Morgunblaðið - 03.10.2019, Blaðsíða 48
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Kristín Maríella hefur síðustu ár
helgað líf sitt fræðslutengdri vinnu
þar sem hún fjallar um og miðlar til
foreldra hugmyndafræði virðing-
arríks uppeldis. Hún hefur haldið
fjölda foreldranámskeiða bæði hér á
landi sem og í Asíu og heldur úti
vefnum respectfulmom.com þar sem
hún skrifar um efnið.
Orri Helgason vinnur sem ráðgjafi
í stafrænni umbreytingu fyrir al-
þjóðleg fyrirtæki.
Þau búa nú á Balí og er for-
vitnilegt að vita hvers vegna Balí
varð fyrir valinu?
„Þegar við bjuggum í Singapúr
ferðuðumst við oft til Balí enda bara
2,5 klukkutíma ferðalag á milli staða.
Frá því að við heimsóttum Balí fyrst
hefur okkur langað til að setjast þar
að og fá að njóta þess sem þessi
töfrandi eyja hefur upp á að bjóða.
Náttúran er mögnuð hér sem og ork-
an á staðnum. Okkur finnst Balí
bjóða upp á það umhverfi sem við
höfum verið að leita að fyrir okkar
fjölskyldu. Þegar við bjuggum í
Singapúr var Orri á stöðugu ferða-
lagi vegna vinnu en við vildum hægja
á hjá okkur og koma á meira jafn-
vægi á milli vinnu og samveru en Bali
býður okkur upp á það að mörgu
leyti.
Hér á Balí eru líka spennandi
möguleikar á óhefðbundnum skólum
og dóttir okkar Ylfa sem er að verða
6 ára byrjaði einmitt í frábærum al-
þjóðlegum Montessori-skóla núna í
haust, en Montessori-stefnan rímar
mjög vel við þau gildi sem við til-
einkum okkur í uppeldi barnanna
okkar svo að við erum rosalega glöð
með að finna umhverfi sem styður
svona vel við það sem við trúum á.“
Töfrandi hús á risastóru landi
Hvað eruð þið að gera tengt
endurhönnun á húsinu?
„Þegar við fluttum út vorum við
svo heppin að finna til leigu töfrandi
hús sem stóð á risastóru landi. Þetta
var 20 ára gamalt timburhús, byggt í
hefðbundum indónesískum „Joglo“-
stíl. Við fengum ódýra leigu á húsinu
og bjuggum þar fyrstu mánuðina
okkar á Balí. Húsið var í upp-
runalegu ástandi og þurfti heilmikið
viðhald. Vegna þessa ætluðum við í
upphafi bara að búa þarna rétt á
meðan við fyndum okkur framtíðar-
húsnæði sem hentaði okkur og
krökkunum betur.
En það varð síðan svo að við ein-
faldlega elskuðum að búa þarna. Það
ríkti svo mikil friðsæld og fegurð yfir
þessu einstaka húsi, ævintýralegum
garðinum og dýralífinu sem fylgdi
náttúrunni í kring. Það var þá sem
við fórum að skoða það af alvöru
hvort þetta gæti ekki bara orðið okk-
ar framtíðarhúsnæði á Balí en eina
leiðin var þá að gera það upp.
Því meira sem við skoðuðum það
að fara út í endurbætur á húsinu
varð okkur ljóst að það myndi í raun
borga sig best fyrir okkur að taka
húsið alveg í sundur og grunna upp á
nýtt. Verkefnið endaði þess vegna
þannig að í staðinn fyrir að fara út í
hefðbundnar endurbætur þá byggð-
um við í raun nýtt hús í sömu mynd
og upprunalega húsið.“
Hvernig eru „Joglo“-hús frá-
brugðin hefðbundnum húsum?
„Það sem er einkennandi fyrir
„Joglo“ er að miðjan á þaki hússins
er reist upp í einskonar spíss. Þessi
gríðarháa þakmiðja hjálpar til við
temprun hitastigs húsanna þar sem
hitinn fær að stíga upp og svalara
verður neðar í meginrými hússins.
„Joglo“-hús eru að mestu leyti byggð
úr timbri, en einföldum timbur-
hliðum hússins er smellt á milli burð-
arbita hússins, nánast eins og púslu-
spil eða legókubbar.
Þriðjungur af útveggjum „Joglos-
ins“ okkar verður steyptur á meðan
rest er úr timbri. Það sem er líka
mjög sérstakt við byggingu þessara
húsa er að það eru alltaf höfð skil þar
sem veggir mæta þaki. Það er sem
sagt í rauninni opið inn í húsið á öll-
um hliðum en það er þannig sem við
fáum mikilvæga hreyfingu á loftið í
húsinu. Loftflæðið kælir loftið en
kemur líka í veg fyrir rakamyndun,
sem er gríðarlega mikilvægt því hér
á Balí er auðvitað hitabeltisloftslag
og mikill hiti og raki í lofti allan árs-
ins hring.“
Flytja bráðlega inn í húsið
Hvenær verður húsið tilbúið?
„Við byrjuðum að byggja í júlí og
stefnum á að flytja inn í nóvember á
þessu ári. Það er alveg ótrúlegt hvað
þetta tekur í raun stuttan tíma! Þak-
ið kláraðist í gær, alveg í tæka tíð þar
sem rigningartímabilið fer einmitt að
hefjast. Við höfum verið alveg
gríðarlega heppin en það hefur ekki
rignt einn einasta dag síðan við byrj-
uðum að byggja. Öll steypa og allur
efniviður hefur þannig fengið að
haldast skraufþurr sem er mikil
mildi þegar byggt er í þessu raka-
mikla loftslagi.“
Hvað er gott húsnæði í þínum
huga?
„Gott húsnæði er einfalt, heim-
ilislegt og mætir þörfum allra fjöl-
skyldumeðlima. Þegar við vorum að
teikna húsið upp á nýtt var mjög
mikilvægt fyrir okkur að passa að
húsið myndi mæta þörfum barnanna
okkar jafn vel og okkar eigin. Gott
rými fyrir leikaðstöðu í barna-
herberginu þar sem nægt nátt-
úrulegt ljós fær að flæða inn var til
dæmis mikið atriði fyrir okkur, sem
og rúmgott og fjölskylduvænt eldhús
þar sem við elskum að elda með
krökkunum.“
Hverjar eru helstu breytingar sem
þið eruð að gera á húsinu?
„Við lögðum upp með að end-
urgera útlit og hönnun gamla húss-
ins eins mikið og við gátum, meðal
annars með því að endurnýta eins
mikinn efnivið og við getum úr gamla
húsinu. En það eru samt heilmiklar
breytingar og viðbætur sem við fór-
um út í. Í gamla húsinu var í raun
bara eitt svefnherbergi en nú verða
þau þrjú. Við teiknuðum nýjan aðal-
inngang og breyttum staðsetningu á
eldhúsi. Síðan er það auðvitað sund-
laugin sem við erum að setja í garð-
inn en það er örugglega sú viðbót
sem við erum hvað spenntust fyrir.“
Dugleg að rækta sambandið
Hvernig eru baðherbergin?
„Við hönnuðum baðherbergin okk-
ar í hefðbundnum Balístíl en hér eru
baðherbergi oft utandyra, svokölluð
„outdoor bahtrooms“. Hjá okkur
verður þakskyggni yfir aðeins helm-
ing baðherbergjanna. Inni á öðru
baðherberginu verða líka tvö blóma-
beð, sitt hvorum megin við sturtuna,
þar sem við munum planta pálmum
en það er einnig eitthvað sem maður
sér oft inni á baðherbergjum hér.“
Hvað gerið þið hjónin saman úti?
„Við Orri vinnum bæði mikið í
gegnum netið en það býður okkur
upp á visst frelsi og flæði. Við
vinnum oftast saman á daginn, förum
annaðhvort á svokallað „ca working
space“ sem er nálægt þar sem við bú-
um, eða setjumst niður með tölv-
urnar á kaffihúsinu á horninu eða
vinnum bara heima á náttslopp-
unum.
Orri er mjög áhugasamur um
RespectfulMom og við vinnum náið
saman að allskonar verkefnum.
Í frítíma förum við mikið á strönd-
ina með krakkana en við búum í
strandbænum Canggu og svo elskum
við að skella okkur saman í kalda
pottinn og sánu á Amo sem er „spa“
hérna nálægt okkur. Það finnst okk-
ur vera bestu deitin.“
Barnabók um jólin
Hvað hefur Balí kennt þér?
„Á hverjum einasta degi kennir
Balí okkur að sleppa tökunum og
treysta. Balí er nefnilega frekar óút-
reiknanleg og villt, bæði í hversdeg-
inum og líka í stóru myndinni. Ég
held maður verði eiginlega að vera
svolítið hugrakkur til að eiga heima á
Balí. Því þú finnur ekki þetta hefð-
bundna íslenska öryggi eða „com-
fort“ hér. Við höfum lært að ef maður
ætlar að rembast við að fara alltaf
hefðbundnar leiðir og reyna að lifa
lífinu hér eins og maður er vanur frá
sínu heimalandi þá lendir maður ein-
faldlega bara í vandræðum.“
Hvað er á döfinni hjá þér tengt
vinnu?
„Ég var einmitt að opinbera það
fyrir nokkrum dögum að ég komi til
með að gefa út barnabók um jólin.
Forsala
á bókinni minni muni hefjast í dag
klukkan 13:00 á
síðunni minni respectfulmom.co-
m.Ég er að springa, ég er svo spennt!
Bókin heitir „Stundum græt ég,
stundum hlæ ég“ og er bók sem við-
urkennir allar tilfinningar.
Þetta er einmitt verkefni sem við
Orri höfum verið að vinna náið sam-
an en það er búið að vera alveg
magnað að sjá þetta allt verða að
veruleika!“
Náin fjölskylda í framandi umhverfi
Rómantík Það er rómantísk stemning bæði úti á veröndinni sem og inn í húsinu á Balí.
Framkvæmdir Helgi og Kristín ákváðu að endurbyggja húsið sitt á Balí. Framkvæmdirnar hafa gengið vel og nota þau fallegt tréverk úr gamla húsinu til að halda einkennum þess.
Ljósmyndir/Aðsendar
Fjölskylda Kristín Maríella og Orri Helgason hafa fundið besta staðinn til að búa á fyrir fjölskylduna, sem er á Balí.
Húsið stendur á stórri lóð. Þau ætla að setja litla sundlaug í garðinn.
Kristín Maríella og Orri
Helgason hafa síðustu 5
ár verið búsett með
börnunum sínum tveim-
ur í Suðaustur-Asíu.
Þau bjuggu í Singapúr í
rúmlega 4 ár en fyrir
um ári fluttu þau til Balí
þar sem þau byggja sér
nú hús í hefðbundnum
stíl Balíbúa.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019