Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 79
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 79
Forssögu þess að ég varð formaður Félags háskóla-
menntaðra hjúkrunarfræðinga má rekja til þeirrar félags-
legu fagmótunar sem var einkennandi á námsárum mínum
í hjúkrunarfræði 1977-1981. Þar var meðal annarra fremst í
flokki Ingibjörg R. Magnúsdóttir námsbrautarstjóri sem var
mjög hvetjandi, og sýn hennar og viðhorf höfðu mikil áhrif
á mig. Í aðdraganda formannskosninga 1985 bauð ég mig
fram þar sem ég hafði áhuga á því að leggja mitt af mörkum
til að vinna að hagsmunum stéttarinnar.
Tíðarandinn þessi tvö ár 1985-1987 sem ég var formaður fyrir Félag
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga var nokkuð sérstakur. Það voru
tvö félög hjúkrunarfræðinga í landinu og ákveðin spenna og óvissa ríkti
á milli félaganna. Þrátt fyrir það var lögð mikil áhersla á gott samstarf
þessara tveggja félaga sem í minningunni gekk mjög vel. Að sjálfsögðu
komu upp ágreiningsefni sem þurfti að takast á við, en eftir á að hyggja
tel ég það ekki hafa verið stórvægileg málefni. Enda fór það svo að lokum
að þessi félög sameinuðust til mikillar farsældar.
Barist um bætt kjör og að fá stéttina viðurkennda sem
háskólastétt
Í formannstíð minni voru helstu baráttumálin kjaramál og að fá
stéttina viðurkennda sem háskólastétt. Kröftugar vinnudeilur urðu
í minni tíð og verkfall sem tók mikið á sem skiluðu þó verulegum
kjarabótum fyrir stéttina. Þá var líka mikið rætt um stöðu stéttarinnar
í heilbrigðisþjónustunni og hvað væri farsælt að leggja áherslu á til
að efla stéttina enn frekar. Það sem einnig einkenndi þennan tíma var
einstakt og framsýnt fólk sem ég fékk tækifæri til að starfa með. Ég á
því margar góðar minningar frá þessum tíma sem var bæði í senn mjög
lærdómsríkur og krefjandi.
Það er margt sem hægt er að minnast á þessu 100 ára afmæli. Ég
held samt að það hafi verið einstakt að horfa á þá miklu þróun sem
hefur orðið innan stéttarinnar. Þekking hjúkrunarfræðinga nýtist
á svo mörgum sviðum í samfélaginu. Þá er líka allt þetta góða og
metnaðarfulla fólk sem maður hefur kynnst, verið í tengslum við og
starfað með innan stéttarinnar.
Frjósamur jarðvegur fyrir áframhaldandi þróun stéttarinnar
Síðan ég var formaður hefur gríðarlega margt breyst. Verulega aukin
fjölbreytni í störfum hjúkrunarfræðinga og nýjar kynslóðir hafa tekið
við með ný viðhorf og sýn. Menntunartækifæri hjúkrunarfræðinga hafa
eflst og það gefur ungum hjúkrunarfræðingum ótrúlega fjölbreytt og
spennandi tækifæri. Ég hef haft sérstakan áhuga á að fylgjast með þessari
þróun þar sem báðar dætur mínar hafa valið sér hjúkrunarfræðina
sem ævistarf. Mitt mat er að það að hafa BS-gráðu í hjúkrunarfræði
sé gríðarlega innihaldsríkt veganesti fyrir ungt fólk út í lífið og gefi
óendanlega mikla möguleika til að rækta eigið áhugasvið með frekari
menntun og starfsþróun varðandi starfsframa.
Miðað við þá þróun sem hefur orðið á síðustu árum þá virðist mér
vera mjög frjósamur jarðvegur fyrir áframhaldandi þróun stéttarinnar.
Þar hefur menntun áhrif sem og viðhorf nýrra kynslóða. Þessi þróun
sem felst í enn frekari eflingu menntunar og aukinnar fjölbreytni í
störfum hjúkrunarfræðinga í samfélaginu. Ég vil þó í lokin taka fram að
það eru einkum þrír þættir sem þarf að hafa í huga hvað varðar frekari
jákvæða þróun. Í fyrsta lagi eru verulegar og réttlátar úrbætur á kjörum
stéttarinnar, í öðru lagi bætt starfsaðstaða hjúkrunarfræðinga í víðum
skilningi, sér í lagi innan sjúkrahússkerfisins, og í þriðja lagi að fara í
ítarlega ígrundun og aðgerðir varðandi virkari leiðir til að efla enn frekar
faglega félagsmótun stéttarinnar í þeim tilgangi að gera starfsvettvang
hjúkrunarfræðinga enn áhugaverðari.
Til hamingju með 100 ára afmælið
Hjúkrunarfræði-
menntun er
innihaldsríkt veganesti
fyrir ungt fólk út í lífið
FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI
Magnús Ólafsson
formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
1985-1987
1985 1986
Hjúkrunarskóli Íslands hættir störfum