Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 ✝ Jón Hermanns-son fæddist 20. júlí 1933 á Hvarfi í Bárðardal. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Norður- lands á Húsavík 3. október 2019. Foreldrar hans voru Hermann Guðnason frá Hvarfi, f. 6. maí 1896, og d. 14. júlí 1969, og Fanney Jónsdóttir frá Glaumbæ í Reykjadal, f. 14. maí 1892, d. 3. desember 1966. Systir Jóns hét Sigrún, f. 1. nóvember 1928, d. 30. maí 2015. Hún ólst upp í foreldrahúsum á Hvarfi en bjó sín fullorðinsár í Reykjavík. Jón var kvæntur Jennýju M.D. Henriksen, f. 18. febrúar 1939. Börn þeirra eru fjögur, elstur er Björn, f. 15. maí 1959, og kona hans er Þóra Karlsdóttir, f. 9. júlí 1962. Næst- ur var Heiðar, f. 1. janúar 1961, hann lést í frumbernsku. Þá Árdís Fanney, f. 26. júní 1962, mað- ur hennar er Þórð- ur Jónsson, f. 17. ágúst 1959, þeirra sonur er Máni, f. 17. október 1994. Yngstur er Her- mann Gunnar, f. 19. september 1968, kona hans er Elín Jakobs- dóttir, f. 18. apríl 1972, sonur þeirra er Jón Þorri, f. 15. febr- úar 2002. Jón var alla tíð bóndi á Hvarfi. Útför hans fer fram frá Þor- geirskirkju í dag, 12. október 2019, klukkan 14. Átta ára snáði kemur hlaupandi ofan úr Efra fjalli með gemlinga- hóp niður á fjárhúshlað og kallar inn um efri hlerann á fjárhúshurð- inni „pabbi“. Þá heyrist „ertu bara kominn, kallinn minn, þú varst aldeilis fljótur“. Þetta ljúfa svar kallaði á þær einar tilfinningar að snáðinn ætlaði að vera heldur fljótari í næstu smalaferð. Var þetta ætíð viðkvæðið þegar um- ræddur smali kom úr ferðum sín- um og hafa þessar viðtökur pabba fylgt honum alla tíð. Manstu pabbi þegar ég kúrði hjá þér undir sæng og þú last fyrir mig Sumardaga? Mikið var það notalegt og auðvelt var að lifa sig inn í líf Nonna í Nesi, Flekku og Brúðu. Það var ekki þinn háttur að mikla hlutina fyrir þér og alltaf varst þú boðinn og búinn að létta undir með manni og vildir alltaf allt gera ef þú mögulega gast. Til dæmis þótti þér það svo sjálfsagt, þegar ég og vinir mínir um tvítugt riðum á Landsmót hestamanna 1990 á Vindheimamelum að skutla bíl mínum fullum af viðlegubúnaði og góðgæti vestur í Skagafjörð og fórst svo bara á puttanum heim í Hvarf. Þú naust þess að fara á hestbak alla tíð og gaman var að þú skyldir komast á bak nú í sumar. Þú kunnir vel að meta mjúkt ganglag og umfram allt þá þurfti klárinn að vera óragur og komast úr spor- unum með góðu móti. Gaman hefði verið að þú hefðir verið betur ríðandi seinni árin en vonandi þeysir þú nú um grænar grundir á dúnmjúkum fáki, viljugum. Mögu- lega ertu á Spóa gamla á Stallin- um í fjallinu heima á eftir kinda- hópi sem koma skal niður í aðhald. Hvernig mátti það vera pabbi að allar samferðir ykkar Spóa gátu gengið slysalaust fyrir sig, þannig að þú rótaðist ekki úr hnakki þó þessar ofsa rokur gengju yfir á kappreiðarstökki um kargaþýfi, yfir börðin niður á Eyju, suður á Mosum í göngum eða raunar bara hvar sem var, ár- um saman? Samviskusamur varstu að fara á árlegt Einars- staðamót í næstu sveit og horfa á vel ríðandi gott fólk og ekki síður til að hitta mann og annan og spjalla um dagsins önn og ekki var síðastliðið sumar nein undantekn- ing á því. Sumt var það sem þér gekk illa að læra að mér fannst og meðal annars að vera bærilega klæddur í kuldatíð, jú stundum varstu með lítinn trefil … já og jafnvel derhúfu þó blési köldu en tryggð hélstu við gallajakkann enda fór hann þér alltaf vel og þú flottur í honum. Þér gekk illa að skamma mig því ég man ekki að þú hafir gert það nema einu sinni og var það eftir að ég hafði brotið rúðu með fótbolta. Klárlega hefðir þú mátt hasta á mig oftar, kannski gerðir þú það en bara svo mildilega að ég tók ekki eftir því en einhvern veginn hafa samskipti okkar verið full af góðu einu. Nú þegar ég opna sím- ann minn er fyrsta númerið sem ég sé 8658010 … en þar er enginn til svars. Til hefur orðið stórt tómarúm og eigum við nú ómögu- legt með að heyrast eins og við höfum gert daglega í svo ótrúlega mörg ár … en tómarúmið verður auðfyllt með hlýju og fallegu minningunum um þig, hvort sem það eru stóru, traustu hendurnar þínar, stígvélin með framlenging- unni eða velviljinn ómældi. Takk fyrir allt, elsku pabbi, minn hjartans vinur. Þinn Hermann (Hemmi). Í dag er til grafar borinn Jón Hermannsson frá Hvarfi í Bárð- ardal, einhver mesti öðlingur sem ég hef kynnst. Jón og kona mín Heiður voru þremenningar. Jón var í fjölskyldunni aldrei kallaður annað en Nonni frændi á Hvarfi. Móðurætt konu minnar er frá Eyjardalsá, næsta bæ við Hvarf. Þar bjuggu öldruð móður- systkini Heiðar og þar dvaldi hún flest sumur á bernsku- og ung- lingsárum og hefur síðan haft sterkar taugar til Bárðardals. Frændfólk bjó á næstu bæjum, þetta var náið samfélag og gagn- kvæmur stuðningur. Jón var ann- álaður fyrir hjálpsemi og var móð- ursystkinum Heiðar alltaf stoð og stytta til sérstakra verka. Ég kynntist Jóni um 1960 þeg- ar við hjónin vorum að draga okk- ur saman og ég kom fyrst á Eyj- ardalsá. Naut ég þess síðar að grípa í verk með Jóni og minnist m.a. járninga á hestum, minnis- stæðastur er þó fjárrekstur úr Bárðardal yfir Vaðlaheiði til Sval- barðseyrar. Eftir heimkomu fjölskyldunnar frá Bandaríkjunum eftir margra ára námsdvöl voru kynni og sam- gangur við Bárðardalinn og frændfólk endurnýjuð og tíðar heimsóknir urðu á Hvarf til Jóns og konu hans Jennýjar. Börn og barnabörn dvöldu þar oft í sum- arleyfum. Einu sinni nutum við Heiður þess að vera gestgjafar þeirra hjóna í Reykjavík. Þegar Eyjardalsá gekk til frændfólks var haldið eftir skika og nutum við aðstoðar Jóns við byggingu aðstöðu í landinu ásamt dóttur okkar og tengdasyni. Minnumst við þess með ánægju að hafa getað boðið frændfólki í sveitinni til kvöldfagnaða, söngs þeirra frænda og óviðjafnanlegs gamansöngs Jóns. Ég átti þess kost að skjótast í júlí í Bárðardal, Jón kom þá með mér suður til Reykjavíkur. Á leið- inni gat ég sýnt honum nánar mína sumarsveit i Austur-Húna- vatnssýslu. Fróðleikur hans um sveitirnar og búskaparhætti var ótrúlegur. Jón gisti hjá mér og gat heimsótt og kvatt Heiði frænku sína sem þá dvaldi á hjúkrunar- heimili við dvínandi heilsu. Jón greindist með illkynja sjúk- dóm fyrir nokkrum mánuðum en gat dvalið heima lengst af við ágæta umönnun fjölskyldu sinnar. Ég gladdist yfir því að geta heimsótt Jón heim á Hvarf í lok september og var þá enn kraftur í Jóni, hann fór í fjárhús með stuðn- ingi barna sinna til að taka þátt í ráðstöfun fjárins. Fimm dögum síðar var hann allur. Jóns verður sárt saknað af fjöl- skyldu, ættingjum og samfélaginu í Bárðardal. Við hjónin og börn okkar vott- um Jennýju konu hans og börnum þeirra okkar innilegustu samúð. Birgir Guðjónsson. Kæri vinur og frændi. Nú ertu búinn að fá hvíldina eftir erfið veikindi undanfarið. Nonni frændi var bróðir móður minnar, ljúfmenni mikið og þótti mér einstaklega vænt um þennan frænda minn. Ég fæddist á Hvarfi og ólst síð- ar upp hjá móðurforeldrum mín- um frá fjögurra ára aldri í átta ár. Nonni var sextán árum eldri en ég og hef ávallt litið á hann sem minn uppeldisbróður. Þegar ég hitti hann í sumar fór hann að rifja upp þá stund þegar ég fæddist því hann var sendur eftir ljósmóður- inni. Á vetrum gat oft verið basl vegna snjóalaga og var ég lærling- ur hjá frænda við bústörfin. Hann var mjög iðjusamur og sinnti bú- skapnum vel, góður kennari í þeim efnum árið um kring. Ég á einnig góðar minningar þegar ég var orðinn eldri og fékk að sinna störfum við heyskapinn, læra á vélar og njóta sumardaganna í náttúrunni. Þótt Nonni væri heimakær og hugur hans bundinn við dagleg störf, þá naut hann þess þegar færi gafst að fá sér bíl- túr, koma við hjá vinum og frænd- fólki og skoða nýja staði víða um land. Nonni var sá allra besti frændi sem hægt var að hugsa sér. trygg- ur traustur og góður félagi. Ég kveð þig með söknuði, kæri vinur, en um ókomna tíð munu minning- arnar um allt það sem þú kenndir mér og leiðbeindir að ógleymdum skemmtilegum sögum verma mig og gleðja. Ég bið algóðan guð að taka vel á móti frænda mínum og bið hann einnig að styrkja Jennýju, börn þeirra og fjölskyldur. Hermann. Kær vinur minn er fluttur til sumarlandsins. Þetta er hans fyrsti og síðasti flutningur, en hann fæddist á Hvarfi í Bárðardal og ólst þar upp og bjó þar allan sinn aldur. Jenný, eftirlifandi eig- inkona hans, kom til hans 18 ára gömul. Þau eignuðust þrjú börn og tvö barnabörn og var hann mikill fjölskyldumaður. Nonni var skemmtilegur og orðheppinn maður, en hægur og prúður. Hann var heiðarlegur, trygglyndur og mikið góðmenni. Hann var vinur vina sinna og vinmargur. Leiðir okkar lágu saman árið 1970 er ég og Henry, mágur hans, fórum að vera saman. Ekki leið á löngu þar til þessi góðu hjón buðu okkur til hádegisverðar, stórsteik að hætti Jennýjar. Fljótt fundum við Nonni að við gátum mikið spjallað og þarna var innsigluð ævarandi góð og trygg vinátta við þau hjón bæði. Aldrei þreyttumst við Nonni á að spjalla saman um sveitir landsins og búskaparhætti fyrr og nú. Hann var svo fróður og víðles- inn og honum tókst að láta mig finna að ég hefði þó nokkurt vit á búskap og gladdi það mig mikið, takk elsku Nonni. Við ræddum oft um hvað lífið hefði verið ótrúlegt hér áður fyrr til sveita. Mér fannst mjög gaman að ræða við hann um bækur sem ég hafði lesið. Hann hlustaði áhugasamur og svo skiptumst við oft á bókum. Það var óskaplega gaman að ferðast með þeim hjónum og gam- ansemin var aldrei langt undan, en við áttum nú eftir að skoða margt, Nonni minn, en þú verður með okkur Jenný þegar við förum á flakk okkur til skemmtunar, því ég ætla að passa hana fyrir þig. Ég er mjög rík að hafa eignast þig sem vin. Hafðu þökk fyrir allt. Elsku Jenný og fjölskyldan. Það hefur verið höggvið stórt skarð í líf ykkar, megi góður guð vaka yfir ykkur og minningu góðs manns. Oktavía Ólafsdóttir. Í dagbók Jóns Hermannssonar bónda á Hvarfi í Bárðardal er skrifað, á vormánuðum árið 1979, eitthvað á þessa leið: „Í dag kom til okkar lítil 5 ára stúlka, dóttir Lillu frá Fosshóli og Sigga, verður hún hjá okkur í 2 til 3 vikur“. Þess- ar vikur urðu að mánuðum, ég neitaði víst að fara heim og varð dvöl mín á Hvarfi alls tíu sumur og tveir vetur. Um leið og ég kom í hlaðið á Hvarfi vorið 1979 fann ég að nú var ég komin á góðan stað hjá yndislegri fjölskyldu sem tók mér strax eins og dóttur sinni. Hvarf í Bárðardal varð mitt annað heimili og hjá þeim hjónum, Jennýju og Nonna, fann ég öruggt skjól á lífsins vegi sem stundum var brattur fyrir litla stelpu. Það var nóg að leggja hönd sína í lófa Nonna, þá varð allt gott, enn betra þegar við röltum saman í fjárhúsin, hönd í hönd og sungum Ég og Jón við vorum eins og bræður og áttum föður sem var okkur kær. Ekki skorti okkur heldur mæður því ei þær reyndust færri vera en tvær. Mínar bestu stundir voru að skottast á eftir þeim feðgum, Nonna og Hemma, í verkin eða hjálpa Jenný við uppvaskið, þar sem tónlistin hljómaði í eldhúsinu og við sungum hástöfum með. Minningarnar eru ótal margar og árin hafa flogið hjá, en alltaf var gott að lauma hendinni í lóf- ann hans Nonna þrátt fyrir að vera orðin fullorðin, finna hlýjuna og góðvildina hans. Hann fylgdist vel með mér og börnunum mínum og var ávallt annt um velferð okk- ar. Nonni var sterkur persónuleiki og hafði hvarvetna áhrif og setti svip á leið sinni með hógværð og ró en þó svo hlýjum og sterkum straumum að allt var til góðs. Hann undi sér best í dalnum sínum og í kringum skepnurnar sínar með fólkið sitt í kringum sig, þar var Jón bóndi á heimavelli, hann var fróður maður og hafði ávallt svör á reiðum höndum fyrir forvitna stelpu. Eina lífsreglu kenndi hann mér sem hefur fylgt mér í lífinu og hún er sú „Að gaspra ekki um hluti sem maður veit ekki“, ein sú besta lífsreynsla sem ég hef tileinkað mér. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Elsku Jenný, Bubbi, Adda, Hemmi og fjölskyldur, megi Guð og góðar vættir styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning Nonna á Hvarfi. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Sif Sigurðardóttir, Siffa. Það er komið haust, laufin fallin af trjánum og sumarið kveður. Af- ar góður vinur okkar, Jón frá Hvarfi, kvaddi okkur nú á falleg- um haustdegi líkt og sumarið. Ávallt var yndislegt að koma heim í Hvarf. Hlýir faðmar, kaffibolli með þeim hjónum við eldhúsborðið og gott spjall. Frásagnarhæfileiki Jóns var ógleymanlegur sem og skemmtilega hnyttin tilsvör hans. Í þau skipti sem við gerðum okkur glaðan dag var gaman að heyra Jón syngja og þá sér í lagi texta sem við höfðum aldrei áður heyrt. Nú skilur leiðir. Við söknum einstaks vinar og þökkum honum góðar stundir sem verða varð- veittar í huga okkar. Megi góður Guð styrkja Jennýju, börn og fjöl- skyldur þeirra. Láttu fara vel um þig í sumarlandinu kæri vinur, blessuð sé minning þín. Þórður Jakobsson og Sigrún Björnsdóttir, Grenivík. Jón Hermannsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA ÞÓRÐARDÓTTIR félagsráðgjafi, áður til heimilis á Melabraut 4, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Neskirkju við Hagatorg miðvikudaginn 16. október klukkan 15. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólteigs, Hrafnistu Reykjavík, fyrir alúð, hlýhug og góða umönnun. Katrín Theodórsdóttir Guðfinna Theodórsdóttir Georg Theodórsson Þórður Theodórsson Guðrún H. Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍAS HERGEIRSSON aðalbókari, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 7. október. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 16. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningar- og styrktarsjóð Sóltúns. Valgerður Anna Jónasdóttir Hergeir Elíasson Rósa Guðmundsdóttir Margrét Elíasdóttir Hermann Hauksson Ragnheiður Elíasdóttir Sigurður Egill Þorvaldsson Jónas Elíasson Arna Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MATTHILDUR SOFFÍA MARÍASDÓTTIR frá Hjörsey, lést föstudaginn 4. október á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. október klukkan 15. María Einarsdóttir Páll Gestsson Margrét Einarsdóttir Skúli Waldorff Ragnheiður Einarsdóttir Einar Örn Karelsson Ingibjörg Einarsdóttir Haukur Einarsson Anna Jóna Einarsdóttir Jón Heiðar Pálsson Sigríður Einarsdóttir Gunnar Örn Vilhjálmsson barnabörn, langömmu og langalangömmubörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN PÁLFRÍÐUR ALEXANDERSDÓTTIR, Skipastíg 3, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 30. september. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 18. október klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Grindavíkurkirkju. Kt.410272-1489, 143-15-370883. Minningarkort kirkjunnar verða einnig á staðnum. Edvard Júlíusson Alexander G. Edvardsson Þuríður D. Ingvarsdóttir Kristín Þ. Edvardsdóttir Ottó Hafliðason Sigmar J. Edvardsson Linda Oddsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar og ástkær vinur minn, HALLDÓR HALLDÓRSSON læknir, lést í Hlíð Akureyri sunnudaginn 6. október. Jarðsungið verður í Akureyrarkirkju föstudaginn 18. október klukkan 13.30. Fyrir hönd annarra vandamanna, Sigurjón Halldórsson Helga Ferdinandsdóttir Rún Halldórsdóttir Pétur Halldórsson Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir Halldór Björn Halldórsson Sigríður Sveinbjarnardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.