Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 90

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 90
90 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Árið 1980 var mikið kvennaár. Vigdís Finnbogadóttir var valin forseti fyrst kvenna í heiminum, í lýðræðislegum kosningum. Kvennaframboð í Reykjavík leit dagsins ljós 1982 og í kjölfarið var Kvennalistinn stofnaður árið 1983. Heildstæð löggjöf um málefni aldraðra var samþykkt árið 1983. Lög um sjúkraliða ári síðar, en þeir höfðu áður átt stoð í hjúkrunarlögum. Formannstíðin byrjaði vel en varð fljótt annasöm því miklar hræringar voru hvað snerti heilbrigðismál, kjaramál og menntunarmál stéttarinnar. Ég var gerð að formanni kennaradeildar Hjúkrunarfélags Íslands (HFÍ) nýkomin heim úr framhaldsnámi frá Noregi vorið 1973. Yfirlýst stefna deildarinnar var að nám hjúkrunarfræðinga ætti að vera í Háskóla Íslands og hjúkrunarfræðingum yrði gert kleift að bæta við sig námi til BS-gráðu samkvæmt raunhæfu mati. Þegar ég gaf kost á mér til formannskjörs félagsins árið 1982 setti ég þetta fram sem mitt baráttumál. Taldi mig vita að væri nám hjúkrunarfræðinga samræmt fylgdi sameining hjúkrunarfélaganna tveggja í kjölfarið. Ágreiningur um launakjör stéttarinnar hyrfi og hún stefndi ótrauð að því að rækja hlutverk sitt í heilbrigðisþjónustunni. Helstu baráttumál hjúkrunarfræðinga í minni formannstíð Það var mikil gróska í menntunarmálum. Kennaradeild HFÍ barðist fyrir því að hjúkrunarnám færi ekki í nýstofnaða fjölbrautaskóla. Fjölbraut í Breiðholti var tilraunaskóli með margar nýjar námsleiðir, m.a. sjúkraliðabraut. Sjúkraliðaskóli Íslands var líka starfandi við góðan orðstír. Sjúkraliðar sóttu fast að fá aukin starfsréttindi. Í sérkjarasamningi var gerð bókun um að komið yrði upp framhaldsdeild við Sjúkraliðaskólann sem gæfi sjúkraliðum með þriggja ára starfs- reynslu möguleika á eins árs framhaldsmenntun. Þeir hlytu starfsheitið „aðstoðarhjúkrunarfræðingur“ og sjálfstæðan rétt til að starfa. Það kraumaði því fljótt í mörgum hornum hjá mér. Allt leystist þetta farsællega og stéttirnar starfa nú vel saman. Hjúkrunarfélagið var á þessum tíma eitt af aðildarfélögum BSRB. Margir hjúkrunarfræðingar voru virkir innan BSRB og þar fór fram öll aðalkjarasamningsgerð fyrir aðildarfélögin. Árið eftir að ég tók við sem formaður fór fram atkvæðagreiðsla um veru í bandalaginu. Niðurstaðan varð á þann veg að nei við að fara úr BSRB sögðu 54,8 % en já 44,1%. Ég var ekki hlynnt veru okkar þar en átti farsælt og skemmtilegt samstarf við starfsmenn BSRB, á skrifstofunni og í aðildarfélögum. Karlaveldi var ráðandi þarna, fullorðnir karlmenn sem vildu hafa fundi seinnipartinn þegar þeir komu úr vinnu. Slíkt hentaði ekki ungri móður enda þurfti ég oft að taka son minn með á fundina kl. 17.00. Umræðan um veru okkar í BSRB hélt áfram. Fulltrúafundur árið 1990 samþykkti að fram færi atkvæðagreiðsla. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, og ég fórum um allt land til að kynna málið. Skemmtilegir fundir og oft talsverð átök. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð sú að 86% félagsmanna vildu úrsögn úr BSRB. Þar með var Hjúkrunarfélag Íslands utan bandalaga, staða sem ég hef ávallt talið að við ættum að vera í. Viðskilnaðurinn við BSRB var á allan hátt góður, komist var að samkomulagi um öll mál, s.s. hlut félagsins í orlofshúsum, félagsmiðstöð, sjóðum og öðru er tengdist aðildinni. Sameiningarmál félaganna voru mér frá fyrstu stundu hugleikin og mikil orka og tími fór í þau alla mína formannstíð. Samstarf við alla formenn Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga (Fhh) var með miklum ágætum og fagleg samvinna. Við Aðalbjörg Finnbogadóttir segjum að trúlofunin hafi átt sér stað þegar ég afhenti henni, eftir ráðstefnu sem Fhh hélt á fimm ára afmælinu 1983, bókina „Hjúkrunarsögu“ eftir Maríu Pétursdóttur og blómvönd með brúðarslöri „sem tákn þess að félögin muni ganga í eina sæng“. Þegar ég hætti var staðan þannig að bæði félögin höfðu látið fara fram atkvæðagreiðslu um sameininguna og niðurstaðan var yfirgnæfandi fyrir því. Lögð hafði verið fram yfirgripsmikil stefnumótun hvað varðaði stofnun nýs hjúkrunarfélags hjá báðum félögum. Okkar tillögur byggðust á eldri tillögum og stefnu félagsins í margvíslegum málum. Búið var að kjósa í laganefnd sem hafði Trúlofun tveggja félaga FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI Sigþrúður Ingimundardóttir formaður Hjúkrunarfélags Íslands 1982-1987 og 1988-1991 2000 2000 Landspítalinn og Sjúkrahús Reykjavíkur sameinast í Landspítala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.