Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 11
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 11
vandamál. Því kann hjúkrun framtíðarinnar að
snúast öðrum þræði um að skapa og þróa sífellt
nýjar leiðir og að fara ótroðnar slóðir til að
uppfylla síbreytilegar þarfir notenda. Að þessu
sögðu er æskilegt að hjúkrunarnámið taki mið
af þessum þörfum og leggi áherslu á að örva
sköpun, gagnrýna hugsun, leiðtogahæfni og
frumkvöðlagetu strax í hjúkrunarnáminu.
Að þessu sögðu má ætla að fjórða iðnbyltingin
muni hafa ófyrirsjáanleg áhrif á hver
viðfangsefni hjúkrunar verða um ókomin
ár. Sjúklingar okkar lifa og starfa í breyttum
heimi frá degi til dags og ef til vill má leita
í vísindaskáldskap til að reyna að ímynda
sér hverjar hjúkrunarþarfir þeirra verða
í framtíðinni. Í sjónvarpsþáttunum Star
Trek, sem eru vísindaskáldskapur, er að
finna veru sem kemur frá reikistjörnunni
Omicron. Þessi tilbúna vera er vitvél (artificial
intelligent robot) sem hefur öll einkenni
manneskju nema hún býr ekki yfir mannlegum
tilfinningum. Þannig gerir vísindaskáldskapur
greinarmun á vitvél og manneskju og áætlar
að eitt af því sem aðgreini þær sé getan til
að upplifa tilfinningar og bregðast við þeim.
Með þetta í huga væri rökrétt að draga þá
ályktun að hjúkrun framtíðarinnar muni
að töluverðu leyti snúast um að hjálpa fólki
að þekkja og skilja tilfinningar sínar við
hverjar þær aðstæður sem lífið býður upp
á. Framtíðarhjúkrunarfræðingur þyrfti því
að hafa sjálfur ríka tilfinningagreind sem og
búa yfir þeirri þekkingu og hæfni sem þarf
til að örva þroska tilfinningagreindar hjá
skjólstæðingi sínum.
Að lifa tilgang sinn
En það er að öllum líkindum fleira en
getan til að þekkja og upplifa tilfinningar
sem aðgreinir manneskjuna frá vitvélinni.
Kjarni mennskunnar er meginviðfangsefni
heimspekinnar og takast þar á ýmsar stefnur.
Tilvistarheimspeki færir rök fyrir því að
fyrir tilstilli meðvitundar manneskjunnar
skapar hún eða ákvarðar sín eigin lífsgildi,
raunveruleikaskynjun og tilgang lífsins. Og
þessi vídd mennskunnar hefur einmitt verið
viðfangsefni fjölmargra bókmenntaverka,
leikrita og kvikmynda samtímans. Sem dæmi
má nefna kvikmyndina Matrix en þar er
söguþráðurinn sá að veruleikinn, sem allir
upplifa, sé tölvustýrður sýndarveruleiki sem
vitvélar skapa og stýra en mannkynið lifir og
hrærist í þessum sýndarveruleika. Vitvélarnar
hafa fundið leið til að nýta sér hita og orku
manneskjunnar í sína þágu. Þannig halda þær
mannskepnunni í sýndarveruleikagíslingu
og rækta þær í þeim eina tilgangi að hafa
þær sér til orkunýtingar. Aðalsögupersónan,
Neo, uppgötvar að sýndarveruleikinn er ekki
raunveruleikinn og hann finnur ákveðna
tilvistarangist og í framhaldinu þarf hann
að leita að sínum eigin tilgangi og veruleika.
Söguþráðurinn er jafnan talinn útópískur og
eru taldar litlar líkur á að þróun tækninnar
leiði inn á þessa braut. Á hinn bóginn eru
blikur á lofti þegar að fjórðu iðnbyltingunni
kemur og hvort skilin milli sýndarveruleika og
raunveruleika verði okkur æ óljósari.
Að líkindum verður það eitt af helstu
viðfangsefnum hjúkrunar í framtíðinni að
styðja við veruleikaskynjun skjólstæðingins
og að takast á við það verkefni að lifa
tilgang sinn, eða í raun að hjúkra mennsku
skjólstæðingsins.
1903
Fyrstu greinar um hjúkrun, skrifaðar af hjúkrunarkonu birtast í Kvennablaðinu