Morgunblaðið - 12.10.2019, Síða 56

Morgunblaðið - 12.10.2019, Síða 56
Sönghópurinn Norðurljós heldur hausttónleika í dag kl. 15 í Fella- og Hólakirkju og býður upp á kaffi- hlaðborð í lokin. Stjórnandi og und- irleikari verður Arnhildur Valgarðs- dóttir og Matthías Stefánsson leikur á fiðlu og gítar og Sigríður Einarsdóttir og Helgi Bjarnason á flautur. Birna Jensdóttir og Hrönn Harðardóttir verða einsöngvarar. Norðurljós fagna hausti með tónleikum LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 285. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Hann segir mér bara að halda kjafti ef svo ber undir. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hafa ekki margir gert það í gegnum tíðina og ég held að það sé bara gott fyrir mig,“ segir Hörður Axel Vilhjálms- son landsliðsmaður í körfuknattleik sem leikur undir stjórn Hjalta bróð- ur síns hjá Keflavík en lið þeirra er kynnt á íþróttasíðum í dag. »46 Segir mér að halda kjafti ef svo ber undir TEDxReykjavík fagnar tíu ára af- mæli sínu á morgun, 13. október, með ráðstefnu í Háskólabíói sem hefst kl. 10 og lýkur kl. 15. Þema við- burðarins er Breyttir tímar og munu margir frumkvöðlar og hugsuðir stíga á svið ásamt erlendum mót- aðilum sínum og miðla hugmyndum að betra umhverfi og bættri framtíð til áhorfenda í fyrirlestrum sem haldnir verða á ensku. Meðal fyrirlesara verða Edda Björgvinsdóttir og Sigursteinn Róbert Másson. Frekari upplýs- ingar má finna á tedx- reykjavik.is. TEDxReykjavík haldin í Háskólabíói á morgun ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kjólahönnuðurinn Eyrún Birna Jónsdóttir hvetur konur sem eru að fara að gifta sig til þess að vanda vel valið á brúðarkjólnum og öðru sem brúðkaupinu fylgir. „Hver brúðar- kjóll er sérstakur, ég legg áherslu á umhverfisvæna kjóla og sú markaðs- setning hefur hitt í mark,“ segir hún. Eyrún lærði kjólasaum í Tækni- skólanum. Hún hafði saumað brúð- arkjóla í nokkur sumur þegar hún ákvað að hella sér alfarið út í sauma- skapinn fyrir um tveimur árum. Þá stofnaði hún fyrirtækið Brúðarkjóla Eyrúnar Birnu. „Þjónustan hefur spurst út og verkefnum fjölgað jafnt og þétt í kjölfarið enda er ég með ákveðna sérstöðu.“ Endurnýting er lykilorðið. Eyrún segist nýta blúndur úr dúkum og gardínum og öðru slíku. Hún láti þessa hluti ekki framhjá sér fara og sé dugleg við að sanka þeim að sér auk þess sem hún fái reglulega gefins fulla poka af fallegum gardínum og dúkum. „Það er sérstaklega gaman þegar konur koma með dúk sem til dæmis amma þeirra átti og ég sauma brúðarkjól úr honum. Kjóllinn verður vart persónulegri og öruggt að annar eins fyrirfinnst ekki.“ Endurunnið efni Eyrún segist hafa saumað upp úr því sem var til þegar hún var lítil stelpa, sú iðja hafi orðið að áhugamáli og síðar atvinnu. „Ég gramsaði í geymslum og kössum, spurði mömmu hvort ég mætti eiga þennan dúk eða hinn, sneið upp og saumaði mér kjól. Ég hef alltaf horft á efni með þessum augum: hvað get ég gert úr þessu?“ Brúðarkjólar eru mismunandi eins og annað. Eyrún segist ekki bara sauma umhverfisvæna kjóla en reyni alltaf að benda á þann möguleika. „Mér finnst svo flott að eiga kjól upp úr endurunnu efni með sögu og konur sem hafa til dæmis beðið mig að sauma kjól upp úr dúkum eða öðrum gersemum sem til eru uppi í skáp hafa verið alveg í skýjunum með út- komuna.“ Færst hefur í vöxt að konur panti ódýra brúðarkjóla á netinu. Eyrún segir mörg dæmi þess að konur hafi komið til sín með fjóra til fimm slíka kjóla og beðið sig að laga þá því þeir passi ekki. „Ég verð sorgmædd þeg- ar ég sé þessa sóun og hugsa um uppsafnað magn af kjólum sem eng- inn notar og eru eiginlega ónothæfir. Þá óska ég þess að konurnar hefðu komið til mín fyrst og notfært sér þá þjónustu að fá saumaðan á sig kjól í nærumhverfinu. Ég sé um allt hand- verk og þegar upp er staðið er það ekki endilega dýrara en að kaupa köttinn í sekknum.“ Eyrún gifti sig í brúðarkjól móður sinnar. „Ég lagaði hann til og breytti honum aðeins,“ segir hún. „Mér finnst það vera mjög góður kostur ef konur geta nýtt kjóla sem til eru því það er umhverfisvænast.“ Morgunblaðið/Hari Kjólahönnuður Eyrún Birna Jónsdóttir endurnýtir efni og leggur áherslu á umhverfisvæna kjóla. Saumar umhverfis- væna brúðarkjóla  Eyrún Birna sankar að sér gardínum og dúkum 25% afsláttur af völdum vörum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.