Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 44
44 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 Undankeppni EM karla H-RIÐILL: Ísland – Frakkland .................................. 0:1 Olivier Giroud 66.(víti) Tyrkland – Albanía ................................. 1:0 Cenk Tosun 90. Andorra – Moldóva.................................. 1:0 Marc Vales 63. Rautt spjald: Radu Ginsari (Moldóvu) 55. Staðan: Frakkland 7 6 0 1 20:4 18 Tyrkland 7 6 0 1 15:2 18 Ísland 7 4 0 3 10:10 12 Albanía 7 3 0 4 10:10 9 Andorra 7 1 0 6 1:14 3 Moldóva 7 1 0 6 2:18 3  Á mánudag leika Ísland – Andorra, Frakkland – Tyrkland og Moldóva – Alban- ía A-RIÐILL: Tékkland – England................................ 2:1 Jakub Brabec 9., Zdenek Ondrasek 85. – Harry Kane 5.(víti) Svartfjallaland – Búlgaría...................... 0:0 Staðan: England 5 4 0 1 20:6 12 Tékkland 6 4 0 2 11:9 12 Kósóvó 5 2 2 1 10:10 8 Búlgaría 6 0 3 3 5:11 3 Svartfjallaland 6 0 3 3 3:13 3 B-RIÐILL: Portúgal – Lúxemborg ........................... 3:0 Bernardo Silva 16., Cristiano Ronaldo 65., Goncalo Guedes 89. Úkraína – Litháen ................................... 2:0 Ruslan Malinovsky 29., 58. Staðan: Úkraína 6 5 1 0 13:1 16 Portúgal 5 3 2 0 13:4 11 Serbía 5 2 1 2 10:12 7 Lúxemborg 6 1 1 4 5:11 4 Litháen 6 0 1 5 4:17 1 Undankeppni EM U21 karla 1. riðill: Armenía – Lúxemborg............................. 2:0 Staðan: Írland 4 3 1 0 7:1 10 Ísland 2 2 0 0 9:1 6 Ítalía 2 1 1 0 5:0 4 Armenía 3 1 0 2 3:7 3 Svíþjóð 1 0 0 1 1:3 0 Lúxemborg 4 0 0 4 0:13 0  Svíþjóð og Ísland mætast í dag. Vináttuleikur U19 karla Svíþjóð – Ísland........................................ 1:1 Jack Lahne 60. – Andri Guðjohnsen 41.  Ísland sigraði 5:4 í vítaspyrnukeppni. Þýskaland Köln – Wolfsburg..................................... 0:5  Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Wolfsburg og lék allan leikinn. KNATTSPYRNA HANDBOLTI Grill 66 deild karla Fjölnir U – Grótta ................................ 26:27 KA U – FH U........................................ 35:30 Staðan: Þróttur 3 3 0 0 104:85 6 Þór Ak. 3 3 0 0 92:78 6 KA U 4 3 0 1 134:106 6 Haukar U 3 2 0 1 81:68 4 FH U 4 2 0 2 115:110 4 Grótta 4 2 0 2 100:106 4 Víkingur 3 1 0 2 67:71 2 Valur U 3 1 0 2 84:90 2 Fjölnir U 4 0 0 4 94:120 0 Stjarnan U 3 0 0 3 60:97 0 Grill 66 deild kvenna Fylkir – FH........................................... 18:25 Víkingur – Grótta ................................. 23:29 ÍR – Selfoss ........................................... 23:25 Staðan: Selfoss 4 4 0 0 98:80 8 Fram U 3 3 0 0 99:71 6 ÍR 4 3 0 1 107:92 6 Grótta 4 3 0 1 104:98 6 FH 4 3 0 1 108:95 6 HK U 3 2 0 1 75:73 4 ÍBV U 3 2 0 1 79:81 4 Fylkir 4 1 0 3 76:90 2 Valur U 3 0 0 3 66:76 0 Fjölnir 3 0 0 3 69:82 0 Stjarnan U 3 0 0 3 72:90 0 Víkingur 4 0 0 4 94:119 0 Þýskaland B-deild: Rimpar – Bietigheim........................... 23:26  Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim. Hamburg – Konstanz.......................... 32:25  Aron Rafn Eðvarðsson varði 5 skot á 30 mínútum í marki Hamburg. Krefeld – Dormagen ........................... 30:26  Arnar Gunnarsson þjálfar Krefeld. Frakkland B-deild: Cesson-Rennes – Cherbourg.............. 26:26  Geir Guðmundsson skoraði ekki fyrir Cesson-Rennes. Áskorendabikar karla 2. umferð, fyrri leikur: H71 – Maribor Branik......................... 25:24  Einar Jónsson þjálfar H71 frá Hoyvík í Færeyjum. Seinni leikurinn fer einnig fram í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn á morgun. Í LAUGARDAL Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Ísland er komið í afar erfiða stöðu í baráttunni um farseðilinn á EM karla í fótbolta næsta sumar þrátt fyrir að mörgu leyti mjög góða frammistöðu gegn heimsmeisturum Frakka í Laugardalnum í gærkvöld. Frakkar unnu 1:0 með marki úr vítaspyrnu um miðjan seinni hálfleik, víti sem gerði Antoine Griezmann um leið að óvini Íslands númer eitt þessa dagana. Þetta var fyrsta tap Íslands í und- ankeppni stórmóts í sex ár. Það þurfti heimsmeistarana til að vígið félli og hin skynsamlega spilamennska ís- lenska liðsins og gríðarlega bar- áttugleði sem hefur einkennt liðið dugði ekki að þessu sinni. Eins og naumt tapið gegn Frökkum í gær, eftir lokamínútur þar sem ís- lenska liðið lagði allt í sölurnar til að jafna, væri ekki nóg þá bárust þær fréttir frá Tyrklandi um leið og loka- flautið gall að Tyrkir hefðu skorað sig- urmark í blálokin gegn Albönum. Þessi niðurstaða gerir stöðu Íslands mjög viðkvæma og menn ættu að hafa í huga hversu litlu munaði að staðan væri mun betri. Í sem einföldustu máli má segja að til að komast á EM þurfi Ísland núna ekki bara að vinna síðustu þrjá leiki sína, við Andorra, Tyrkland og Mol- dóvu, heldur treysta því að Griezmann og félagar geri allt sem þeir geti til að vinna Tyrki í París á mánudaginn, í leik þar sem að jafntefli færi langt með að koma báðum liðum á EM. Ég horfði á Didier Deschamps tala um Tyrkjaleikinn í gær og ég er viss um að hann ætlar sér að sjá franska liðið vinna í París á mánudag og tryggja sér um leið farseðilinn á EM fyrir framan sitt fólk. Í raun hef ég mikla trú á að Frakkar vinni Tyrki og þá er Ísland aftur með örlögin í sínum hönd- um en þarf að sækja sigur til Tyrk- lands eins og í undankeppni HM, auk þess að vinna slök lið Andorra og Mol- dóvu. Gangi þetta ekki eftir er Ísland á leið í fjögurra liða umspil í mars, um eitt laust sæti á EM, og það á enn eftir að koma í ljós hverjir andstæðingarnir yrðu þar. Ísland myndi að öllum lík- indum fá heimaleik í undanúrslitum umspilsins en svo yrði dregið um hvort liðanna fengi að spila úrslitaleik umspilsins á heimavelli. Umspil við Búlgaríu og Ísrael? Miðað við núverandi stöðu í und- anriðlum EM myndi Ísland mæta ein- hverju þessara fjögurra liða í undan- úrslitum umspils á Laugardalsvelli; Búlgaríu, Ísrael, Ungverjalandi eða Rúmeníu, og svo Sviss eða einhverju fyrrnefndra fjögurra liða í úrslitum. Það myndi hvað þetta varðar hjálpa Íslandi ef Sviss kæmist beint á EM (höldum með Sviss gegn Danmörku í dag), og staða í öðrum riðlum und- ankeppninnar héldist óbreytt, því þá yrðu engar af sterkustu þjóðum Evr- ópu með Íslandi í umspilinu. Íslenska liðið varð fyrir miklu áfalli á 14. mínútu gegn Frökkum í gær þegar Jóhann Berg Guðmundsson meiddist. Jóhann hefur lítinn þátt get- að tekið í þessari undankeppni og þó að fjórar af stærstu stjörnum Frakka (Mbappé, Kanté, Pogba og Lloris) hafi einnig glímt við meiðsli þá var ekki minni skellur fyrir Ísland að vera án Jóhanns og Arons Einars Gunn- arssonar. Öryggið í íslenska liðinu minnkaði strax og sérstaklega virtist Guðlaugur Victor Pálsson, sem óvænt byrjaði í stöðu hægri bakvarðar, óöruggur eftir að Jóhann var ekki lengur fyrir fram- an hann. Frakkar sköpuðu sér ekki mikið af færum í fyrri hálfleiknum en tækifæri Íslands til að beita skyndi- sóknum voru sömuleiðis illa nýtt. Í þau fáu skipti sem boltinn vannst á álitlegu svæði á miðjunni var óðagotið annaðhvort of mikið, þegar ein auka- sending hefði opnað sóknina mun bet- ur en löng sending upp á von og óvon, eða menn of lengi að taka ákvörðun. Jón Daði Böðvarsson, sem leysti Jó- hann af hólmi en fór yfir á vinstri kant í stað Arnórs Ingva Traustasonar, og Birkir Bjarnason áttu þó ágætar til- raunir um miðjan fyrri hálfleikinn. Birkir átti magnaðan leik á miðj- unni og fyllti vel í skarðið fyrir lands- liðsfyrirliðann, eins og ég bjóst reynd- ar við þrátt fyrir að Birkir hafi lengi verið án félagsliðs og leikformið eftir því. Hann ræður greinilega vel við Griezmann lét sig og heimavígið falla  Naumt tap gegn heimsmeisturum Frakka sem Ísland þarf nú greiða frá Tyrkir náðu sér í dýrmæt stig í slagnum við Frakka og Íslendinga um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu í gærkvöld þeg- ar þeir lögðu Albana að velli í hörkuleik í Istanbúl. Cenk Tosun, samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, sigurmark Tyrkjanna, 1:0, í uppbótartíma leiksins. Þar með eru Tyrkir og Frakkar með mjög góða stöðu, sex stigum á und- an Íslandi þegar þrjár umferðir eru eftir. Andorra fékk sín fyrstu stig með því að sigra Moldóvu, 1:0, á heimavelli. Tosun var Tyrkj- unum dýrmætur AFP Hetjan Cenk Tosun tekur á rás eftir sigurmark Tyrkja gegn Albönum. Englendingar máttu þola sitt fyrsta tap í undankeppni EM karla í knatt- spyrnu í gærkvöld þegar þeir biðu lægri hlut fyrir Tékkum á útivelli, 2:1. Evrópumeistarar Portúgals unnu Lúxemborg, 3:0, þar sem Cristiano Ronaldo skoraði sitt 700. mark á ferlinum. Harry Kane kom Englendingum yfir úr vítaspyrnu strax á 5. mínútu en það tók Tékk- ana aðeins fjórar mínútur að jafna með marki frá Jakub Brabec. Það var síðan Zdenek Ondrasek sem skoraði sigurmark Tékka á 85. mín- útu. England tapaði og Ronaldo 700 AFP 700 Cristiano Ronaldo fagnar áfangamarkinu í gærkvöld. 0:1 Olivier Giroud 66. úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Antoine Griez- mann. I Gul spjöldRagnar 63. (brot), Rúnar Már 63. (brot), Giroud 29. (mótmæli), Pavard 68. (brot), Tolisso 88. (brot) I Rauð spjöldEnginn. Ísland: (4-5-1) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Guðlaugur Victor Pálsson, Ragnar Sigurðsson, Kári Árnason, Ari Freyr Skúlason. Miðja: Jóhann Berg Guðmundsson (Jón ÍSLAND – FRAKKLAND 0:1 Daði Böðvarsson 15), Birkir Bjarna- son, Gylfi Þór Sigurðsson, Rúnar Már Sigurjónsson (Alfreð Finnbogason 72), Arnór Ingvi Traustason (Arnór Sigurðsson 81). Sókn: Kolbeinn Sig- þórsson. Frakkland: (4-3-3) Mark: Steve Mandanda. Vörn: Benjamin Pavard, Raphaël Varane, Clément Lenglet, Lucas Digne. Miðja: Blaise Matuidi, Moussa Sissoko, Corentin Tolisso. Sókn: Antoine Griezmann, Olivier Giroud (Wissam Ben Yedder 78), Kingsley Coman (Jonathan Ikoné 88). Skot: Ísland 4 (1), Frakkland 15 (7). Horn: Ísland 3, Frakkland 7. Dómari: Gianluca Rocchi, Ítalíu. Áhorfendur: 9.719. mHannes Þór Halldórsson Góð frammistaða hjá Hannesi í markinu. Varði oft vel og greip inn í þegar á þurfti að halda. Virkaði einfaldlega öruggur og rólegur í sínum aðgerð- um. Valdi rangt horn í vítaspyrnunni og átti því ekki möguleika. Guðlaugur Victor Pálsson Var sett- ur í hægri bakvörð. Ekki auðvelt verkefni fyrir hann að spila stöðu gegn heimsmeisturunum sem hann er ekki vanur að spila. Komst ágæt- lega frá sínu í vörninni í fyrri hálfleik en Frakkar sóttu meira fram vinstri kantinn í síðari hálfleik. mRagnar Sigurðsson Lék mjög vel að flestu leyti. Líkamlegir burðir hans eru verðmætir gegn líkamlega sterkum mönnum eins og Frökkum. Bjargaði vel oftar en einu sinni. m Kári Árnason Er iðulega sterkur í loftinu en ekki öfundsverður að glíma við Giroud í slíkri stöðu. Skallaði margar fyrirgjafir frá markinu. Nýtt- ist ekki í vítateig andstæðinganna að þessu sinni. Ari Freyr Skúlason Lék virkilega vel í fyrri hálfleik. Lenti í því að fá á sig vítaspyrnuna í þeim síðari. Fór þar í fremur glæfralega aðgerð í vítat- eignum og var refsað þótt brotið væri lítið. Jóhann B. Guðmundsson Stoppaði stutt við því miður. Fór meiddur af velli á 15. mínútu. mm Birkir Bjarnason Gerði vel á margan hátt í fjarveru Arons. Erfitt fyrir Birki að fara í gegnum leik sem þennan í engri leikæfingu. Var skyn- samur í varnarvinnunni og var með færslurnar á miðjunni á hreinu. Hélt boltanum afar vel og lék honum skyn- samlega. Rúnar Már Sigurjónsson Gerði ágæta hluti þegar hann fékk boltann. Braut af sér og gaf aukaspyrnu í að- draganda þess að Frakkarnir fengu vítaspyrnuna. Fór meiddur af velli á 73. mínútu. Arnór Ingvi Traustason Var nokkuð sprækur og þorði að halda boltanum. En í leik sem þessum eru fá tækifæri fyrir kantmenn til að sækja og skapa. Fór af leikvelli á 81. mínútu. mGylfi Þór Sigurðsson Harð- duglegur að venju og reyndi að pressa varnarmenn Frakka. Lét einnig finna fyrir sér í návígi. Erfitt fyrir hann að blómstra í leik þar sem Ísland er lítið með boltann. m Kolbeinn Sigþórsson Merkilegt að hann hafi náð að skila 90 mínútum og hann gerði það vel. Lét hafa fyrir sér og skapaði sér eitt skotfæri. Þeg- ar hann er inni á er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að Ísland geti skorað. Jón Daði Böðvarsson Kom inn á eft- ir 14 mínútur og þurfti að spila á kantinum sem hann er ekki vanur að gera með landsliðinu. Komst ágæt- lega frá sínu. Alfreð Finnbogason Kom ekki inn á fyrr en á 73. mínútu og fékk fá tæki- færi til að setja mark sitt á leikinn. Arnór Sigurðsson Kom inn á eftir 81 mínútu og kom lítið við sögu. Frammistaða íslensku leikmannanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.