Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 Geir Ágústsson skrifar á blog-.is: „Á meðan íslenskir stjórnmálamenn lofa tugmillj- örðum í uppbygg- ingu á nýrri teg- und stræt- isvagna (nema að- eins stærri en þeir í dag og fá að auki sínar eigin ak- reinar) sýna stóru bílaframleið- endurnir væntanlegum kaup- endum framtíðina.    Í Amsterdam er ákaft unnið aðþví að búa göturnar undir sjálfkeyrandi bíla. Í Kaupmannahöfn hafa sjálf- akandi örlestir keyrt í næstum því 20 ár.    Það er ekki víst að sjálfakandibílar leysi þann hefðbundna af hólmi en margir mundu eflaust vilja leggja bílnum á leið til og frá vinnu og lesa dagblaðið í staðinn eða sitja við tölvuna. Þeir sem þurfa tvo bíla í dag gætu fækkað niður í einn bíl. Þeir sem þurfa bara bíl stöku sinnum gætu notað deilibíla sem kæmu heim að dyr- um og yrði svo keyrt með hefð- bundnum hætti eftir það. En hver veit!    Eitt er víst að enn eitt strætó-kerfið er ekki framtíðin, heldur fortíðin.“    Fortíðarþráin er ef til villstundum notaleg tilfinning. Margir eru heillaðir af flestu sem heitir retró – og þá ekki bara út- varpsstöðinni góðu.    En er eitthvað heillandi við of-vaxna strætisvagna sem leggja undir sig heilar akreinar sem enginn annar má nota? Fortíðarþrá STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Menningarseturs múslima á Íslandi gegn Stofnun múslima á Íslandi, en deilur félaganna tveggja hafa staðið yfir árum saman og snúast um leigu- rétt þess fyrrnefnda að Ýmishúsinu við Skógarhlíð 20 í Reykjavík. Landsréttur staðfesti dóm hér- aðsdóms að öllu leyti og því er nið- urstaða málsins sú að Menningar- setrið skuli greiða Stofnun múslima 8,6 milljónir í vangoldna leigu og málskostnað, auk dráttarvaxta og 600.000 króna málskostnaðar fyrir Landsrétti. Stofnun múslima er eigandi Ýmis- hússins, en það var keypt árið 2010. Stofnunin fullyrti árið 2016 að hún hefði gert afnotasamning við Menn- ingarsetrið og að staðið hefði til að gerður yrði húsaleigusamningur. Drög að þeim samningi hefðu verið gerð og dagsett 20. desember 2012 og átt að gilda til 31. desember 2023. Næsta dag hefði hins vegar verið ákveðið að breyta fyrirkomulaginu og gefa Menningarmiðstöðinni af- notarétt af hluta hússins án endur- gjalds. Þetta hefði verið staðfest með samningi sem er dagsettur 21. desember 2012, en að fyrri samning- urinn hefði með þessu verið felldur niður. Í júní 2016 lét Stofnun músl- ima á Íslandi svo bera Menningar- setrið út. Landsréttur segir um þetta atriði að á meðal skjala málsins sé skjal sem dagsett er 21. desember 2012 og beri yfirskriftina „Notkun á húsnæði og krafa um starfsemi“, en undir skjalið rita þeir Hussein Alda- oudi og Karim Askari, sömu menn og undirrituðu húsaleigusamninginn degi fyrr. „Með skjalinu frá 21. verður að líta svo á að aðilar hafi sammælst um að fella úr gildi húsaleigusamning- inn,“ segir í niðurstöðu Landsréttar. Greiði Stofnun múslima 8,6 milljónir  Menningarsetur múslima tapaði máli gegn Stofnun múslima í Landsrétti Tvær farþegaþotur Icelandair héldu af landi brott í gær og var stefnan tekin á Lleida á Spáni. Er um að ræða vélarnar Mývatn og Búlands- tind, en þær eru af gerðinni Boeing 737 Max. Vélar af þessari tegund hafa sl. mánuði verið kyrrsettar um heim allan eftir tvö mannskæð flug- slys. Slysin má rekja til alvarlegrar bilunar í tæknibúnaði Max-vélanna. Mývatn tók á loft frá Keflavíkur- flugvelli um klukkan níu í gærmorg- un. Upphaflega var gert ráð fyrir að Búlandstindur tæki á loft um stund- arfjórðungi seinna, en óvænt bilun í vélinni seinkaði flugtaki um tæpar þrjár klukkustundir. Upplýsinga- fulltrúi Icelandair sagði í viðtali við mbl.is að um væri að ræða „eðlilegt tæknivandamál“ og vísaði þar til þess að flugvélin hefði staðið svo gott sem hreyfingarlaus í um 7 mán- uði vegna kyrrsetningar. Evrópska flugöryggisstofnunin, EASA, setti ítarleg skilyrði sem Ice- landair þarf að uppfylla fyrir flug Max-vélanna, m.a. varðandi flug- hæð, flughraða og þjálfunarkröfur og reynslu viðkomandi flugstjóra. Áður stóð til að vélarnar færu til Frakklands í vetrargeymslu en ekki fékkst leyfi til þess frá Frökkum. Max-vélar fluttar í vetrargeymslu  Nú verið kyrrsettar í um sjö mánuði Morgunblaðið/Hari Kyrrsett Max-vélarnar hafa orðið fyrir miklum álitshnekki eftir tvö slys. Smáralind LAUGAVEGUR 26 verslunin.karakter ÝJAR AUS VÖRUR FRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.