Morgunblaðið - 12.10.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 12.10.2019, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 Þægileg leið fyrir viðskiptavininn. Kemur honum í beint samband við réttan starfsmann sem klárar málið. Góð yfirsýn og gegnsæi með verkefnunum. Kynntu þér málið á www.eignarekstur.is eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Þjónustugátt Eignareksturs Traust - Samstaða - Hagkvæmni Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþí- ópíu, hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár, einkum fyrir viðleiðni til að leysa landamæradeilur landsins við grann- ríkið Erítreu og koma á friði. Abiy er lýst sem framsýnum hugsjónamanni og umbótasinna en fréttaskýrendur segja að hann standi frammi fyrir mjög erfiðum vandamálum og þau ógni árangrinum af starfinu sem hann fékk verðlaunin fyrir. Friðarverðlaunahafinn er 43 ára og yngsti leiðtogi Afríkuríkis. Hann varð forsætisráðherra Eþíópíu í apr- íl á síðasta ári og hóf metnaðarfullar friðarumleitanir og umbætur næstu sex mánuðina. Auk þess sem hann náði friðarsamkomulagi við stjórn- völd í Erítreu leysti hann þúsundir eþíópískra andófsmanna úr fangelsi, baðst afsökunar á ofbeldi ríkisvalds- ins og heimilaði heimkomu útlægra liðsmanna vopnaðra hópa sem for- verar hans í embættinu höfðu lýst sem „hryðjuverkahópum“. For- sætisráðherrann boðaði einnig lýð- ræðisumbætur og gerði ráðstafanir til að auka áhrif kvenna í stjórnmál- unum. Þá gegndi hann mikilvægu hlutverki í friðarumleitunum í Súdan og Suður-Súdan. António Guterres, aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að starf Abiy í þágu friðar hefði blásið íbúum stríðshrjáðra svæða í Afríku von í brjóst. „Ég hef oft sagt að vindar vonarinnar séu að glæðast í löndum Afríku. Abiy Ah- med er á meðal helstu ástæðanna,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Guter- res. Mörg óleyst og erfið vandamál Fréttaskýrendur segja að mikið verk sé þó enn óunnið í starfinu sem Abiy fékk verðlaunin fyrir. Þeir benda m.a. á að landamærum Eþíóp- íu og Erítreu var lokað aftur vegna óleystra deilumála nokkrum mán- uðum eftir að friðarsamningur ríkjanna var undirritaður, auk þess sem ríkin hafa ekki enn gert við- skiptasamning og Eþíópa, sem er landlukt, hefur ekki enn aðgang að höfnum í Erítreu. Mannréttindahreyfingar hafa einnig látið í ljós áhyggjur af því að á síðustu mánuðum hafa yfirvöld í Eþíópíu handtekið stjórnarandstæð- inga og blaðamenn og haldið sumum þeirra í fangelsi á grundvelli um- deildra hryðjuverkalaga. Slíkum handtökum fjölgaði eftir að fimm hátt settir embættismenn og herfor- ingjar voru myrtir í júní. Átök milli þjóðflokka hafa einnig magnast á síðustu árum og í fyrra jókst fjöldi innlendra flóttamanna meira í Eþíópíu en nokkru öðru ríki í heiminum. Um 2,6 milljónir Eþíópíu- manna eru á flótta í eigin landi. Mannréttindasamtökin Amnesty International sögðust vona að friðar- verðlaunin yrðu til þess að Abiy gerði ráðstafanir til að tryggja að umbæturnar sem hann kom á yrðu varanlegar. „Verðlaunin ættu að vera honum hvatning til að takast á við þau erfiðu úrlausnarefni sem ógna árangrinum sem hefur náðst í mannréttindamálum,“ sagði í yfir- lýsingu frá samtökunum. „Obama Afríku“ Abiy er hugsjónamaður, sjálfs- öruggur og með mikla persónutöfra, að sögn Rasmus Prehn, sem kynnt- ist Abiy í starfi sínu sem ráðherra þróunaraðstoðar í Danmörku. „Hann er leiðtogi sem getur fyllt fólk eldmóði, þorir að setja sér metn- aðarfull markmið og tala opinskátt við fólk,“ hefur fréttavefur danska ríkisútvarpsins eftir Prehn. „Ég tel að hann verðskuldi verðlaunin að mörgu leyti. Hann örvar fólk til dáða. Það er ekki að ástæðulausu að hann hefur verið kallaður Obama Afríku.“ Forsætisráðherra EþíópíuFRIÐARVERÐLAUN NÓBELS 2019 Heimild: AFP/nobelprize.org Abiy Ahmed Fæddist í Beshasha, í Eþíópíu Ljósmynd: AFP/Emmanuel Dunand Yngsti leiðtogi Afríku Sonur fátækra þorpsbúa (faðir hans var múslími, móðir hans kristin) Gekk í herinn á táningsaldri og og var fjarskiptamaður þar Er 43 ára "...Fyrir starf hans í þágu friðar og alþjóðlegrar samvinnu og sérstaklega fyrir afgerandi framtak hans til að leysa landmæradeilur Eþíópíu við grannríkið Erítreu" Með MA-próf í breytingastjórnun, MBA og doktorsgráðu frá Friðar- og öryggisstofnun Háskólans í Addis Ababa Varð undirofursti áður en hann haslaði sér völl í stjórnmálunum Varð ráðherra vísinda og tækni í Addis Ababa og einn af forystumönnum flokks síns í heimahéraði sínu, Oromíu Náði friðarsamkomulagi 9. júlí 2018 við forseta Erítreu, Isaias Afwerki, og það batt formlega enda á nær 20 ára þrátefli í deilum ríkjanna eftir landamæraátök á árunum 1998-2000 Varð forsætisráðherra í apríl 2018 Fyrstu sex mánuðina í embættinu: - samdi um frið við Erítreu - leysti andófsmenn úr fangelsi - baðst afsökunar á ríkisofbeldi - heimilaði heimkomu vopnaðra hópa útlaga sem forverar hans höfðu lýst sem „hryðjuverkahópum“ Gegndi mikilvægu hlutverki í friðarumleitunum í Súdan Hefur reynt að bjarga friðar- samningi í Suður-Súdan Friðarsamningur undirritaður í september 2018 Stórhuga umbótasinni sem á mikið verk óunnið  Vandamál ógna ávöxtum af starfi nóbelsverðlaunahafans 100. friðarnóbelinn » Þetta er í hundraðasta skipti sem friðarverðlaun Nóbels eru veitt og annað árið í röð sem Afríkumaður hlýtur þau. » Denis Mukwege, læknir í Austur-Kongó, og Nadia Mu- rad, sem sætti kynferðisof- beldi liðsmanna Ríkis íslams í Írak, hlutu verðlaunin í fyrra. » Verðlaunin verða afhent í Ósló 10. desember. Um 100.000 manns hafa flúið heim- kynni sín í norðanverðu Sýrlandi vegna hernaðar Tyrkja, að sögn emb- ættismanna Sameinuðu þjóðanna í gær. Margir flóttamannanna hafast við í skólum og fleiri byggingum í borginni Hassakeh og bænum Tal Ta- mer. Hjálparstofnanir óttast að allt að 450.000 manns kunni að þurfa að flýja heimkynni sín vegna árásanna. Tyrkir hófu hernaðinn á miðviku- daginn var eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði greitt fyrir honum með því að fyrirskipa að bandarískir hermenn yrðu fluttir af svæðinu. A.m.k. ellefu óbreyttir borgarar hafa beðið bana í árásum Tyrkja í Sýrlandi og 28 hafa særst alvarlega, þeirra á meðal börn, að sögn Kúrd- íska Rauða hálfmánans. Hermt er að átta manns, þ. á m. sýrlenskt barn, hafi beðið bana í sprengjuárásum Kúrda á landamærabæi í Tyrklandi. Tugir liðsmanna bandalags undir for- ystu Kúrda og vopnaðra hópa sem styðja Tyrki liggja einnig í valnum. Hersveitir Kúrda hafa verið mikil- vægir bandamenn Bandaríkjahers í baráttunni gegn Ríki íslams, samtök- um íslamista, og óttast er að hernaður Tyrkja verði til þess að samtökin rísi úr öskustónni á svæðum sem Kúrdar höfðu frelsað úr greipum þeirra. Samtökin sögðust hafa gert bíl- sprengjuárás sem kostaði sex manns lífið í landamærabænum Qamishli í gær. Refsiaðgerðum hótað Tyrkir segja að samtök sýrlenskra Kúrda, YPG, séu hryðjuverkasamtök og í nánum tengslum við Verka- mannaflokk Kúrdistans (PKK), sem hefur barist fyrir því að Kúrdar fái sjálfstjórnarréttindi í Tyrklandi. Re- cep Tayyip Erdogan, forseti Tyrk- lands, segir að hernaðurinn sé nauð- synlegur til að halda YPG-samtök- unum í skefjum en kveðst einnig ætla að koma á „öryggissvæði“ á um 32 km breiðu belti við landamærin og flytja þangað um tvær milljónir af 3,6 millj- ónum Sýrlendinga sem hafa flúið til Tyrklands. Erdogan kvaðst í gær ekki ætla að stöðva hernaðinn þrátt fyrir „hótan- ir“ annarra landa sem hafa gagnrýnt árásirnar. Steven Mnuchin, fjármála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði að Trump hygðist undirrita tilskipun, sem myndi heimila efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Tyrklandi, með það að markmiði að fá Tyrki til að grípa ekki til frekari hernaðarað- gerða í norðanverðu Sýrlandi. Hann kvaðst þó vona að ekki þyrfti að grípa til refsiaðgerðanna. bogi@mbl.is 100.000 manns flýja árásirnar  Erdogan neitar að stöðva hernaðinn Fólk virðir fyrir sér listaverkið „Með ást …“ við ráðhúsið í borginni Leeds á Norður-Englandi á sjónlistahátíð, Ljósanótt í Leeds, sem haldin var í gær og fyrradag. Hátíðin er haldin tvö kvöld í október ár hvert og að þessu sinni var boðið upp á rúmlega 60 viðburði á ellefu stöðum í miðborginni. List í myrkrinu á árlegri hátíð í Bretlandi AFP Ljósanótt í Leeds

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.