Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 45
Að greinast með krabbamein hefur áhrif á líf þess sem veikist og fjölskyldu hans. Allir
finna fyrir einhverri vanlíðan við þessar aðstæður. Við greiningu krabbameins fer oft
flókið ferli í gang, meðferðin er gjarnan margþætt og þjónustan oft veitt af mörgum
fagaðilum á mismunandi stöðum í heilbrigðiskerfinu. Hætta er á brotakenndri þjón -
ustu og einstaklingurinn og fjölskylda hans hafa mikla þörf fyrir faglega leiðsögn og
stuðning á þessu tímabili.
Víða í heiminum hefur verið hafin vinna við að innleiða sjúklingamiðaða þjónustu
(patient centered care) til þess að bæta þjónustuna í gegnum allt veikindaferli krabba -
meinssjúklinga strax frá greiningu sjúkdómsins. Áhersla er lögð á óskir og þarfir sjúk-
lingsins og að öll samskipti og fræðsla séu einstaklingsmiðuð. Einnig er lögð áhersla
á að meta og meðhöndla einkenni og líðan með markvissum hætti og að stuðla að
samfellu og samhæfingu í þjónustunni. Í rannsóknum á sjúklingamiðaðri þjónustu
hafa komið fram vísbendingar um að hún geti aukið ánægju með þjónustu, bætt lífs-
gæði, bætt sálræna líðan, minnkað óvissu og fækkað vandamálum sem tengjast
sjúkdómnum og margháttaðri meðferð við honum.
Mismunandi þjónustuform, sem hafa það markmið að veita sjúklingamiðaða þjón -
ustu, hafa verið skipulögð og er algengt að hjúkrunarfræðingar séu lykilaðilar í þjón -
ust unni. Leiðsögn veitt af hjúkrunarfræðingi (nurse navigation) og umsjónar hjúkrun
(nurse case management) eru dæmi um sjúklingamiðaða hjúkrunarþjónustu og hefur
það fyrrnefnda verið að ryðja sér til rúms víðs vegar í heiminum og þá sér í lagi fyrir
krabbameinssjúklinga og fjölskyldur þeirra. Leiðsögn veitt af hjúkrunarfræðingi er
einstaklingsmiðuð þjónusta fyrir sjúklinga og fjölskyldur þeirra sem miðar að því að
veita heildræna þjónustu, allt frá greiningu til sjúkdómsloka. Á Íslandi er víðast veitt
einstaklingsmiðuð þjónusta en í fæstum tilfellum er um formlegt sjúklingamiðað
þjónustuform að ræða þar sem leiðsögn er veitt af hjúkrunarfræðingi frá greiningu.
ÉG GET — verið virkur þátttakandi
Í sjúklingamiðaðri þjónustu er lögð rík áhersla á sjálfseflingu og að sjúklingurinn sé
virkur þátttakandi í sínu krabbameinsferli. Hlutverk fagaðila er meðal annars að hvetja
sjúklinginn og fjölskyldu hans til sjálfseflingar og að sníða fræðslu og upplýsingar að
óskum þeirra og þörfum til að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir. Markmiðið með
sjálfseflingu er meðal annars að sjúklingurinn og fjölskylda hans eigi auðveldara með
að aðlagast breyttum aðstæðum og búi yfir færni til að bregðast fljótt við vandamálum
sem geta komið upp og leiti sér aðstoðar tímanlega. Þannig getur sjálfsefling stuðlað
að bættri líðan og meiri lífsgæðum.
Samtök evrópskra krabbameinsfélaga hafa hvatt aðildarfélög sín til að gera áætlanir
varðandi þjónustu við krabbameinssjúklinga. Öll Norðurlöndin nema Ísland hafa birt
slíkar krabbameinsáætlanir. Til þess að styðja við sjúklingamiðaða þjónustu er m.a. í
sænsku krabbameinsáætluninni mælt með að allir sem greinast með krabbamein fái
úthlutaðan hjúkrunarfræðing sem lykilaðila (kontaktsjuksköterska) strax við grein -
ingu og í Danmörku var gengið skrefinu lengra og sett í lög að sjúklingar fái slíkan
lykilaðila. Á Íslandi hefur verið unnið að gerð krabbameinsáætlunar á vegum vel -
ferðar ráðuneytisins. Niðurstaða þeirrar vinnu hefur enn ekki verið birt en það er von
fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga að þessi áætlun fjalli um sjúklingamiðaða
þjónustu í takt við aðrar þjóðir.
við getum — ég get …
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 45
Sjúklingamiðuð þjónusta
Kristín Sigurðardóttir
Kristín Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur,
MSc, og formaður í fagdeildar krabbameins-
hjúkrunarfræðinga.