Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 48
Elínrós Líndal elinros@mbl.is Kristín Maríella hefur síðustu ár helgað líf sitt fræðslutengdri vinnu þar sem hún fjallar um og miðlar til foreldra hugmyndafræði virðing- arríks uppeldis. Hún hefur haldið fjölda foreldranámskeiða bæði hér á landi sem og í Asíu og heldur úti vefnum respectfulmom.com þar sem hún skrifar um efnið. Orri Helgason vinnur sem ráðgjafi í stafrænni umbreytingu fyrir al- þjóðleg fyrirtæki. Þau búa nú á Balí og er for- vitnilegt að vita hvers vegna Balí varð fyrir valinu? „Þegar við bjuggum í Singapúr ferðuðumst við oft til Balí enda bara 2,5 klukkutíma ferðalag á milli staða. Frá því að við heimsóttum Balí fyrst hefur okkur langað til að setjast þar að og fá að njóta þess sem þessi töfrandi eyja hefur upp á að bjóða. Náttúran er mögnuð hér sem og ork- an á staðnum. Okkur finnst Balí bjóða upp á það umhverfi sem við höfum verið að leita að fyrir okkar fjölskyldu. Þegar við bjuggum í Singapúr var Orri á stöðugu ferða- lagi vegna vinnu en við vildum hægja á hjá okkur og koma á meira jafn- vægi á milli vinnu og samveru en Bali býður okkur upp á það að mörgu leyti. Hér á Balí eru líka spennandi möguleikar á óhefðbundnum skólum og dóttir okkar Ylfa sem er að verða 6 ára byrjaði einmitt í frábærum al- þjóðlegum Montessori-skóla núna í haust, en Montessori-stefnan rímar mjög vel við þau gildi sem við til- einkum okkur í uppeldi barnanna okkar svo að við erum rosalega glöð með að finna umhverfi sem styður svona vel við það sem við trúum á.“ Töfrandi hús á risastóru landi Hvað eruð þið að gera tengt endurhönnun á húsinu? „Þegar við fluttum út vorum við svo heppin að finna til leigu töfrandi hús sem stóð á risastóru landi. Þetta var 20 ára gamalt timburhús, byggt í hefðbundum indónesískum „Joglo“- stíl. Við fengum ódýra leigu á húsinu og bjuggum þar fyrstu mánuðina okkar á Balí. Húsið var í upp- runalegu ástandi og þurfti heilmikið viðhald. Vegna þessa ætluðum við í upphafi bara að búa þarna rétt á meðan við fyndum okkur framtíðar- húsnæði sem hentaði okkur og krökkunum betur. En það varð síðan svo að við ein- faldlega elskuðum að búa þarna. Það ríkti svo mikil friðsæld og fegurð yfir þessu einstaka húsi, ævintýralegum garðinum og dýralífinu sem fylgdi náttúrunni í kring. Það var þá sem við fórum að skoða það af alvöru hvort þetta gæti ekki bara orðið okk- ar framtíðarhúsnæði á Balí en eina leiðin var þá að gera það upp. Því meira sem við skoðuðum það að fara út í endurbætur á húsinu varð okkur ljóst að það myndi í raun borga sig best fyrir okkur að taka húsið alveg í sundur og grunna upp á nýtt. Verkefnið endaði þess vegna þannig að í staðinn fyrir að fara út í hefðbundnar endurbætur þá byggð- um við í raun nýtt hús í sömu mynd og upprunalega húsið.“ Hvernig eru „Joglo“-hús frá- brugðin hefðbundnum húsum? „Það sem er einkennandi fyrir „Joglo“ er að miðjan á þaki hússins er reist upp í einskonar spíss. Þessi gríðarháa þakmiðja hjálpar til við temprun hitastigs húsanna þar sem hitinn fær að stíga upp og svalara verður neðar í meginrými hússins. „Joglo“-hús eru að mestu leyti byggð úr timbri, en einföldum timbur- hliðum hússins er smellt á milli burð- arbita hússins, nánast eins og púslu- spil eða legókubbar. Þriðjungur af útveggjum „Joglos- ins“ okkar verður steyptur á meðan rest er úr timbri. Það sem er líka mjög sérstakt við byggingu þessara húsa er að það eru alltaf höfð skil þar sem veggir mæta þaki. Það er sem sagt í rauninni opið inn í húsið á öll- um hliðum en það er þannig sem við fáum mikilvæga hreyfingu á loftið í húsinu. Loftflæðið kælir loftið en kemur líka í veg fyrir rakamyndun, sem er gríðarlega mikilvægt því hér á Balí er auðvitað hitabeltisloftslag og mikill hiti og raki í lofti allan árs- ins hring.“ Flytja bráðlega inn í húsið Hvenær verður húsið tilbúið? „Við byrjuðum að byggja í júlí og stefnum á að flytja inn í nóvember á þessu ári. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta tekur í raun stuttan tíma! Þak- ið kláraðist í gær, alveg í tæka tíð þar sem rigningartímabilið fer einmitt að hefjast. Við höfum verið alveg gríðarlega heppin en það hefur ekki rignt einn einasta dag síðan við byrj- uðum að byggja. Öll steypa og allur efniviður hefur þannig fengið að haldast skraufþurr sem er mikil mildi þegar byggt er í þessu raka- mikla loftslagi.“ Hvað er gott húsnæði í þínum huga? „Gott húsnæði er einfalt, heim- ilislegt og mætir þörfum allra fjöl- skyldumeðlima. Þegar við vorum að teikna húsið upp á nýtt var mjög mikilvægt fyrir okkur að passa að húsið myndi mæta þörfum barnanna okkar jafn vel og okkar eigin. Gott rými fyrir leikaðstöðu í barna- herberginu þar sem nægt nátt- úrulegt ljós fær að flæða inn var til dæmis mikið atriði fyrir okkur, sem og rúmgott og fjölskylduvænt eldhús þar sem við elskum að elda með krökkunum.“ Hverjar eru helstu breytingar sem þið eruð að gera á húsinu? „Við lögðum upp með að end- urgera útlit og hönnun gamla húss- ins eins mikið og við gátum, meðal annars með því að endurnýta eins mikinn efnivið og við getum úr gamla húsinu. En það eru samt heilmiklar breytingar og viðbætur sem við fór- um út í. Í gamla húsinu var í raun bara eitt svefnherbergi en nú verða þau þrjú. Við teiknuðum nýjan aðal- inngang og breyttum staðsetningu á eldhúsi. Síðan er það auðvitað sund- laugin sem við erum að setja í garð- inn en það er örugglega sú viðbót sem við erum hvað spenntust fyrir.“ Dugleg að rækta sambandið Hvernig eru baðherbergin? „Við hönnuðum baðherbergin okk- ar í hefðbundnum Balístíl en hér eru baðherbergi oft utandyra, svokölluð „outdoor bahtrooms“. Hjá okkur verður þakskyggni yfir aðeins helm- ing baðherbergjanna. Inni á öðru baðherberginu verða líka tvö blóma- beð, sitt hvorum megin við sturtuna, þar sem við munum planta pálmum en það er einnig eitthvað sem maður sér oft inni á baðherbergjum hér.“ Hvað gerið þið hjónin saman úti? „Við Orri vinnum bæði mikið í gegnum netið en það býður okkur upp á visst frelsi og flæði. Við vinnum oftast saman á daginn, förum annaðhvort á svokallað „ca working space“ sem er nálægt þar sem við bú- um, eða setjumst niður með tölv- urnar á kaffihúsinu á horninu eða vinnum bara heima á náttslopp- unum. Orri er mjög áhugasamur um RespectfulMom og við vinnum náið saman að allskonar verkefnum. Í frítíma förum við mikið á strönd- ina með krakkana en við búum í strandbænum Canggu og svo elskum við að skella okkur saman í kalda pottinn og sánu á Amo sem er „spa“ hérna nálægt okkur. Það finnst okk- ur vera bestu deitin.“ Barnabók um jólin Hvað hefur Balí kennt þér? „Á hverjum einasta degi kennir Balí okkur að sleppa tökunum og treysta. Balí er nefnilega frekar óút- reiknanleg og villt, bæði í hversdeg- inum og líka í stóru myndinni. Ég held maður verði eiginlega að vera svolítið hugrakkur til að eiga heima á Balí. Því þú finnur ekki þetta hefð- bundna íslenska öryggi eða „com- fort“ hér. Við höfum lært að ef maður ætlar að rembast við að fara alltaf hefðbundnar leiðir og reyna að lifa lífinu hér eins og maður er vanur frá sínu heimalandi þá lendir maður ein- faldlega bara í vandræðum.“ Hvað er á döfinni hjá þér tengt vinnu? „Ég var einmitt að opinbera það fyrir nokkrum dögum að ég komi til með að gefa út barnabók um jólin. Forsala á bókinni minni muni hefjast í dag klukkan 13:00 á síðunni minni respectfulmom.co- m.Ég er að springa, ég er svo spennt! Bókin heitir „Stundum græt ég, stundum hlæ ég“ og er bók sem við- urkennir allar tilfinningar. Þetta er einmitt verkefni sem við Orri höfum verið að vinna náið sam- an en það er búið að vera alveg magnað að sjá þetta allt verða að veruleika!“ Náin fjölskylda í framandi umhverfi Rómantík Það er rómantísk stemning bæði úti á veröndinni sem og inn í húsinu á Balí. Framkvæmdir Helgi og Kristín ákváðu að endurbyggja húsið sitt á Balí. Framkvæmdirnar hafa gengið vel og nota þau fallegt tréverk úr gamla húsinu til að halda einkennum þess. Ljósmyndir/Aðsendar Fjölskylda Kristín Maríella og Orri Helgason hafa fundið besta staðinn til að búa á fyrir fjölskylduna, sem er á Balí. Húsið stendur á stórri lóð. Þau ætla að setja litla sundlaug í garðinn. Kristín Maríella og Orri Helgason hafa síðustu 5 ár verið búsett með börnunum sínum tveim- ur í Suðaustur-Asíu. Þau bjuggu í Singapúr í rúmlega 4 ár en fyrir um ári fluttu þau til Balí þar sem þau byggja sér nú hús í hefðbundnum stíl Balíbúa. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.