Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
Starfandi forstjóri ætlar að víkja
Starf forstjóra Reykjalundar verður auglýst Unnið er að ráðningu framkvæmdastjóra lækninga
Guðni Einarsson
Þórunn Kristjánsdóttir
Sveinn Guðmundsson, stjórnarformaður SÍBS
og starfandi forstjóri Reykjalundar, ætlar að
víkja sem forstjóri. Þetta kom fram í tilkynn-
ingu hans til starfsfólks Reykjalundar í gær.
Starf forstjóra Reykjalundar verður auglýst.
Settur verður forstjóri yfir stofnunina tíma-
bundið fram að því að nýr verður ráðinn. Ráðn-
ingarferli framkvæmdastjóra lækninga er í
vinnslu.
Sveinn sagði ljóst „að starfsfólk Reykjalund-
ar ætlar að setja skjólstæðinga sína í fyrsta
sæti og veita þá framúrskarandi meðferð sem
staðurinn er þekktur fyrir“. Þá kom fram að
tímabundin skerðing sem varð á hluta þjónust-
unnar í fyrradag hefði verið að ganga til baka í
gær. Næsti upplýsingafundur með starfsfólki
er áætlaður þriðjudaginn 15. október.
Starfsmenn lýstu yfir vantrausti
„Ég tel að þetta eigi við um stjórn SÍBS en
ekki framkvæmdastjórn Reykjalundar eins og
lesa má út úr yfirlýsingunni,“ sagði Sveinn
þegar hann var spurður um vantraust sem
rúmlega hundrað starfsmenn á Reykjalundi
lýstu yfir á stjórn Reykjalundar í fyrradag og
afhentu fulltrúa heilbrigðisráðherra. Starfs-
menn lýstu vantrausti á stjórn SÍBS vegna
þess að stjórnin vék „forstjóra stofnunarinnar,
Birgi Gunnarssyni, fyrirvaralaust úr starfi í
lok september. Í gær [fyrradag] var fram-
kvæmdastjóra lækninga vikið úr starfi með
sama hætti“, sagði í yfirlýsingunni.
Varðandi uppsögn Magnúsar Ólasonar,
framkvæmdastjóra lækninga, vísar Sveinn til
þess að hann sé á 72. aldursári. Starf hans hafði
verið auglýst laust til umsóknar. „Þegar ég var
að spyrja hann um starfslokin þá vildi svo
óheppilega til að hann gaf ekkert nákvæmlega
út um þau. Ég stóð í þeirri trú að það væri búið
að ganga frá starfslokum við hann … því það
var búið að auglýsa starf framkvæmdastjóra
lækninga … Eina leiðin var að bjóða honum
starfslok, sem hann þáði ekki. Þar af leiðandi
var honum tilkynnt uppsögn. Honum var þakk-
að fyrir mjög góð störf engu að síður.“
Morgunblaðið/RAX
Reykjalundur Margir njóta endurhæfingar.
Samninganefndir BSRB og aðild-
arfélaga og ríkisins, Reykjavík-
urborgar og Sambands íslenskra
sveitarfélaga eru sammála um að
leggja áherslu á að reyna að fá nið-
urstöðu í kröfur launþegafélaganna
um styttingu vinnutímans. Að frum-
kvæði ríkissáttasemjara er rætt um
möguleika þess að öll stéttarfélög
starfsmanna sem vinna hjá ríki og
sveitarfélögum komi sameiginlega að
málinu.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður
BSRB, segist sjá þarna möguleika á
að nálgast málið á heildstæðum
grundvelli sem taki til alls opinbera
geirans. Það taki hins vegar tíma að
skipuleggja slíka vinnu. „Við höfum
sagt að við séum tilbúin að prófa enda
höfum við verið föst í sömu hjólför-
unum í langan tíma. Það er fínt að
reyna eitthvað annað,“ segir Sonja.
Hún á von á því að það skýrist á
mánudag hvort þetta vinnulag verður
tekið upp eða ekki.
Ef málið fer í þennan farveg verður
beðið með aðrar sameiginlegar kröf-
ur BSRB og launakröfur aðildar-
félaganna.
Á viðkvæmu stigi
Sverrir Jónsson, formaður samn-
inganefndar ríkisins, segir að viðræð-
urnar séu á viðkvæmu stigi en vonast
til að þær séu að komast á rekspöl.
„Við bindum vonir við að það verði
meiri gangur í viðræðunum. Hljóðið í
okkar félagsmönnum er þannig að við
verðum að sjá meiri þunga í þeim,“
segir Sonja. helgi@mbl.is
Viðræður
á breiðari
grundvelli
Viðræður um
vinnutíma í forgangi
Borgarhakk snjallborgarinnar, nýsköp-
unargáttar borgarinnar, hófst í Ráðhúsi Reykja-
víkur í gær. Borgarhakkið er hugmyndaverk-
efnastofa, svokallað hakkaþon, þar sem
þátttakendum gefst kostur á því að vinna með
skapandi hugmyndir undir leiðsögn sérfræð-
inga. Verkefnavinnan fer fram í teymum og að
henni lokinni kynna keppendur hugmyndir sínar
fyrir dómnefnd sem velur bestu lausnina. Úrslit-
in ráðast á morgun. Sigurliðið hlýtur eina millj-
ón í verðlaun. Hakkaþonið er vettvangur fyrir
borgarbúa að koma hugmyndum sínum á fram-
færi og skapar möguleika fyrir þá sem eru með
gagnlegar og vel útfærðar hugmyndir að eiga
áfram samstarf við Reykjavíkurborg.
Vinna skapandi hugmyndum brautargengi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarhakk nýsköpunar- og þróunargáttar Reykjavíkurborgar hófst í gær
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOL
TA
Hefur þú prófað
Holta drumsticks?
Norðurslóðablaðið, sem átti að
dreifa í gær, fylgir með Morgun-
blaðinu í dag. Dreifing á blaðinu
frestaðist vegna bilunar í prent-
smiðju Landsprents og eru áskrif-
endur beðnir velvirðingar á töfinni.
Blaðið er 56 síður og fjallar um
norðurslóðir, í tilefni af ráðstefnunni
Arctic Circle sem fram fer í Hörpu
þessa dagana. Yfirskrift blaðsins er
Björgum heiminum eða Save the
World, en eins og undanfarin ár
kemur blaðið bæði út á íslensku og
ensku. Þar er vísað í ákall ungu kyn-
slóðarinnar sem víða um heiminn
hefur krafist markvissra aðgerða í
loftslagsmálum.
Sem fyrr prýða blaðið ljósmyndir
og frásagnir Ragnars Axelssonar,
sem í tæp 40 ár hefur fylgst grannt
með norðurslóðum. Einnig eru
áhugaverð viðtöl og greinar.
Sérblað um norðurslóðir
fylgir blaðinu í dag Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun að veita fjögurra
milljóna króna styrk af ráðstöf-
unarfé ríkisstjórnar til alþjóð-
legrar skákhátíðar og skákmóts á
Selfossi sem fram fer dagana 19.-
29. nóvember nk.
Aðalviðburður hátíðarinnar
verður skákmót tíu heimsmeist-
ara en allir þátttakendur hafa
orðið heimsmeistarar í skák í ein-
hverjum flokki. Þá verður einnig
haldið barna- og unglingaskák-
mót, Fischer-slembiskákmót,
raðskákmót og fjöltefli, auk mál-
þings um stöðu skákíþróttarinnar
á Íslandi.
Á Selfossi er starfrækt Fischer-
setur en markmið þess er að
halda á loft minningu skákmeist-
arans Bobbys Fischers sem
tengdist Íslandi miklum vin-
áttuböndum eftir einvígi sitt við
Boris Spassky í Reykjavík árið
1972.
Styrkja alþjóðlega
skákhátíð á Selfossi