Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 4
Efla samstarf um útgáfuna Miðlar Árvakurs og CreditInfo á Íslandi hafa komist að samkomulagi um aukið samstarf í tengslum við verkefnið Framúrskarandi fyrirtæki sem síðarnefnda fyrirtækið hefur staðið fyrir síðastliðinn áratug. Síðustu tvö ár hefur Morgunblaðið haldið utan um útgáfu sérblaðs um þau fyrirtæki sem komast á lista CreditInfo yfir framúrskar- andi fyrirtæki. Í fyrra var einnig byggður upp vefur sem birtir listann og viðtöl við framkvæmdastjóra nokkurra fyrirtækja sem á honum eru. Samkvæmt nýjum sam- starfssamningi mun Árvakur annast útgáfu Framúrskar- andi-blaðsins næstu þrjú ár og þá er einnig stefnt að opn- un nýs og endurbætts vefs sem heldur utan um fyrrnefndar upplýsingar. Haraldur Johannessen, fram- kvæmdastjóri Árvakurs og ritstjóri Morgunblaðsins, sagði ánægjulegt að samstarf fyrirtækjanna héldi áfram, enda hefði það reynst farsælt á síðustu árum. Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri CreditInfo á Íslandi, sagði samstarfið hafa gengið vel. „Það er mikilvægt að koma upplýsingum um þau fyrir- tæki sem eru framúrskarandi á framfæri. Þar nýtist styrkur þeirra fjölbreyttu miðla sem Árvakur hefur á að skipa mjög vel,“ sagði Brynja. Listinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður birtur 23. október næstkomandi. Sama dag stendur CreditInfo fyrir viðburði í Hörpu í tengslum við útgáfu listans og verður hann í beinni útsendingu á mbl.is. Hinn 24. október mun blaðið Framúrskarandi fyrirtæki fylgja Morgunblaðinu.  Víðtæk umfjöllun um Framúrskarandi fyrirtæki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samstarf Brynja Baldursdóttir og Haraldur Johann- essen undirrituðu samninginn fyrir hönd fyrirtækjanna. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 UM PANAMASKURÐINN & COSTA RICA NÁNAR Á UU.IS/SIGLINGAR EÐA Í SÍMA 585 4000 VERÐ FRÁ 409.900 KR. ÁMANNM.V. 2 FULLORÐNA 6. - 18. MARS 2020 LÚXUS SIGLING Á ISLAND PRINCESS FARARSTJÓRI BJÖRN ÁGÚST JÓNSSON Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bleika slaufan, sem er árlegt átaks- verkefni Krabbameinsfélagsins til- einkað baráttunni gegn krabba- meini hjá konum, gengur vel í ár. Margir tóku þátt í bleika deginum sem var í gær og skrýddu sig með bleiku slaufunni, klæddust bleiku eða lýstu skammdegið upp með bleiku ljósi. Það er gert til þess að konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og sam- stöðu. „Við höfum fengið góðar undir- tektir. Það er búið að rigna yfir okkur myndum af bleikri stemn- ingu af öllu landinu. Það er gaman að sjá fyrirtæki og einstaklinga nota tækifærið til að styðja átakið og nota um leið sem hópefli,“ segir Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir, kynningarstjóri Krabbameins- félagsins. Sala á bleiku slaufunni gengur vel og hefur farið fram úr björtustu vonum, að sögn Sigríðar. Hún telur að hún seljist hraðar en undanfarin ár. Sölunni lýkur nk. þriðjudag. Endanlegar tölur um afrakstur söfnunarinnar liggja ekki fyrir. Bleiki dagurinn haldinn hátíðlegur í gær í tilefni átaks Krabbameinsfélagsins Stemningin bleik um allt land Morgunblaðið/Eggert Bleikt Guðmundur Pálsson vefstjóri færði Sigríði Sólan tertusneið á bleika deginum hjá starfsfólki Krabbameinsfélagsins. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Undirbúningur að næstu stigum framkvæmda við nýjan Landspítala stendur yfir. Stefnt er að því að for- val vegna uppsteypu meðferðar- kjarna verði auglýst á næstunni. Samhliða er unnið að fullnaðarhönn- un á meðferðarkjarna og rannsókn- arhúsi og undirbúningsvinnu við bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús. Umfangsmiklar jarðvegsfram- kvæmdir á lóð Landspítala ganga vel, að sögn Gunnars Svavarssonar, framkvæmdastjóra Nýs Landspít- ala. Verktakinn, ÍAV, mun ljúka sinni vinnu á vormánuðum. Í fram- haldinu verður haldið áfram með gatnagerð á svæðinu. Stefnt er að því að uppsteypa húss fyrir meðferðarkjarna hefjist 1. apríl nk. Gunnar segir að vonir standi til þess að hægt verði að auglýsa forval á næstunni. Umfangið er það mikið að auglýsa þarf útboðið á Evrópska efnahagssvæðinu. Reiknað er með að fyrst verði forval og síðan lokað útboð þar sem valið verður á milli þeirra sem koma best út úr forvali. Þarfagreining að hefjast Samhliða vinnu við útboð er verið að ljúka fullnaðarhönnun á meðferð- arkjarnanum og rannsóknarhúsi. Stefnt er að því að jarðvinna á lóð rannsóknarhúss hefjist á næsta ári. Þá er að hefjast undirbúnings- vinna að síðustu húsunum í Hring- brautarverkefninu. Það er bíla- stæða-, tækni- og skrifstofuhús. Loks má nefna að Nýjum Landspít- ala hefur verið falið að gera þarfa- greiningu fyrir hús fyrir dag-, göngu- og legudeildir. Sú vinna er í upphafsfasa, að sögn Gunnars. Forval verður auglýst á næstunni  Uppsteypa meðferðarkjarna nýs Landspítala næst á dagskrá  Unnið að fullnaðarhönnun kjarnans og rannsóknarhúss  Jafnframt er bygging bílastæða-, tækni- og skrifstofuhúss undirbúin Ljósmynd/Nýr Landspítali Framkvæmdasvæði Unnið er að gerð nýrra bílastæða og lokafrágangur við sex akreina nýja akstursleið inn á lóð Landspítala stendur yfir. Nýr Landspítali þarf að skila um 5.000 séruppdráttum vegna út- gáfu byggingarleyfis fyrir með- ferðarkjarna. Byggingarfulltrúi hefur nýtt sér heimild til að út- vista vinnunni við að yfirfara þessar verkteikningar til hæfra en óháðra aðila. Ríkiskaup hafa auglýst forval fyrir nýjan Land- spítala vegna væntanlegs út- boðs á þessari vinnu. Er þetta í fyrsta skipti sem þannig er staðið að málum í stóru verki. Teikningar yfirfarnar FORVAL STENDUR YFIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.