Morgunblaðið - 12.10.2019, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það er skrýt-in áráttahjá opin-
berum aðilum að
líta á það sem tap
þegar dregið er úr
skattheimtu. Í vikunni birtist
frétt í Morgunblaðinu undir
fyrirsögninni Sveitarfélög
segjast tapa milljörðum.
Í fréttinni er vitnað í um-
sögn Reykjavíkurborgar um
fjárlagafrumvarpið. Þar segir
að ætla megi að útsvarstekju-
tap Reykjavíkurborgar vegna
skattfrjálsrar greiðslu sér-
eignarsparnaðar inn á fast-
eignalán nemi um það bil 4,5
til 5 milljörðum á tímabilinu
frá 1. júlí 2014 til 30. júní
2021.
Fyrir það fyrsta er þessi
tala örugglega orðum aukin
vegna þess að margir hefðu
sennilega kosið að geyma sér-
eignarsparnaðinn hefði hann
verið skattlagður og því hefði
í það minnsta hluti þessara
peninga ekki komið í baukinn
hjá borginni fyrr en eftir
nokkra áratugi.
Þá er undarlegt að líta á
þetta sem tap. Borgin er með
alla anga úti til þess að klípa
fé af borgarbúum. Útsvar er í
botni, fasteignagjöld hækka
langt umfram verðbólgu og
svo mætti lengi telja. Hugs-
unin er geinilega sú að hver
króna, sem ekki er tekin af
skattborgurunum, sé tapað
fé.
Staðreyndin er þó sú að eft-
ir því sem skattborgararnir
hafa meira fé á
milli handanna
eykst veltan í
samfélaginu, það
hefur sín áhrif á
hjól atvinnulífsins
og, viti menn, meira fé rúllar
inn í hirslur ríkis og sveitarfé-
laga, þar á meðal Reykjavík-
urborgar.
Ástæða gæti hins vegar
verið til þess að skoða skatt-
leysi og skattlagningu sér-
eignarsparnaðar betur. Það
er vissulega full ástæða til
þess að gefa fólki kost á að
greiða húsnæðislánin sín
hraðar niður með þeim hætti,
sem gert hefur verið. Um leið
á sér hins vegar stað ákveðin
mismunun. Skattheimtan fer
eftir því hvernig peningunum
er eytt. Af hverju er til dæmis
ekki sami háttur hafður á með
uppgreiðslu námslána? Af-
borganir af námslánum nema
sem samsvarar einum útborg-
uðum mánaðarlaunum á ári.
Það er drjúgur biti. Væri ekki
full ástæða til að gefa fólki
kost á skattfrjálsri greiðslu
séreignarsparnaðar inn á
námslán?
Í framhaldinu má einfald-
lega spyrja hvort ástæða væri
til að íhuga skattleysi sér-
eignarsparnaðar án skilyrða.
Þá fyrst færu sveitarfélögin
að „tapa“.
Fyrst og fremst ber þó að
hafa í huga að þeir peningar,
sem fólk heldur eftir í launa-
umslaginu, eru ekki tapað fé
hins opinbera.
Það er kynleg af-
staða að telja
óskattlagt fé tapað}
Tapað fé?
Fátt er mikil-vægara en
velferð barna. Í
henni er framtíðin
fólgin. Í gær voru
afhent barna-
menningarverðlaun Velferð-
arsjóðs barna í húsakynnum
Íslenskrar erfðagreiningar,
sem leggur fé í sjóðinn.
Að þessu sinni fékk fyrir-
tækið Kvan verðlaunin fyrir
námskeið sem nefnist Verk-
færakistan og fylgir þeim
11,25 milljóna króna styrkur.
Verkfærakistan gengur út á
það að koma til aðstoðar við
kennara og aðra sem vinna
með hópa og einstaklinga í
samskipta- og félagslegum
vanda með sérstakri áherslu
á einelti. Áherslan er á að
grípa inn í sem fyrst þannig
að auðveldara verði að vinda
ofan af vandanum. Verkfæra-
kistan fékk einnig stóran
styrk úr sjóðnum 2017.
Arnarskóli fékk fimm
milljónir króna úr
sjóðnum. Hann
var stofnaður
2017 fyrir börn á
einhverfurófi og
með aðrar
þroskaraskanir. Þar voru í
upphafi fjórir nemendur, en
eru nú tólf og biðlisti eftir að
komast að. Alls var úthlutað
um 25 milljónum króna úr
sjóðnum í gær og kom fram
að þetta væri aðeins hluti af
úthlutunum þessa árs.
Velferðarsjóðurinn var
stofnaður árið 2000 og er
Valgerður Ólafsdóttir fram-
kvæmdastjóri hans.
Það er mikilvægt að draga
fram það sem vel er gert til
að efla velferð barna líkt og
gert er með Barnamenn-
ingarverðlaunum Velferð-
arsjóðs barna og ekki er
verra þegar veittar eru upp-
hæðir sem geta skipt veru-
legu máli um að verkefnin
beri árangur.
Það er mikilvægt að
greiða götu verk-
efna í þágu barna}
Velferð barna
S
törf kennara og skólastjórnenda
eru margþætt og í skólastarfi er
stöðugt unnið með nýjar hug-
myndir og áskoranir. Við vitum
að öflug menntakerfi á al-
þjóðavísu hafa keppt að því að gera starfs-
umhverfi sinna kennara framúrskarandi en
liður í því er öflug framtíðarsýn fyrir
starfsþróun stéttarinnar.
Á dögunum skilaði samstarfsráð um
starfsþróun kennara og skólastjórnenda til-
lögum að slíkri framtíðarsýn. Tillögur þess-
ar eru nýmæli þar sem ekki hefur legið
fyrir sameiginleg sýn á málefni starfsþró-
unar, t.d. milli ólíkra skólastiga og rekstr-
araðila skóla. Þetta er að mörgu leyti tíma-
mótaskref sem ég tel að muni leiða til
skýrari stefnu og stuðla að metnaðarfullu
skólastarfi. Ég fagna tillögum ráðsins og þeim sam-
hljómi sem einkennir vinnu þess en í því sátu fulltrú-
ar Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra
sveitarfélaga, háskóla og mennta- og menningar-
málaráðuneytis. Tillögurnar eru fjölbreyttar og
tengjast m.a. ráðuneytinu, sveitarfélögum, menntun
kennara og skólunum sjálfum. Það er mjög dýrmætt
að fá þær til umfjöllunar og útfærslu, ekki síst í sam-
hengi við ný lög um menntun og hæfni kennara og
skólastjórnenda sem taka munu gildi í ársbyrjun
2020.
Starfsþróun kennara getur m.a. falið í sér formlegt
nám og endurmenntun, námskeið, þátttöku
í þróunarverkefnum, ráðgjöf, ráðstefnur og
heimsóknir í aðra skóla. Stefnumiðuð
starfsþróun stuðlar að aukinni starfs-
ánægju kennara og hefur jákvæð áhrif á
árangur þeirra í starfi. Niðurstöður út-
tekta og menntarannsókna gefa okkur góð-
ar vísbendingar um hvar mikilvægast er
að efla starfsþróun og fjölga tækifærum í
símenntun fyrir kennara. Samkvæmt al-
þjóðlegu TALIS-menntarannsókninni telja
íslenskir kennarar á unglingastigi mesta
þörf nú vera fyrir starfsþróun um hegðun
nemenda og stjórnun í kennslustofum,
ásamt starfsþróun í kennslu fyrir börn
með annað móðurmál en íslensku. Athygli-
vert er einnig að samkvæmt TALIS er al-
gengara í samanburðarríkjum Efnahags-
og framfarastofnunarinnar (e. OECD) að kennarar
þjálfi eða fylgist með kennslu samkennara eða greini
eigin kennslu, en hér á landi.
Það felast mörg tækifæri í öflugri samvinnu og
skýrri heildarsýn þegar kemur að starfsþróun kenn-
ara í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum. Ég
vil þakka þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd á plóg í
því verkefni sem býr að baki tillögunum, þær eru
okkur gott leiðarljós í þeirri vinnu sem nú stendur
yfir við mótun nýrrar menntastefnu til ársins 2030.
Lilja
Alfreðsdóttir
Pistill
Framtíðarsýn um starfsþróun kennara
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkttillögu borgarstjóra þessefnis að efnt verði til al-þjóðlegrar samkeppni um
nýtt skipulag á Umferðarmið-
stöðvarreit í Vatnsmýri. Markmiðið
sé að þar rísi ný alhliða samgöngu-
miðstöð fyrir Reykjavík, höfuð-
borgarsvæðið og landið allt og þétt,
blönduð byggð.
Í kjölfar skipulagssamkeppn-
innar verði efnt til framkvæmda-
samkeppni um sjálfa samgöngu-
miðstöðina samkvæmt nánari
ákvörðun. Umhverfis- og skipulags-
svið annist undirbúning og utan-
umhald samkeppninnar. Skipaður
verði stýrihópur verkefnisins sem
haldi utan um verkefnið og þar með
talið undirbúning samkeppninnar.
Borgarstjóri verði formaður stýri-
hópsins en tveir fulltrúar verði skip-
aðir í hann úr skipulags- og sam-
gönguráði.
Tillaga borgarstjóra byggir á
vinnu og tillögum starfshóps um
þróun samgöngumiðstöðvar og nán-
asta umhverfis.
Lykilpunktur leiðarkerfis
„Skipulag og bygging sam-
göngumiðstöðvar er tímabær og
brýn, ekki síst í ljósi samkomulags
um fjármögnun Borgarlínu, endur-
skoðun og eflingu leiðakerfis Strætó
og nýjar áherslur í samgöngu-
málum. Samgöngumiðstöð Reykja-
víkur verður lykiltengipunktur í
nýju leiðarkerfi,“ segir í tillögunni. Í
áfangaskýrslu starfshópsins segir
m.a. að mikilvægt sé að göngu- og
hjólaleiðir að og frá miðstöðinni
verði mjög góðar og öll hönnun gefi
skýr skilaboð um að þessir ferða-
mátar séu í fyrsta forgangi um
svæðið og að því. Þegar í upphafi
verði boðið upp á hjólageymslur og
hjólaleigu.
Til að styðja við reitinn sem
tengipunkt fjölbreyttra vistvænna
samgöngumáta þurfi að gera hann
að áfangastað. Því sé mikilvægt að á
reitnum verði einnig rými fyrir þjón-
ustu-, atvinnu- og íbúðarhúsnæði til
viðbótar við samgöngumiðstöð. Því
skipti máli að koma samgöngu-
miðstöð sem haganlegast fyrir þann-
ig að sem minnst rými fari undir at-
hafnasvæði hennar. Þessi miðstöð
vistvænna samgangna og umhverfi
hennar verði hönnuð á vistvænan
hátt og vottuð sem slík.
Loks er lagt til að í samkeppn-
inni skuli miðað við að núverandi
mannvirki á reitnum séu víkjandi.
Ekki kemur fram hvort þetta nær til
Vatnsmýrarvegar 10 (Umferðar-
miðstöðin), en Reykjavíkurborg festi
kaup á húsinu 2012.
„Það er algert forgangsatriði að
reisa nýja flugstöð á Reykjavíkur-
flugvelli. Aðstaðan í núverandi flug-
stöð er algerlega óboðleg, bæði fyrir
flugfarþega og starfsfólk,“ sagði Jón
Gunnarsson, þáverandi samgöngu-
ráðherra, í viðtali við Morgunblaðið
14. janúar 2017.
Flugstöð ekki nefnd á nafn
Jón setti á fót verkefnahóp um
nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli.
Hún skilaði skýrslu vorið 2018.
„Fjallað verður um þrjá möguleika á
staðsetningu nýrrar flugstöðvar við
Reykjavíkurflugvöll og lagt til að
ríkið eigi samstarf við Reykjavík-
urborg um hugmyndasamkeppni um
fýsilegasta kostinn sem væri við
Umferðarmiðstöðina,“ segir í upp-
hafi skýrslunnar. Tengingin yrði að
vera með göngum undir Hringbraut-
ina „eða yfirbyggðum rana og götu
að flughlaði,“ eins og það er orðað.
Skemmst er frá því að segja að ekki
er minnst einu orði á flugstöð innan-
landsflugs í tillögu borgarstjóra.
Alþjóðleg samkeppni
um samgöngumiðstöð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipulagsreitur Á Umferðarmiðstöðvarreit hyggst borgin skipuleggja sam-
göngumiðstöð sem verði fyrir allt landið. Þá verði þjónusta þar og íbúðir.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins bókuðu m.a. að óvíst
væri að nokkur þörf væri fyrir
samgöngumiðstöð af þessari
stærðargráðu og kostnaður
gæti orðið gríðarlegur fyrir
skattgreiðendur. Þeir ítrekuðu
tillögu sína um uppbyggingu
hagkvæms húsnæðis á reitnum.
Borgarfulltrúi Miðflokksins
bókaði m.a. að samgöngu-
miðstöð í Vatnsmýrinni hefði
verið á dagskránni um langa
hríð en engin uppbygging hefði
átt sér stað enn. Árið 2005
hefði verið gefin út viðamikil
skýrsla um miðstöð á þessum
stað og skyldi stöðin þjóna
bæði flugi og almennings-
samgöngum. „Ekkert hefur
gerst á þessum tíma og spilar
þar inn í þráhyggja meirihlutans
um að koma flugvellinum burtu
úr Vatnsmýrinni. Það er sláandi
að horfa upp á hvað verið er að
þrengja að flugvellinum á alla
kanta hans.“
Kostnaður
gríðarlegur
BÓKUN Í BORGARRÁÐI