Morgunblaðið - 12.10.2019, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
Vegna nýlegra breyt-
inga sem hafa orðið á
norðurslóðum undan-
farið ár eða svo hafa
ákveðnir aðilar verið
ötulir í að úthrópa
áhuga Kínverja á norð-
urslóðum og jafnvel
varað við „hættu“ af
þeirra völdum, án þess
að styðjast við neinar
staðreyndir og lýsir
þetta gamaldags „kalda
stríðs“-hugsunarhætti.
Af hverju hefur Kína áhuga á norð-
urslóðum? Hver er stefna Kína í norð-
urslóðamálum og hvað hefur Kína ver-
ið að gera í þessum málum? Ég vona
að þessi grein veiti lesandanum ein-
hverja innsýn og einhver svör.
Kína hefur lengi tekið þátt í norður-
slóðasamstarfi, svo snemma sem 1925
tók Kína þátt í Spitsbergen-
sáttmálanum. Enda lítur Kína þannig
á að það eigi hagsmuna að gæta á
norðurslóðum. Landfræðilega flokk-
ast Kína sem „nær-norðurslóðaland“
og er eitt af þeim löndum sem eiga
landsvæði hvað næst heimskauts-
baugnum. Náttúrulegar aðstæður á
norðurslóðum og breytingar á þeim
hafa bein áhrif á loftslags- og vistkerfi
Kína og hafa þar af leiðandi áhrif á
efnahagslega hagsmuni í landbúnaði,
skógrækt, fiskveiðum, sjávariðnaði og
í öðrum geirum atvinnulífsins. Kína á
einnig hagsmuna að gæta í málefnum
sem varða bæði einstök lönd og al-
þjóðasamfélagið á norðurslóðum, á
sviði loftslagsbreytinga, umhverf-
ismála, vísindarannsókna ásamt nýt-
ingu siglingaleiða, rannsóknum á
hugsanlegum auðlindum og nýtingu
þeirra, öryggismálum og yfirráðum á
norðurslóðum. Þessi atriði eru mik-
ilvæg undirstaða fyrir tilveru og þróun
allra landa jarðar og mannkyns alls,
og hafa bein áhrif á hagsmuni allra
landa, hvort sem þau eiga landsvæði á
norðurslóðum eða ekki, og er Kína þar
meðtalið. Kínverjar njóta þess frelsis
og réttinda, eins og aðrar þjóðir, að
geta stundað vísindarannsóknir, nýtt
sér siglingaleiðir og yfirflug á norð-
lægum breiddargráðum og sjáv-
arsvæðum sem tengjast
þeim, auk þess að geta
lagt neðansjávarkapla og
flutningspípur og rann-
sakað nýtingu á hugs-
anlegum náttúruauð-
lindum. Þessir
hagsmunir eru varðir af
alþjóðasamþykktum svo
sem Hafréttarsamningi
Sameinuðu þjóðanna
(UNCLOS) og Spits-
berger-sáttmálanum.
Sem fullgildur með-
limur Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna, sem hefur undirritað
fjölmargar samþykktir varðandi norð-
urslóðir, og sem ein stærsta viðskipta-
og orkunýtingarþjóð veraldar tekur
Kína á sig miklar skuldbindingar og
ábyrgð þegar kemur að málefnum
norðurslóða.
Kína er virkur þátttakandi í öllu því
er varðar málefni norðurslóða. Kín-
verska ríkisstjórnin leggur mikla
áherslu á þennan málaflokk og gaf út
hvítbók um stefnu Kína í málefnum
norðurslóða í janúar 2018, og kynnti
þar með umheiminum stefnu sína
gagnvart norðurslóðum í fyrsta skipti.
Stefna Kína í málefnum norðurslóða
er að auka skilning, vernda, þróa og
taka þátt í stjórnun svæðisins, með
það að markmiði að vernda sameig-
inlega hagsmuni allra landa og al-
þjóðasamfélagsins alls á norðurslóðum
og styðja við sjálfbæra þróun á svæð-
inu.
Til að ná þeim markmiðum sem er
lýst hér að ofan mun Kína taka þátt í
norðurslóðasamstarfi og hafa fjögur
grundvallarsjónarmið að leiðarljósi, en
þau eru: virðing, samvinna, hagsmunir
heildarinnar og sjálfbærni.
Þessi stefnumál og afstaða ná yfir
helstu atriði er varða afskipti Kína af
norðurslóðum, eða vísindarannsóknir,
umhverfisverndun, nýting auðlinda,
stýring og alþjóðleg samvinna til að
vinna að friði og stöðugleika, og munu
verða grunnur að þátttöku Kína í mál-
efnum er varða norðurslóðir í framtíð-
inni.
Á grunni ofangreindra markmiða og
afstöðu hefur Kína skipulagt fjöl-
marga rannsóknaleiðangra á norð-
urslóðum og er rannsóknaskipið Xue
Long (Snædrekinn) og „Gula fljóts“-
rannsóknamiðstöðin á Spitsbergen
(sem tekin var í gagnið árið 2014) mik-
ilvægur vettvangur margra þeirra.
Kína hefur náð að byggja smám sam-
an upp fjölbreytt rannsóknanet sem
stundar rannsóknir á sjó, ís og snjó,
andrúmslofti, líffræði og jarðfræði
norðurslóða. Kína fylgir Parísarsátt-
málanum og hefur beitt ýmsum að-
ferðum við að draga úr losun og
vernda vistkerfið á norðurslóðum og
hefur einnig tekið fullan þátt í rann-
sóknaverkefnum á sviði verndunar og
alþjóðasamvinnu við verndun lífríkis á
norðurslóðum.
Árið 2013 fékk Kína stöðu
áheyrnarfulltrúa í Norðurheimskauts-
ráðinu og hefur hvatt til samtals og
samvinnu á fjölmörgum sviðum milli
hinna átta norðurslóðaríkja. Kína hef-
ur einnig tekið ríkan þátt í ýmsum al-
þjóðlegum viðburðum í tengslum við
norðurslóðir.
Kínversk fyrirtæki hafa staðið fyrir
fjölbreyttum leiðöngrum og safnað
þekkingu um norðurslóðir. Árið 2013
náði kínverska fragtskipið Yong
Sheng að sigla norðaustursiglingaleið-
ina í gegnum norðurslóðir til áfanga-
staðar í Evrópu. Þessi sigling var
einnig hluti af þróun hinnar svoköll-
uðu „norðurskauts-silkileiðar“.
Kína og Ísland deila sameiginlegum
hagsmunum og svipaðri afstöðu til
málefna norðurslóða. Báðar þjóðirnar
leggja mikla áherslu á að takast á við
áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi,
vistkerfi, fiskveiðar og lífsgæði íbúa á
norðurslóðum. Löndin tvö standa fyrir
þeirri afstöðu að styrkja umhverf-
isvernd, sjálfbæra þróun og alþjóðlega
samvinnu til að viðhalda friði og stöð-
ugleika norðurslóða, og hafa þjóðirnar
tvær átt gott samstarf á þessu sviði.
Árið 2012 skrifuðu löndin tvö undir
viljayfirlýsingu milli ríkisstjórnar Al-
þýðulýðveldisins Kína og ríkisstjórnar
Íslands um samvinnu á sviði málefna
norðurslóða, og var þetta fyrsta vilja-
yfirlýsing sem Kína undirritaði við
norðurslóðaríki. Kína þakkar Íslandi
fyrir stuðninginn þegar Kína öðlaðist
sæti sem áheyrnarfulltrúi í Norð-
urskautsráðinu og styður Ísland heils-
hugar í núverandi formennsku Norð-
urskautsráðsins.
Í október 2018 hóf fyrsta kínversk-
íslenska rannsóknamiðstöðin op-
inberlega starfsemi sína með fjár-
magni frá báðum löndum og hefur
þjónað sem grunnur milli samskipta
vísindamanna frá Íslandi og Kína, en
einnig stuðlað að alþjóðlegum sam-
skiptum milli vísindamanna. Kína ger-
ir sér fulla grein fyrir hinu mikilvæga
hlutverki sem Ísland gegnir í mál-
efnum norðurslóða og hefur tekið þátt
í fundum Hringborðs norðurslóða í
mörg ár. Kína og Ísland stóðu sameig-
inlega fyrir málþingi um norðurslóðir í
Shanghai árið 2019. Samstarfið milli
þessara tveggja landa á sviði málefna
norðurslóða hefur ekki aðeins komið
Kína og Íslandi til góða, heldur einnig
öllum umheiminum.
Framtíð norðurslóða skiptir máli
fyrir hagsmuni hinna 8 heimskauts-
ríkja, velferð allra annarra ríkja og
mannkyns alls. Sem ábyrgur aðili, vill
Kína forðast spennu og valdaátök og
vill ekki koma á fót áhrifasvæðum á
norðurslóðum. Kína er reiðubúið til að
vinna með Íslandi og öðrum löndum
sem eiga hagsmuna að gæta að því að
takast á við þær áskoranir sem snúa
að norðurslóðum á sviði loftslags-
breytinga og umhverfisverndar, og
leggja þar með sitt af mörkum til að
stuðla að friði, stöðugleika og sjálf-
bærri þróun á norðurslóðum.
Kína mikilvægur aðili að
þróun norðurslóða
Eftir Jin Zhijian » Stefna Kína í mál-
efnum norðurslóða
er að auka skilning,
vernda, þróa og taka þátt
í stjórnun svæðisins.
Jin Zhijian
Höfundur er sendiherra Kína
á Íslandi.
Fundurinn, sem er
nokkuð fyrirsjáan-
legur, mun taka á
strandveiðum,
„króka“-aflamarki í
fiski sem veiðist í net
og veiðistýringu á grá-
sleppu.
Það sem gerir svona
fundi skemmtilegri en
marga aðra er hin
gríðarlega ósamstaða
sem virðist ríkja um
allt sem einhverju skiptir. T.d.
hljómar orðið hagræðing þar afar
illa.
Hér er kynnt „gömul lumma“ um
breytta og betri útfærslu á strand-
veiðum.
Það er einfaldlega gert ráð fyrir
að hver bátur fái úthlutað ákveðið
magn fyrir hvern þann mánuð sem
hann ætlar að stunda strandveiðar.
Engar aðrar reglur þurfa til að
koma, aðrar en um skipstjórn og
haffæri.
Smábátasjómenn ættu að velta
þessu fyrir sér fram að fundi.
Kostir þessa fyrirkomulags eru
þeir sömu og undirritaður hefur tí-
undað nokkur undanfarin ár. Hærra
fiskverð, hugsanlega 60% minni ol-
íueyðsla, minni vinna, auknar líkur á
nýliðun og frelsi hvers um sig til að
stjórna eigin róðrarlagi. Nið-
urstaðan er betri afkoma sem væri
þá hugsanlega, að einhverra mati,
eini gallinn við þetta fyrirkomulag.
Að öðru leyti er þessi leið gallalaus.
Hámarksmagn, per bát í mánuði,
væri fundið út með fjölda umsækj-
enda deilt í það magn sem í boði er
hverju sinni.
Það er fyndið að það skuli hafa
verið „grænn“ flokkur sem fann upp
vitleysuna. Þetta kerfi býður upp á
taumlausa olíueyðslu. Heiðrún Lind
Marteinsdóttir segir olíunotkun í
sjávarútvegi vera um 50% af því
sem hún var fyrir 1990. Það er engin
ástæða til að rengja þau orð. En við
viljum bæta í. Að mati undirritaðs
er þetta strandveiðikerfi því orðið
afar vandræðalegt. Samt er ekki úti-
lokað að það geti versnað.
Ef fundarmenn fylkja sér um
þessa tillögu í upphafi fundar þá
þarf ekki að ræða margar tillögur
um „plástra“ á núver-
andi kerfi. Það hafa
hins vegar komið fram
hugmyndir um að
lengja veiðitímabilið í
báðar áttir (apríl-sept.)
og það gæti gengið með
þessari nýju útfærslu.
Það verða raddir,
sem segja (eins og allt
fari þá til fjandans):
„Þetta er bara kvóti.“
Kvóti væri þá hugtak
sem undirritaður kýs
að láta öðrum eftir að
túlka. Þessi 774 kg sem nú má veiða,
hvern dag, eru þá líklega ekki
„kvóti“.
Það er heldur ekki ólíklegt að
fram komi tillaga um þá „plástrun“
að fjölga dögum í hverri viku. T.d.
að fá að fara á sjó til að leita að 774
kg á sunnudögum. Þeir eru oft 4 í
mánuði. Það þóttu „afar vel heppn-
aðar“ strandveiðar sl. sumar að 623
bátar skyldu sækja um leyfi. Gefum
okkur þá að 600 bátar réru þessa
sunnudaga og hver um sig færi með
200 l af olíu í róður. (Margir fara
betur með en aðrir lakar). Þetta
gerir 120 þús. lítra á einum sunnu-
degi. Á 16 sunnudögum gæti okkur
tekist að brenna 1.920.000 lítrum af
olíu. Í þessum rekstri eru peningar
auðvitað smámunir en m.v. góð kjör
á olíu (að sögn olíufélagsins) þá gæti
þessi tillaga kostað vel yfir 200
milljónir.
Trillukarlinn á að vita að ef stefn-
an er ekki góð þá er hægt að skipta
um stefnu.
Í samþykktum aðalfundar 2018
má finna eftirfarandi texta: „Aðal-
fundur L.S. samþykkir að strand-
veiðikerfið verði þróað áfram til að
bæta afkomu útgerða strand-
veiðibáta.“
Ef við viljum ekki setja þennan
pakka inn í aflamark, sem væri ekki
gott, þá er sú leið, sem nefnd hefur
verið hér að ofan, eina raunhæfa
leiðin að þessu markmiði.
Hlakka til að hitta ykkur.
Holl lesning
Eftir Gísla Gunnar
Marteinsson
Gísli Gunnar
Marteinsson
» Smábátasjómenn.
Holl lesning fyrir
aðalfund L.S.
Höfundur er sjómaður.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum