vetrargulrætur er smásagnasafn
eftir Rögnu Sigurðardóttur sem fer
með lesandann í tímaferðalag frá
samtíma aftur á átjándu öld.
Forlagið gefur út sex ljóðabækur
fyrir jólin. Í vikunni kom út bókin
Velkomin eftir Bubba Morthens,
þar sem Bubbi yrkir meðal annars
um hlutskipti flóttamanna og við-
horf þeirra sem ekki eru á flótta.
Væntanleg er bókin Heimskaut
eftir Gerði Kristnýu. Í bókinni er
víða leitað fanga í heimskautaferð-
um, blíðri og óblíðri náttúrunni og
sögulegum atburðum.
Dimmumót Steinunnar Sigurðar-
dóttur kemur út á 50 ára útgáfuaf-
mæli Steinunnar, sem er eitt af höf-
uðskáldum okkar. Bókin er hug-
vekja um jökla og framtíð þeirra
með áherslu á Vatnajökul, sem
Steinunn sjálf tengist föstum bönd-
um og hefur horft á hann hverfa
smám saman sl. ár.
Einnig eru væntanlegar ljóða-
bækur frá Fríðu Ísberg, sem nefn-
ist Leðurjakkaveður, Hönnu Óla-
dóttur, sem nefnist Stökkbrigði og
er fyrsta bók hennar, og Kristínu
Eiríksdóttur, sem ber heitið Kær-
astinn er rjóður.
Af bókum almenn efnis er fyrst
að nefna Skjáskot Bergs Ebba, sem
kom út fyrir stuttu, en á morgun
kemur út Um tímann og vatnið eft-
ir Andra Snæ. Rauður þráður bók-
arinnar er hlýnun jarðar og bráðn-
un jökla. Þessi bók er að mörgu
leyti persónulegri en Drauma-
landið, hér tekur hann ýmsar frá-
sagnir úr eigin reynsluheimi, t.a.m.
viðtöl við Dalai Lama og fjölskyldu-
sögur, og setur þær í stærra sam-
hengi. Samhliða útgáfu bókarinnar
verður Andri með fyrirlestraröð í
Borgarleikhúsinu undir sama nafni.
Árni Snævarr rekur ævi franska
vísindamannsins Josephs Pauls
Gaimard (1793-1858) í bókinni Mað-
urinn sem Ísland elskaði. Jónas
Hallgrímsson tileinkaði Gaimard
ljóð sitt „Þú stóðst á Heklu tindum
hám“, sem af mörgum er talið eitt
það fegursta sem ort hefur verið á
íslensku. Bókin er afrakstur
margra ára heimildarvinnu höfund-
ar og í henni eru birtar margar
sögulegar ljósmyndir.
Síldarævintýri Páls Baldvins
Baldvinssonar geymir einnig mikið
af myndum, en bókin er rúmlega
1.000 blaðsíðna saga síldarvinnslu á
Íslandi frá árdögum hennar til
blómaskeiðs og seinna hnignunar.
Aragrúi ljósmynda er í bókinni sem
margar koma nú í fyrsta sinn fyrir
almenningssjónir.
Einnig koma út Tíminn sefur eft-
ir Árna Einarsson, sem segir frá
ævafornum og miklum garðhleðsl-
um sem greina má í landslagi sums
staðar á landinu, Listin að vefa eft-
ir Ragnheiði Þórsdóttur, sem rekur
sögu vefnaðar á Íslandi, og
Schopka eftir Illuga Jökulsson.
Forlagið gefur út nokkrar ævi-
sögur og endurminningar fyrir
þessi jól. Óstýriláta mamma mín og
ég eftir Sæunn Kjartansdóttir segir
frá viðburðaríkri ævi móður Sæ-
unnar, Ástu Bjarnadóttur. Ásta fór
alla tíð sínar eigin leiðir í lífinu,
varð ung ekkja og gekk brösuglega
að takast á við afleiðingar þess og
að bera ábyrgð á fjórum ungum
börnum.
Guðjón Friðriksson ritar ævisögu
Halldórs Ásgrímssonar, segir frá
uppvexti hans á Vopnafirði og Höfn
í Hornafirði, sjómennsku og öðrum
störfum, stjórnmálaferli, baráttu-
og áhugamálum, sigrum og ósigr-
um. Sagt er ítarlega frá deilum um
kvótakerfi, úthafsveiðar, hvalveiðar,
Kárahnjúkavirkjun, Íraksstríðið og
fjölda annarra mála. Vinir og sam-
starfsmenn Halldórs leggja orð í
belg en einnig pólitískir andstæð-
ingar og aðrir sem höfðu kynni af
Halldóri og störfum.
Í Með sigg á sálinni rekur Einar
Kárason æviferil Friðriks Þórs
Friðrikssonar, sem hefur marga
fjöruna sopið. Í bókinni segir Frið-
rik frá viðburðaríku lífshlaupi, sem
einkennist bæði af sigrum og ósigr-
um, en kannski fyrst og fremst af
fjölskrúðugri mannlífsflóru og hæfi-
leikanum til að sjá húmorinn í alls
kyns aðstæðum.
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir,
dóttir Jakobínu Sigurðardóttur,
segir frá ævi móður sinnar í bók-
inni Jakobína, saga konu og skálds.
Ævisaga sterkrar konu og skálds,
en um leið frásögn dóttur sem leit-
ast við að skilja móður sína.
Að vanda koma fjölmargar ís-
lenskar barnabækur út hjá Forlag-
inu fyrir jólin. Nýkomin er út bókin
Kjarval eftir Margréti Tryggva-
dóttur, þar sem yngri kynslóðinni
gefst færi á að kynnast merkasta
listmálara Íslandssögunnar.
Kopareggið eftir Sigrúnu Eld-
járn er framhald af Silfurlyklinum
sem kom út á síðasta ári. Tvær
Lárubækur koma út eftir Birgittu
Haukdal og Rosalingarnir eftir
Kristjönu Friðbjörnsdóttur, höfund
bókanna um Fjólu Fífils og Ólafíu
Arndísi.
Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur
hlaut Barnabókaverðlaun Reykja-
víkur og var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna á síðasta
ári. Nornin er framhald Ljónsins
og gerist mörgum árum síðar.
Annað framhald er Nærbuxna-
njósnarar Arndísar Þórarinsdóttur,
en Nærbuxnaverksmiðja hennar
kom út á síðasta ári.
Þinn eigin tölvuleikur er sjötta
og síðasta bókin í hinum vinsæla
bókaflokki Ævars Þórs Benedikts-
sonar. Í bókinni er lesandinn sögu-
hetjan og ræður ferðinni. Hann
sogast inn í stórhættulegan tölvu-
leik og til að komast aftur heim
þarf að berjast við uppvakningaher,
sleppa frá mannætuplöntum, leysa
óleysanlega ráðgátu, temja dreka
og vinna landsleik í fótbolta. Yfir
120 mismunandi endar.
Í Draumaþjófi Gunnars Helga-
sonar skapar Gunnar spánnýjan
söguheim, en hann hefur á undan-
förnum árum sent frá sér fjölda
vinsælla barnabóka og hlotið Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin og
Bókaverðlaun barnanna hafa sex
sinnum fallið honum í skaut.
Einnig kemur út Ferðin á heims-
enda: Leitin að vorinu eftir Sigrúnu
Elíasdóttur, sem er fyrsta bók
hennar, Ungfrú fótbolti eftir Bryn-
hildi Þórarinsdóttur, fyrrverandi
handhafa Íslensku barnabóka-
verðlaunanna, og Fjallaverksmiðja
Íslands eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur.
arnim@mbl.is
Glæpir og gaman, fræði og fjör
Forlagið gefur út fjölda nýrra skáldverka, ævisagna og fræðirita fyrir börn og fullorðna
Á þriðja tug íslenskra skáldverka væntanlegur og ellefu ævisögur og bækur almenns eðlis
Arndís
Þórarinsdóttir
Dagur
Hjartarson
Fríða
Ísberg
Auður
Jónsdóttir
Ragna
Sigurðardóttir
Gerður
Kristný
Kristín
Eiríksdóttir
Steinunn
Sigurðardóttir
Árlega vinnur Creditinfo ítarlega greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir
nú Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í tíunda sinn. Framúrskarandi
fyrirtæki hafa sterkari stöðu en önnur, eru traustir samstarfsaðilar og betur í stakk
búin að veita góða þjónustu til framtíðar.
Sjáðu hvaða fyrirtæki skara fram úr á creditinfo.is
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
HAFA STERKARI STÖÐU
Í KRAFTI