Morgunblaðið - 12.10.2019, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
Það er alltaf freistandi aðsetja upp verk sem treystamá að njóti hylli almennings og fylli húsið.
Metsölukvikmyndin Shakespeare in
Love, eða Shakespeare verður ást-
fanginn, eftir handriti Marcs Norm-
an og Toms Stoppard, sem frumsýnd
var 1998 naut mikilla vinsælda á sín-
um tíma. Ári síðar hampaði hún sjö
Óskarsverðlaunum, meðal annars
fyrir besta frumsamda handritið,
leikframmistöðu þeirra Gwyneth
Paltrow (í hlutverki Víólu) og Judi
Dench (sem Elísabet fyrsta Eng-
landsdrottning) og sem besta mynd
ársins. Þessi góða uppskera er ekki
síst eignuð kvikmyndaframleiðand-
anum Harvey Weinstein hjá Mira-
max sem mun hafa farið í markvissa
og dýra herferð til að ná sínu fram.
Fyrir fimm árum var sviðsleikgerð
Lee Hall á myndinni frumsýnd á
West End í London við mikinn fögn-
uð breskra gagnrýnenda. Bæði kvik-
myndinni og sviðsleikgerðinni hefur
verið lýst sem ástarbréfi til leikhúss-
ins, sem kemur ekki á óvart þar sem
verkið hverfist um leikskáldið Willi-
am Shakespeare og gerist að stórum
hluta í leikhúsi. Verkið er staðsett í
London 1593 og greinir frá raunum
Shakespeare við að skrifa leikritið
Rómeó og Ethel sjóræningjadóttir.
Shakespeare þjáist af ritstíflu og ótt-
ast að hafa glatað skáldgáfunni. Yfir-
stéttarstúlkan Víóla de Lesseps hef-
ur heillast af orðsnilli Shakespeare
þegar verk hans er flutt við hirðina
og á sér draum um að standa á leik-
sviði, en þar finnur hún það frelsi
sem samfélagið rænir konur þess
tíma. En konum er meinað að standa
á sviði svo hún bregður sér í karl-
mannsgervi og fer í áheyrnarprufur í
Rósarleikhúsinu, sem Philip Hens-
lowe á og rekur, undir dulnefninu
Thomas Kent. Þar heillast Shake-
speare fyrst af henni sem leikaranum
Thomas, en verður síðan ástfanginn
af konunni Víólu áður en hann áttar
sig á því að Thomas og Víóla eru í
raun ein og sama manneskjan.
Handritshöfundar leika sér á
skemmtilegan hátt með ýmsar vís-
anir í verk skáldsins og samtíma-
manna hans. Þannig má sjá sterka
samsömun milli elskendanna í
Rómeó og Júlíu og samskipta Shake-
speare og Víólu á svölunum og í
svefnherbergi hennar. Ungur piltur
sem leikur í Rósarleikhúsinu er leik-
skáldið John Webster og dauði leik-
skáldsins Christophers Marlowe
þjónar framgangi verksins til þess að
sætta elskendurna eftir ósætti.
Átjánda sonnetta Shakespeare, í
góðri þýðingu Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar, þjónar mikilvægu hlut-
verki, fóstra hjálpar elskendum,
draugagangur í anda Macbeth og
Hamlet fær að fljóta með ásamt
skylmingum auk þess sem bæði karl-
ar og konur taka á sig gervi hins
kynsins. Loks má nefna að skemmti-
leg tilgáta er sett fram um tilurð
Þrettándakvölds, sem Shakespeare
samdi í reynd sex árum og tíu leik-
ritum eftir að hann lauk við Rómeó
og Júlíu.
Uppfærsla Þjóðleikhússins á
Shakespeare verður ástfanginn í
leikstjórn Selmu Björnsdóttur, ber
með sér að ekkert hefur verið til
sparað í umgjörð og allri útfærslu.
Tignarleg leikmynd Finns Arnars
Arnarssonar á tveimur hæðum rúm-
ar svalir, svefnherbergi, stiga fyrir
eltingaleiki og heilt leikhús, en gam-
an var að sjá viðbyggingarnar við
stúkurnar sem kallast á við bygging-
arstíl leikhúsa í London á 16. öld.
Hringsviðið er síðan notað óspart til
að skipta um leikvöll þar sem leik-
hópurinn sýnir fimi sína meðal ann-
ars í bardagalist. Búningar Maríu
Th. Ólafsdóttur vísuðu oft skemmti-
lega í sjónrænan heim kvikmyndar-
innar. Kjólar og klæðnaður hefð-
arfólksins var töluvert fyrir augað
meðan búningar lágstéttarinnar
runnu nokkuð saman í eitt og þar
hjálpaði dökk lýsing Ólafs Ágústs
Stefánssonar ekki til. Tónlist Jóns
Jónssonar og Friðriks Dórs hentaði
ágætlega til að skapa rétta stemn-
ingu. Illskiljanleg er hins vegar sú
ákvörðun að láta tónlistarfólkið vera í
forgrunni í innilegustu senum Shake-
speare og Víólu. Ástarsamband
þeirra, sem er hjartað í sýningunni,
og í framhaldinu örvæntingin yfir því
að Víóla sé neydd af föður sínum til
að giftast jarlinum af Wessex, fékk
fyrir vikið ekki það pláss sem þarf í
sýningunni til þess að hún snerti við
áhorfendum. Aron Már Ólafsson og
Lára Jóhanna Jónsdóttir gerðu engu
að síður sitt besta í hlutverkum elsk-
endanna og ekki við þau að sakast að
innileikinn og nándin varð undir.
Eins og áður segir hefur Shake-
speare verður ástfanginn verið lýst
sem ástarbréfi til leikhússins, sem
helgast meðal annars af því hversu
fyrirferðarmikið leikritið í leikritinu
er. Stór hluti verksins gerist í Rósar-
leikhúsinu þar sem verið er að undir-
búa og æfa uppsetninguna á Rómeó
og Júlíu. Af leikhúsfólkinu er óhætt
að segja að Guðjón Davíð Karlsson
og Þröstur Leó Gunnarsson hafi stol-
ið senunni í hlutverkum sínum sem
leikhússtjórinn Henslowe og pen-
ingamangarinn Fennyman, sem upp-
veðrast allur þegar honum býðst að
fara með lítið en mikilvægt hlutverk
lyfsalans. Hilmir Jensson gerði mikið
úr örhlutverki Wabash klæðskera
sem dreymir um að standa á sviði
þrátt fyrir heiftarlegt stam. Nokkuð
skorti á afgerandi persónusköpun og
skýra afstöðu annarra leikara hjá
Rósarleikhúsinu, sem gerði það að
verkum að leikhússenurnar urðu flat-
ar og óáhugaverðar. Hvort þetta
skýrist af því að of mikil áhersla hafi
verið lögð á að sýna viðvaningshátt
leikhópsins, þar sem sumum datt
ekki annað í hug en að bora í nefið á
leikæfingum, er ekki gott að segja. Í
öllu falli skorti leikhústöfrana hjá
leikhópi Rósarleikhússins. Auk þess
má setja stórt spurningarmerki við
að lýsa leikhúsmenningu Elísabetar-
tímans á þennan hátt. Það er erfitt að
ímynda sér að mesta blómaskeið leik-
ritunar í heimsmenningunni, að því
forn-gríska einu undanskildu, hafi
sprungið út á vettvangi fúskara og fá-
ráða eins og hér virðist gengið út frá.
Þrátt fyrir vinsældir kvikmyndar-
innar á sínum tíma er ekki sjálfgefið
að listaverk eldist vel, enda ljóst að
tímarnir breytast og manneskjurnar
með. Á tímum Shakespeare máttu
konur til dæmis ekki leika á sviði,
sem skýrir mögulega að hluta ójöfn
kynjahlutföll leikritanna. Shake-
speare verður ástfanginn endur-
speglar heim þar sem karlar eru í
miklum meirihluta og konum er ætl-
að að þjóna, hvort heldur er sem
barnfóstrur, vændiskonur eða hrein-
lega útungunarvélar. Elísabet fyrsta,
sem Jóhanna Vigdís Arnardóttir ger-
ir ljómandi skil, er eina valdamikla
kona verksins – en ekki má gleyma
því að hún valdi að giftast aldrei né
eignast börn af ótta við að missa völd
sín í hendur eiginmanns eða nýfædds
sonar. Víóla, sem þjónað hefur sem
músa skáldsins, fórnar ástinni til
þess að Shakespeare geti skapað
ódauðleg snilldarverk. Í samtölum
sínum við fóstruna, sem Edda Björg-
vinsdóttir fer fallega með, bendir
Víóla á að ást muni aldrei virka sönn
á leiksviði fyrr en konur stíga sjálfar
á svið. Spyrja má sig hvort leikhúsið
geti verið sátt við endurspeglun sína
á samfélagið meðan enn hallar jafn-
mikið á konur á leiksviðinu og raun
ber vitni.
Ástin fyrir ódauðleikann
Ljósmynd/Saga Sig.
Innileiki „Aron Már Ólafsson og Lára Jóhanna Jónsdóttir gerðu engu að síður sitt besta í hlutverkum elskendanna og ekki við þau að sakast að innileikinn
og nándin varð undir,“ segir í rýni um Shakespeare verður ástfanginn sem byggist á samnefndri kvikmynd sem frumsýnd var fyrir um tveimur áratugum.
Þjóðleikhúsið
Shakespeare verður ástfanginn
bbbnn
Eftir Marc Norman og Tom Stoppard.
Aðlagað að leiksviði af Lee Hall. Íslensk
þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson.
Leikstjórn: Selma Björnsdóttir. Leik-
mynd: Finnur Arnar Arnarson. Búningar:
María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Ólafur
Ágúst Stefánsson. Tónlist: Jón Jónsson
og Friðrik Dór. Tónlistarstjórn og út-
setningar: Karl Olgeir Olgeirsson. Hljóð-
hönnun: Kristinn Gauti Einarsson og
Kristján Sigmundur Einarsson. Grafík:
Pálmi Jónsson. Sviðshreyfingar: Þórey
Birgisdóttir. Bardagalistir: Kevin
McCurdy. Leikgervi: María Th. Ólafs-
dóttir og Tinna Ingimarsdóttir. Tónlist-
arflytjendur: Karl Olgeir Olgeirsson,
GDRN – Guðrún Ýr Eyfjörð, Matthías
Stefánsson, Friðrik Sturluson og Krist-
inn Snær Agnarsson. Leikarar: Aron
Már Ólafsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björg-
vinsdóttir, Örn Árnason, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Jóhann G. Jóhannsson,
Guðjón Davíð Karlsson, Þröstur Leó
Gunnarsson, Atli Rafn Sigurðarson,
Björn Ingi Hilmarsson, Sigurður Sigur-
jónsson, Hákon Jóhannesson, Bjarni
Snæbjörnsson, Hilmir Jensson, Davíð
Þór Katrínarson, Ágúst Örn B. Wigum,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Þórey
Birgisdóttir og Eygló Hilmarsdóttir.
Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins föstudaginn 4. október 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
ULTRA
KATTASANDUR
– fyrir dýrin þín
■■■ Sporast lítið
■■■ Lyktarlaus
■■■ Frábær lyktareyðing
■■■ Náttúrulegt hráefni
■■■ 99.9% rykfrír
■■■ Klumpast vel