Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 59
Sagt er að styttugerðarmenn-
irnir í Kumartuli séu afkomendur
handverksmanna sem komu sér
fyrir í Kalkútta fljótlega eftir að
Bretar stofnuðu borgina á
átjándu öld, og tóku að sér mót-
un ýmiskonar skrautverka. Eft-
irmyndir guðanna eins og þær
birtast í dag hafa verið gerðar í
meira en eina öld, af kynslóð eft-
ir kynslóð. Þegar líður að vori
byrja handverksmennirnir að
móta verkin; þeir skapa skrokk-
ana úr stráum og síðan er smurt
á þá tveimur lögum af leir sem er
mótaður í þessi mjúku og fínu
form. Þetta er talsverð fjöldafram-
leiðsla þar sem hver meistari eða
fjölskylda gerir allnokkrar eins
fígúrur. Höfuðin eru mótuð sér og
síðan fest á skrokkana. Að lokum
eru guðirnir málaðir og skreyttir
eftir kúnstarinnar reglum, og fá
nælonhárkollur.
Eftir hátíðarhöldin í október
taka handverksmennirnir að sér
annars konar verkefni, móta til að
mynda eftirmyndir kvikmynda-
stjarna eða garðálfa. Þar til guð-
irnir kalla að nýju. En hátíðar-
höldunum með guðunum hefur
venjulega lokið með því að þeir
hafa verið bornir í fljótið eða út í
vatn, þar sem þeir leysast vita-
skuld upp.
Nú hefur það þó verið bannað,
til að eiturefni í málningunni ber-
ist ekki í vatnið. Misvel er farið
eftir því en sumir skilja guðina
bara eftir á árbakkanum og þar
rignir þá niður – sem er óneitan-
lega nöturleg sjón.
Litlausar Í einni skemmunni eru raðir af vígalegum guðlegum verum sem enn á eftir að bera litinn á.
Málari Litun guðanna þykir mikil nákvæmnisvinna og sjá fullorðnu meist-
ararnir venjulega um síðustu og fínlegustu handtökin, málun andlitanna.
Endalokin Ein margra guðamynda sem skildar hafa verið eftir við Hooghly-
fljótið þar sem hún verður vatni og vindum að bráð og eykur við ruslið.
Margbrotnar Þegar styttir upp um stund sviptir einn skaparinn plasti af
flóknu verki sem hann hefur verið að móta utandyra og er enn að leira.
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
RESOURCE SENIOR ACTIVE
MÁLTÍÐ Í FLÖSKU
Senior Active frá Nestle er drykkur sem framleiddur er með þarfir aldraðra í huga.
Orkurík næring sem inniheldur prótein, D-vítamíni og kalsíum.
Ein flaska samsvarar heilli máltíð.
Fæst í öllum helstu apótekum