Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 58
Sjúklingar sem námsmenn: Hvað vill fólk vita fyrir skurðaðgerð, hvernig vill það fræðast og gætu kennslu tölvuleikir gagnast í sjúklingafræðslu? Brynja Ingadóttir varði doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði við Linköpingháskóla í Svíþjóð þann 24. nóvember 2016. Ritgerðin ber heitið Sjúklingar sem námsmenn: Hvað vill fólk vita fyrir skurðaðgerð, hvernig vill það fræðast og gætu kennslutölvu- leikir gagnast í sjúklingafræðslu? (Learning as a patient: What and how individuals want to learn when preparing for surgery and the potential use of serious games in their education). Fræðsla gerir sjúklingum betur kleift að taka þátt í umönnun sinni en það er mjög mikilvægt fyrir bata þeirra eftir skurðaðgerð. Sjúklingafræðslu má veita með ýmsum aðferðum, til dæmis munnlega, með bæklingum eða með því að nota upplýsingatækni á formi vefsíðna eða kennslutölvuleikja. Meginmarkmið doktorsverkefnisins, sem fólst í fjórum rannsóknum, var að lýsa væntingum skurðsjúklinga til fræðslu, lýsa því hvernig þeir vilja læra og að kanna möguleika kennslutölvuleikja í sjúklingafræðslu. Rannsóknirnar leiddu í ljós að sjúklingar væntu mikils af fræðslu en þær vonir voru ekki uppfylltar nema að litlu leyti. Viðhorf þeirra til nýrra og hefðbundinna aðferða og miðla til að læra mótaðist af trausti á fræðslumiðli og eigin áhugahvöt. Þótt áhugi væri á notkun vefsíðna og kennslutölvuleikja gætti ákveðinnar tortryggni í garð þeirra og þátttakendur kölluðu eftir ráðleggingum og aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við slíka notkun. Tölvuleikur til að hjálpa sjúklingum að læra um verkjameðferð eftir skurð - aðgerð var saminn og prófaður í doktorsverkefninu. Nothæfi leiksins var metin mikil og vísbendingar voru um að með því að spila leikinn bættu þátttakendur þekkingu sína um verkjameðferð. Leiðbeinendur voru prófessor Tiny Jaarsma, dr. Ingela Thylén og prófessor Mitra Unosson. Andmælandi var prófessor Björn Fossum. Brynja Ingadóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1980, BS-prófi í hjúkrunarfræði árið 1986 frá Háskóla Íslands og MS-prófi í hjúkrunarfræði árið 2007 frá Royal College of Nursing við Háskólann í Man - chester og Háskólanum á Akureyri. Brynja starfar sem sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og aðjunkt við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís- lands. Færni í sjúklingafræðslu. Viðhorf sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks með reynslu af fræðslu um kransæðasjúkdóma Margrét Hrönn Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor við Heilbrigðisvísinda - svið HA, lauk doktorsprófi við Læknadeild Norwegian University of Science and Technology (NTNU) í Þrándheimi 29. janúar 2016. Titill doktorsritgerðarinnar er: Færni í sjúklingafræðslu. Viðhorf sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks með reynslu af fræðslu um kransæðasjúkdóma (Competence development in patient education; The perspective of health professionals and patients with experience in patient education in cardiac care). Doktorsverkefnið byggist á tveimur eigindlegum rannsóknum. Þátttakendur voru 19 hjúkrunarfræðingar, læknar og sjúkraþjálfarar með reynslu af umönnun og fræðslu kransæðasjúklinga og 17 sjúklingar sem höfðu nýlega greinst með kransæðasjúkdóm og fengið formlega fræðslu eftir útskrift af sjúkrahúsi. Markmið rannsóknanna var nýlegar doktorsvarnir í hjúkrunarfræði 58 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 Brynja Ingadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.