Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
119.995
SÉRTILBOÐ Í NÓVEMBER Á ROQUE NUBLO
aa
GranCanaria
27. nóvember í 14 nætur
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslendingar drukku um fimm millj-
ónir lítra af orkudrykkjum á síðasta
ári. Hefur markaðurinn fimmfaldast
á undanförnum fjórum árum. Alls
nemur smásöluvirði orkudrykkja
eitthvað á fjórða milljarð króna.
Þetta er mat sérfræðinga sem Morg-
unblaðið hefur rætt við.
Ótrúlegur vöxtur hefur verið í
neyslu orkudrykkja hér á landi síð-
ustu ár. Orðið orkudrykkir er hér
notað sem samheiti en drykkirnir
eru misjafnir að gerð. Mestur vöxtur
hefur verið í drykkjum sem innihalda
mikið magn af koffíni. Nýlega
greindi Morgunblaðið frá því að velta
heildsölunnar Core ehf. sem meðal
annars flytur inn orkudrykki frá
Nocco jókst um 57% í fyrra frá árinu
áður. Rekstrartekjur félagsins námu
1,8 milljörðum króna árið 2018.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er Nocco stærsta vörumerk-
ið á orkudrykkjamarkaði á Íslandi.
Nocco fæst í fjölda útgáfa en sam-
anlagt er vörumerkið töluvert stærra
en keppinautarnir. Heimildarmenn
Morgunblaðsins fullyrða að Nocco
ráði yfir þriðjungi markaðarins.
Næstu drykkir á eftir í vinsældum
eru Monster og Red Bull. Þar á eftir
koma Euroshopper og Collab, sem er
íslenskur koffíndrykkur með kolla-
geni. Orkudrykkjamarkaðurinn er
þó síbreytilegur og vörumerki koma
og fara hratt. Allt í allt má líklegt
telja að um 15 milljónir eininga af
orkudrykkjum hafi verið seldar hér á
landi í fyrra, samkvæmt mati sér-
fræðinga sem blaðið hefur rætt við.
Neytendur á öllum aldri
Stefán Magnússon, markaðs- og
sölustjóri hjá Coca-Cola European
Partners á Íslandi, segir að þróunin
hafi verið hröð síðustu ár. „Fyrir
ekki svo voru þessir drykkir hálfgert
tabú og menn stigu varlega til jarðar
við að markaðssetja þá og selja. Svo
komu á markað drykkir sem voru
tengdir heilsu, með amínósýrum og
fleiru slíku, og þar af leiðandi fór
íþróttafólk og crossfit-iðkendur að
hampa þeim. Þá varð þetta viður-
kennt. Í dag er þetta orðið normal-
íserað og maður sér fólk á miðjum
aldri setja 2-3 orkudrykki í körfuna í
matvöruversluninni.“ Ársæll Þór
Bjarnason, annar eigandi Core ehf.
sem flytur inn Nocco sagði í samtali
við Morgunblaðið á dögunum að vin-
sældir drykkjarins væru einmitt til
marks um að neysluvenjur fólks
hefðu breyst. „Það er margt fólk í
dag sem hefur minnkað kaffidrykkju
eða mun jafnvel aldrei fara á þann
vagn. Þetta virðist einhvern veginn
vera tilhneigingin í dag. Þetta eru
orðnir ávaxtakoffíndrykkir sem fólk
neytir í stað þess að vera með kaffi og
mjólk.“
Íslenskur drykkur vinsæll
Nocco er sænskt vörumerki en
drykkirnir eru framleiddir í Austur-
ríki. Hið sama gildir um Red Bull.
Ljóst er að stærstur hluti orku-
drykkja er fluttur hingað til lands
með tilheyrandi kolefnisfótspori. Þó
vekur athygli að Collab hefur náð
talsverðum vinsældum undanfarna
mánuði og segir Gunnar B. Sigur-
geirsson, aðstoðarforstjóri Ölgerðar-
innar, að drykkurinn virðist höfða til
nokkuð breiðs hóps. „Við erum mjög
ánægð með viðtökurnar. Drykkurinn
er samstarf okkar og Feel Iceland og
inniheldur meðal annars kollagen
sem unnið úr hágæða íslensku
fiskhráefni. Það er frábært að ís-
lensk framleiðsla og íslensk uppfinn-
ing skuli ná að skjóta rótum á þess-
um markaði. Svo er gaman að segja
frá því að við höfum fengið fyrir-
spurnir erlendis frá. Það eru margir
áhugasamir um Collab enda er svona
drykkur hvergi til annars staðar í
heiminum.“
Það virðist því sem enn sé pláss á
orkudrykkjamarkaði og Gunnar seg-
ir að Ölgerðin hafi einmitt nú í sept-
ember sett annan alíslenskan drykk
á markað, 105, sem er kolsýrt vatn
með koffíni. Viðtökur við honum lofi
sömuleiðis góðu.
Mikið hefur verið fjallað um
skaðsemi orkudrykkja. Varað er
við að börn neyti þeirra enda
séu þau afar viðkvæm fyrir
áhrifum koffíns. Í vikunni var
vakin athygli á því að í fram-
haldsskólum landsins hefði
dagleg neysla orkudrykkja með
koffíni aukist úr 22% í 55% frá
2016-2018. Bent var á það í
tengslum við Forvarnardaginn
að svo mikil koffínneysla hefði
mjög slæm áhrif á svefnvenjur,
þrek og líðan ungs fólks.
Hafa slæm
áhrif á svefn
VARAÐ VIÐ SKAÐSEMI
Þrír milljarðar í orkudrykki
Ótrúlegur vöxtur í neyslu orkudrykkja hér á landi síðustu ár Markaðurinn fimmfaldast á fjórum
árum Nocco vinsælast með ríflega þriðjungs markaðshlutdeild Breytt neyslumynstur hjá mörgum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Orkudrykkir Mikið úrval er í boði í verslunum og eftirspurn er gífurleg.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Stefnt er að því að taka upp nýtt
óháð þjónustukerfi fyrir börn og er
ætlunin að frumvarp verði lagt fram
á næsta vorþingi. Þetta staðfestir
Ásmundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, í samtali við
Morgunblaðið en tillögur að þessu
kerfi voru kynntar á ráðstefnunni
Breytingar í þágu barna sem haldin
var í Norðurljósasal Hörpu í gær.
Eru tillögurnar afrakstur vinnu
þverpólitískrar þingmannanefndar
sem skipuð var af félags- og barna-
málaráðherra og stýrihóps stjórn-
arráðsins í málefnum barna sem
skipaður er fulltrúum sex ráðuneyta.
„Það sem þarna er verið að leggja
til er alveg ný hugsun í velferðar-
þjónustu við börn sem byggist á því
að við ætlum að búa til þrjú stig í
þjónustu fyrir börn óháð því hver
þjónustuveitandinn er,“ segir Ás-
mundur. „Óháð því hvort það er ríki
eða sveitafélög, óháð því hvort það er
heilbrigðiskerfi eða grunnskólinn, fé-
lagsþjónusta sveitarfélaga eða eitt-
hvað annað,“ útskýrir Ásmundur.
Að sögn hans miðar fyrsta stigs
þjónustan að því að veita mun meiri
grunnþjónustu til barna á fyrsta
stigi, það er að segja að koma fyrr
inn í líf barns sem þarfnast ein-
hverrar aðstoðar.
Annars stigs þjónustan segir Ás-
mundur að felist í því að þegar fyrsta
stigs þjónustan dugi ekki til séu
útbúin sérstök teymi í kringum barn-
ið með fulltrúum allra þjónustuaðila
þess. Þriðja stigs þjónustan felst síð-
an í samstarfi aðila eins og greining-
armiðstöðvarinnar og barna- og ung-
lingageðdeildar og að boðin yrðu
sértækari úrræði í barnavernd.
„Við ætlum okkur að forma þetta í
sérstakri löggjöf og yfirskriftin með
þeirri löggjöf væri þjónusta við börn
óháð kerfi,“ segir Ásmundur sem
segir að nú hefjist vinna í að búa til
beinagrind fyrir löggjöfina.
Ekki innleitt á einni nóttu
„Þetta er ekki eitthvað sem verður
innleitt á einni nóttu. Þetta er stór
kerfisbreyting,“ segir hann
„Við ætlum okkur að leggja fram
þetta frumvarp á vorþingi sem miðar
að því að innleiða þessi þjónustustig
og tryggja samtalið á milli allra kerf-
anna. Samhliða þurfa að koma breyt-
ingar á ýmsum sérlögum, til dæmis
hvað varðar félagsmálaráðuneytið.
Það þarf breytingar á barnavernd-
arlögum, lögum um félagsþjónustu
sveitarfélaga, lögum um greiningar
og ráðgjafarmiðstöð ríkisins og svo
framvegis og framvegis. Við þurfum
að breyta kerfinu svo að það tali við
þessa nýju hugsun,“ segir Ásmund-
ur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytingar í þágu barna Tillögur að óháðri þjónustu fyrir börn voru kynntar á ráðstefnu í Hörpu í gær.
Vilja bjóða betri þjónustu
fyrir börn óháð kerfi
Tillagan sögð ný hugsun í velferðarþjónustu við börn
Fimm tonna fiskibáti með einum
manni um borð var bjargað eftir að
leki kom að bátnum norður af Bakka-
firði í gær. Báturinn var tekinn í tog
og dreginn af nærstöddum fiskibát,
Tóta, inn til Bakkafjarðar og var hífð-
ur í land um korter fyrir sjö í gær-
kvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg barst
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
beiðni um aðstoð rétt fyrir fjögur síð-
degis en fiskibáturinn Tóti var kom-
inn á vettvang um hálftíma eftir
beiðnina og var því dregið töluvert úr
viðbúnaði en björgunarbáturinn Jón
Kr. kom á vettvang um kl. 17.20. Jón
Kr. og Tóti fylgdust svo að með lask-
aða bátinn til hafnar á Bakkafirði.
Davíð Már Bjarnason, upplýsinga-
fulltrúi Landsbjargar, segir að björg-
unaraðgerðin hafi tekist merkilega
vel og þakkar nærstöddum bátum að
ekki hafi farið verr.
„Það sem í raun og veru bjargaði
þessu öllu saman og gerði það að
verkum að þetta fór betur en á horfð-
ist í fyrstu voru nærstaddir bátar,
þessi Tóti sem kom að hinum tiltölu-
lega fljótt,“ segir Davíð í samtali við
Morgunblaðið. „Þegar hann var kom-
inn gat hann veitt aðstoð sem skipti
sköpum og allt fór betur en á horfðist
í fyrstu.“ rosa@mbl.is
Björguðu manni á
fiskibáti í Bakkafirði