Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
Minning Þorsteins Inga Sigfússon-
ar, prófessors, forstjóra Nýsköp-
unarmiðstövar Íslands og frum-
kvöðuls í vetnisnýtingu, var
heiðruð sérstaklega á Arctic Circle-
ráðstefnunni í Hörpu í fyrrakvöld.
Þorsteinn varð bráðkvaddur 15. júlí
síðastliðinn.
Athöfnin var liður í fundi banda-
ríska orkumálaráðuneytisins um
orkuskipti í samgöngum og nýtingu
hreinnar orku. Þorsteinn naut mik-
illar virðingar sem frumkvöðull á
því sviði á heimsvísu og var mikil-
virkur í alþjóðlegu vetnissamstarfi
austan hafs og vestan.
Jeffrey Ross Gunter, sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi, afhenti
Bergþóru K. Ketilsdóttur, ekkju
Þorsteins, áletraðan minningargrip
frá IPHE, alþjóðlegum samtökum
um vetnishagkerfið. Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrverandi forseti Ís-
lands, minntist Þorsteins líkt og
Gunter sendiherra sem sagði að
Þorsteinn hefði verið „andlit Ís-
lands“ hvað varðar nýorku í banda-
ríska stjórnkerfinu. Einnig talaði
Robert Dixon, sérfræðingur á al-
þjóðaskrifstofu bandaríska orku-
málaráðuneytisins og þátttakandi í
starfi IPHE, um framlag Þorsteins
til vetnis- og efnarafgjafamála (fuel
cell) á alþjóðavísu. Þeir voru lengi
samstarfsmenn og góðir vinir. Þor-
steinn var, ásamt dr. Hanns-
Joachim Neef, formaður fram-
kvæmdanefndar IPHE í árdaga
samtakanna. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Minning F.v.: Robert Dixon, bandaríska orkumálaráðuneytinu, Jón Björn Skúlason, Íslenskri nýorku, Bergþóra K.
Ketilsdóttir, ekkja Þorsteins, Árni Sigfússon, bróðir Þorsteins, og Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri.
Vetnissamtök heiðruðu
minningu dr. Þorsteins Inga
Minnst fyrir forystu og framlag á sviði vetnisnýtingar
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á næstu 30 dögum verður farið í
útboð á fjórum brúm á hringvegi
1. Er þetta liður í átaki sem ráðist
var í til að fækka einbreiðum og
hættulegum brúm á vegum lands-
ins.
Um er að ræða brú á Steinavötn
í Suðursveit sem er 102 metra
löng, brú á Fellsá í Suðursveit sem
er 46 metrar, Brú á Kvíá í Öræf-
um sem er 38 metra löng og brú á
Brunná austan Kirkjubæjarklaust-
urs sem er 24 metrar. Á næsta ári
eru svo fyrirhuguð tvö útboð til
viðbótar. Það er 160 metra löng
brú á Jökulsá á Sólheimasandi og
brú á Hverfisfljót.
Aukin umferð um brýrnar
Enn eru 36 einbreiðar brýr á
hringveginum, langflestar á Suð-
ur- og Suðausturlandi, að því er
fram kemur á heimasíðu Vega-
gerðarinnar. Einnig eru þó nokkr-
ar einbreiðar brýr utan hringvegar
þar sem árdagsumferð (ÁDU) er
meiri en 600 bílar. Umferð um
brýr landsins hefur aukist mjög
síðustu ár og því hefur fjölgað
þeim einbreiðu brúm sem þurfa að
bera mikla umferð.
Árið 2019 hafa verið byggðar sjö
brýr í stað einbreiðra brúa. Þetta
voru brýr í Berufjarðarbotni, yfir
Hofsá í Arnarfirði, yfir Mjólká í
Arnarfirði, brú á Eldvatn og yfir
Loftsstaðaá, einnig brú yfir Breið-
dalsá og Tjarnará. Til stóð að
hefja framkvæmdir við fimm brýr
til viðbótar á árinu en ekki bárust
tilboð í verkefnin í vor.
Enda þótt ekki hafi unnist nægi-
lega hratt að útrýma einbreiðum
brúm á hringvegi 1 hefur þó mikið
áunnist á síðustu þrjátíu árum. Ár-
ið 1990 voru einbreiðar brýr á
hringvegi 1 hátt í 140 talsins. Þeim
fækkaði hratt og voru orðnar um
60 talsins í kringum 2006 og 42 ár-
ið 2011. Síðan hefur hægst mjög á
slíkum framkvæmdum og aðeins
verið breikkaðar eða byggðar nýj-
ar brýr í stað sex einbreiðra brúa
á átta árum.
En nú stendur til að gera gang-
skör að fækkun einbreiðra brúa og
fjölmörg brúarverkefni fram und-
an, að því er fram kemur á vef
Vegagerðarinnar.
Brúarverkefni
að fara í útboð
Fækka á einbreiðum brúm á vegum
Morgunblaðið/Ásdís
Átak Langflestar einbreiðar brýr
eru á Suður- og Suðausturlandi.
Tökum á móti gestum í glæsilegri
sýningaríbúð Breiðakri 4 íbúð merkt 104
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700 www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
Opið hús Breiðakur 6-8 Garðabæ
Nýtt átta íbúða fjölbýli með lyftu, á eftirsóttum stað.
Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir, 122-138 fm.
Öllum íbúðum fylgja stæði í lokaðri bílageymslu.
Laugardaginn 12. október frá 14:00-15:00
Sunnudaginn 13. október frá 14:00-15:00
Örfáar íbúðir eftir.
Tilbúnar til afhendingar, fullbúnar án gólfefna.
Verð frá 62,9 millj.