Morgunblaðið - 03.10.2019, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 03.10.2019, Qupperneq 41
Tíðni mígrenikasta minnkaði verulega Fjöldi rannsókna hafa sýntfram á að þarmaflóran gegnilykilhlutverki í samspili garna og heila (gut-brain-axis) og getur ójafnvægi í þarmaflórunni m.a. tengst ýmsum taugasjúkdómum. Tenging milli tauga- og meltingarfærasjúkdóma getur hugsanlega verið afleiðing aukins gegndræpis í þörmunum þar sem óæskleg efni úr þeim ná að komast út í blóðrásina og valda ýmiskonar bólgum. Gagnlegir stofnar af örverum í þörmunum gegna lykilhlutverki í að styðja við heilbrigði meltingarfæranna ásamt því að viðhalda og bæta virkni þarmanna og breyta þannig ónæmissvörun ásamt því að draga úr bólgum. Ójafnvægi á þarmaflóru Þegar ójafnvægi kemst á þarmaflóruna (örveruflóruna) í meltingarveginum, koma fram óþægindi sem geta verið af ýmsum toga. Þetta er t.d. : n Uppþemba n Brjóstsviði n Harðlífi/niðurgangur n Sveppasýkingar n Húðvandamál n Höfuðverkur/mígreni n Iðraólga (IBS) Mataræði, lyf og streita Það er ýmislegt sem getur valdið ójafnvægi á þarmaflórunni þannig að við finnum fyrir óþægindum. Slæmt mataræði hefur mikil áhrif og eins og alltaf þá eru unnin matvæli og sykur þar fremst í flokki. Lyf eins og sýklalyf, sýrubindandi lyf og gigtarlyf eru slæm fyrir þarmaflóruna og svo getur streita einnig haft alvarlegar afleiðingar. Rannsóknir á Bio Kult Í stærstu tvíblindu samanburðarrannsókn* sem gerð hefur verið á tengslum þarmaflóru við höfuðverki og mígreni hefur verið sýnt fram á að Bio Kult, sem inniheldur 14 stofna af góðgerlum, getur dregið verulega úr tíðni og alvarleika mígrenis hjá fullorðnum. Í rannsókninni fengu 100 sjúklingar sem greindir hafa verið með langvarandi mígreni annað hvort Bio-Kult® Advanced (14 góðgerlastofna; 4 milljarða gerla á dag) eða lyfleysu í 8-10 vikur. Niðurstöðurnar sýndu að tíðni mígreniskasta hafði verulega minnkað hjá rannsóknarhópnum samanborið við lyfleysuhópinn eða um 40- 45%. Styrkur mígrenikastanna dróst einnig saman um 29-31%. Bio Kult Migréa Bio-Kult Migréa er háþróuð góðgerlablanda sem inniheldur einnig magnesíum og B6- vítamín en það tvennt stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa. Rannsóknir benda til þess að magnesíum geti aukið mót-stöðu gegn streitu á meðan B6 stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og að því að halda reglu á hormónastarfseminni. Bio Kult Migréa er ný vara í Bio Kult góðgerlalínunni sem margir kannast við. Hver vara er sérstök og hönnuð til að vinna á eða draga úr ákveðnum einkennum. Migréa, eins og nafnið bendir til, er þróað með það í huga að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru og draga úr höfuðverkjum. Eins og fram kemur hér að framan eru tengsl milli þarmaflóru og annarar likamsstarfsemi vel þekkt og er talið að léleg þarmaflóra geti m.a. haft áhrif á höfuðverki og tíðni þeirra. Bio Kult Migréa inniheldur: n 14 góðgerlastofna (2 milljarðar gerla í hverju hylki) n B6 - vítamín n Magnesíum Hylki og innihald er vegan og hentar einnig fyrir ófrískar konur. Heilbrigður lífsstíll Eins og ávallt þá þarf að huga vel að lífsstílnum og tileinka sér heilbrigt líferni. Sofa nóg, hreyfa sig daglega, drekka vatn og borða hreinan og óunninn mat. Forðast óreglu, sykur og áfengi í óhófi og muna að þakka hvern dag og vera glaður. Við getum öll náð ótrúlegum árangri ef viljinn er til staðar. * https://journals.sagepub.com/ : The effects of a multispecies probiotic supplement on inflammatory markers and episodic and chronic migraine characteristics: A randomized double- blind controlled trial. Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana „Niðurstöðurnar sýndu að tíðni mígreniskasta hafði verulega minnkað hjá rannsóknarhópnum samanborið við lyfleysuhópinn eða um 40- 45%. Styrkur mígrenikastanna dróst einnig saman um 29-31%“ Bio-Kult Migréa Hvítari tennur – bjartara bros NuPearl®32x Advanced Teeth Whitening er sérlega auðvelt í notkun. Mjúkur sílikon gómur, Led ljós, hvíttunarefni og hvíttunarpenni saman í kassa og svo er hægt að kaupa áfyllingar Náttúruleg innihaldsefni og jurtir. n Getur hvíttað um allt að 8 tóna n Lýsir bletti á tönnum sem myndast með árunum vegna kaffdrykkju, reykinga, víns ofl. n Öruggt fyrir glerunginn og extra milt vegna náttúrulegra innihaldsefna og jurta. n Hentar einnig viðkvæmum tönnum n Mælt með af tannlæknum Útsölustaðir: Flest apótek. Þarmaflóran gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í heilsufari okkar, hvort sem um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu. Bio Kult getur dregið verulega úr tíðni höfuðverkja og mígrenis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.