Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Side 58
Sjúklingar sem námsmenn: Hvað vill fólk vita fyrir
skurðaðgerð, hvernig vill það fræðast og gætu
kennslu tölvuleikir gagnast í sjúklingafræðslu?
Brynja Ingadóttir varði doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði við Linköpingháskóla í
Svíþjóð þann 24. nóvember 2016. Ritgerðin ber heitið Sjúklingar sem námsmenn:
Hvað vill fólk vita fyrir skurðaðgerð, hvernig vill það fræðast og gætu kennslutölvu-
leikir gagnast í sjúklingafræðslu? (Learning as a patient: What and how individuals
want to learn when preparing for surgery and the potential use of serious games in
their education).
Fræðsla gerir sjúklingum betur kleift að taka þátt í umönnun sinni en það er mjög
mikilvægt fyrir bata þeirra eftir skurðaðgerð. Sjúklingafræðslu má veita með ýmsum
aðferðum, til dæmis munnlega, með bæklingum eða með því að nota upplýsingatækni
á formi vefsíðna eða kennslutölvuleikja. Meginmarkmið doktorsverkefnisins, sem
fólst í fjórum rannsóknum, var að lýsa væntingum skurðsjúklinga til fræðslu, lýsa því
hvernig þeir vilja læra og að kanna möguleika kennslutölvuleikja í sjúklingafræðslu.
Rannsóknirnar leiddu í ljós að sjúklingar væntu mikils af fræðslu en þær vonir voru
ekki uppfylltar nema að litlu leyti. Viðhorf þeirra til nýrra og hefðbundinna aðferða
og miðla til að læra mótaðist af trausti á fræðslumiðli og eigin áhugahvöt. Þótt áhugi
væri á notkun vefsíðna og kennslutölvuleikja gætti ákveðinnar tortryggni í garð þeirra
og þátttakendur kölluðu eftir ráðleggingum og aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við slíka
notkun. Tölvuleikur til að hjálpa sjúklingum að læra um verkjameðferð eftir skurð -
aðgerð var saminn og prófaður í doktorsverkefninu. Nothæfi leiksins var metin mikil
og vísbendingar voru um að með því að spila leikinn bættu þátttakendur þekkingu
sína um verkjameðferð.
Leiðbeinendur voru prófessor Tiny Jaarsma, dr. Ingela Thylén og prófessor Mitra
Unosson. Andmælandi var prófessor Björn Fossum.
Brynja Ingadóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið
1980, BS-prófi í hjúkrunarfræði árið 1986 frá Háskóla Íslands og MS-prófi í
hjúkrunarfræði árið 2007 frá Royal College of Nursing við Háskólann í Man -
chester og Háskólanum á Akureyri. Brynja starfar sem sérfræðingur í hjúkrun á
Landspítala-háskólasjúkrahúsi og aðjunkt við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands.
Færni í sjúklingafræðslu. Viðhorf sjúklinga og
heilbrigðisstarfsfólks með reynslu af fræðslu um
kransæðasjúkdóma
Margrét Hrönn Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor við Heilbrigðisvísinda -
svið HA, lauk doktorsprófi við Læknadeild Norwegian University of Science and
Technology (NTNU) í Þrándheimi 29. janúar 2016. Titill doktorsritgerðarinnar er:
Færni í sjúklingafræðslu. Viðhorf sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks með reynslu af
fræðslu um kransæðasjúkdóma (Competence development in patient education; The
perspective of health professionals and patients with experience in patient education
in cardiac care).
Doktorsverkefnið byggist á tveimur eigindlegum rannsóknum. Þátttakendur voru
19 hjúkrunarfræðingar, læknar og sjúkraþjálfarar með reynslu af umönnun og fræðslu
kransæðasjúklinga og 17 sjúklingar sem höfðu nýlega greinst með kransæðasjúkdóm
og fengið formlega fræðslu eftir útskrift af sjúkrahúsi. Markmið rannsóknanna var
nýlegar doktorsvarnir í hjúkrunarfræði
58 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017
Brynja Ingadóttir.