Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 110
110 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Ég kom upphaflega inn í stjórn Hjúkrunarfélags Íslands sem
meðstjórnandi vorið 1970 en var að mestu óvirk frá hausti
1971 vegna framhaldsnáms og starfa í Skotlandi þar til kom
að formennsku í október 1974.
Þegar María Pétursdóttir, formaður til margra ára, vildi hætta fékkst
enginn til að taka við embættinu. Mikil óánægja og sundrung ólgaði
í félaginu því verulega stór hluti hjúkrunarstéttarinnar taldi sig
svikinn þegar sett var á stofn, í samræmi við stefnu félagsstjórnar HFÍ,
grunnnám í hjúkrun í Háskóla Íslands árið 1973 en ekki komið til móts
við óskir um framhaldsnám í HÍ fyrir hjúkrunarkonur/menn – eins
og talið var að stefnt væri að. En einmitt það töldu félagsmenn brýnast
mála. Nú var grunnnám skyndilega komið á tvö mismunandi skólastig
og engan veginn ljóst hve lengi sú skipan myndi vara. Að hér yrðu tvær
stéttir hjúkrunarkvenna var áhyggjuefni margra. Forysta félagsins hafði
ekki kynnt stofnun háskólanámsins fyrr en rétt um sama leyti og fyrstu
nemarnir hófu nám – og þá eiginlega tilneydd.
Eftir Skotlandsdvölina féllst ég á að taka við af Maríu þegar eftir lifðu
tvö og hálft ár af fjögurra ára kjörtímabili hennar. Ég var sem sagt
aldrei kosin formaður. Ásamt formennskunni var ég í hlutastarfi á
Kleppsspítalanum.
Fagnað af mörgum en öðrum var ekki skemmt
Fyrst framan af fylgdi stjórnin menntastefnu þeirrar fyrri, en snemma
árs 1976 hafði hún söðlað um og tók nú undir og samræmdi sjónarmið
allra þeirra sem vildu aukið og bætt nám í Hjúkrunarskóla Íslands,
grunnnám á einu skólastigi að loknu stúdentsprófi, nám í sérgreinum
hjúkrunar á vegum Nýja hjúkrunarskólans og framhaldsmenntun
í rannsóknum, kennslufræði og stjórnun í HÍ. Þessu var vel fagnað
af miklum fjölda félagsmanna – en helstu kanónum stéttarinnar í
menntunarmálum var ekki skemmt. Og raunar benti fátt til að einhverju
yrði breytt eins og komið var. Endanlegar lyktir þessara mála eru
kunnar, hjúkrunarskólarnir voru lagðir niður 1986 og 1989. Stjórnin
hvatti ásamt fleirum menntamálayfirvöld eindregið til þess að koma
á fót framhaldsnámi í sérgreinum hjúkrunar. Á árinu 1976 hafði Nýi
hjúkrunarskólinn tekið að sér skipulegt nám í nokkrum greinum. Þá
beitti stjórnin sér gegn því að hjúkrunarnám færi á framhaldsskólastig
eins og hugmyndir voru uppi um.
Þó ég hafi síðar horfst í augu við að allt hjúkrunarnám væri best komið í
háskóla er ég á því að það hvernig staðið var að grundvallarbreytingum á
menntun hjúkrunarfræðinga á sínum tíma hlaut að valda uppnámi innan
stéttarinnar.
Skiptar skoðanir um verkfallsrétt hjúkrunarfræðinga
Kjaramálin voru fyrirferðarmikil. HFÍ var í BSRB og aðalmarkmið
samninganna árið 1976 var samningsréttur með verkfallsrétti.
Ekki hugnaðist öllum að hjúkrunarfræðingar fengju verkfallsrétt
en stjórn félagsins stóð fast á þeirri kröfu. Mikil vinna var lögð í að
sannfæra aðra um að félagið myndi valda þessu verkfæri ef til kæmi.
Tímamótasamningar tókust, opinberir starfsmenn fengu verkfallsrétt.
Sérkjarasamningar félagsins enduðu fyrir kjaranefnd en úrskurður
hennar misbauð hjúkrunarfræðingum og kom til hópuppsagna
sem skiptar skoðanir voru um innan félagsins. Skammt var í að
samningsbundnu uppsagnarákvæði yrði beitt og vildi stjórnin láta reyna
á það. Að beiðni næstu félagsstjórnar drógu hjúkrunarfræðingarnir
uppsagnir sínar til baka.
Annað tengt kjaramálum: Stjórninni þótti eðlilegt að
háskólahjúkrunarfræðingar myndu ganga í HFÍ en taldi einboðið að
samið yrði um sömu kjör fyrir þá og hjúkrunarfræðinga úr HSÍ. Allir
væru þeir með sömu starfsréttindi og starfssvið. Sameining þessara
tveggja hópa lukkaðist loks nærri tveim áratugum síðar.
Önnur viðfangsefni stjórnar og nefnda voru auðvitað fjölmörg, af þeim
mætti nefna að trúnaðarmannakerfið var endurreist, velheppnaður
fulltrúafundur SSN var haldinn hér og Tímarit félagsins fagnaði 50 ára
afmæli.
Svo má geta þess, án þess ég eigni okkur heiðurinn, að starfsheitið
hjúkrunarfræðingur var lögfest og fært inn í ársgömul hjúkrunarlög
árið 1975 en áfram heimilt að nota starfsheitin hjúkrunarkona og
hjúkrunarmaður og reglugerð um sérfæðileyfi í hjúkrun tók gildi 1976.
Það er orðið langt síðan ég fylgdist náið með félagsmálum
hjúkrunarfræðinga og óralangt síðan ég áttaði mig á að það klæðir mig
ekki að hafa miklar meiningar um menntunarmál stéttarinnar. En mér
þykir brýnt að fá aftur í fagið hjúkrunarfræðinga sem nú starfa á öðrum
vettvangi og tek undir kröfur um nauðsynlegar úrbætur á starfskjörum,
svo sem styttingu vinnuvikunnar og hækkuð laun. Ég vildi gjarnan sjá
launastigann þannig að mestar launahækkanir kæmu á fyrstu 5-10 árum
í starfi en síðan mætti draga úr aldurstengdum hækkunum. Og fleiri
karlmenn í hjúkrun – takk.
Ég óska Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga allra heilla á
aldarafmælinu.
Verkfallsréttur
náðist
FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI
Ingibjörg Helgadóttir
formaður Hjúkrunarfélags Íslands
1974-1977