Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 49
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 49
þau eiga sér stað heldur um allan heim. Það
eru 70 milljón manns á flótta í heiminum í
dag; flestir þeirra eru að flýja átök. Margir
koma frá stríðshrjáðum svæðum þar sem
heilbrigðisþjónustu er ábótavant vegna
átakanna og sumir hafa í ofanálag verið
lengi á flótta, oft við mjög erfiðar aðstæður
og hafa ekki alltaf aðgengi að viðunandi
heilbrigðisþjónustu. Sumt af þessu fólki
kemur meira að segja alla leið til Íslands og
hefur eða mun í framtíðinni leita sér aðstoðar
innan íslenska heilbrigðiskerfisins, og það
má til sanns vegar færa að hælisleitendur
og flóttamenn séu meðal viðkvæmustu
skjólstæðinga sem við hjúkrunarfræðingar
sinnum í okkar starfi.
Í gegnum tíðina hefur fólk flust á milli landa
í leit að betra lífi. Ástæðurnar fyrir flóttanum
eru margvíslegar þó að langflestir séu að flýja
stríð í heimalandinu. Í dag eru viðhorf til
þessara miklu fólksflutninga að mestu leyti
neikvæð hvort sem um er að ræða flóttamenn,
hælisleitendur, farandverkamenn eða aðra. Það
er hins vegar mikilvægt að gera sér grein fyrir
því að fólk á flótta hefur sömu réttindi og allir
aðrir, hver svo sem ástæðan fyrir flóttanum
er. Þetta ætti að vera útgangspunktur okkar
hjúkrunarfræðinga þegar við tökumst á við
þann mikla vanda að sinna skjólstæðingum úr
hópi þeirra sem eru á flótta.
Við sem hjúkrunarfræðingar höfum
rödd, notum hana
Á þessu 100 ára afmælisári vil ég hvetja
íslenska hjúkrunarfræðinga til umhugsunar um
hvað við getum lagt af mörkum svo kollegar
okkar á átakasvæðum geti sinnt starfi sínu
í friði og að sjúklingar þeirra hafi óheftan
aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu. Við
getum sýnt kollegum okkar, sem lifa og starfa
við erfiðar aðstæður í stríðshrjáðum löndum,
samstöðu með því að hvetja þá sem einhverju
ráða til að draga þá til ábyrgðar sem gera árásir
á heilbrigðisþjónustu.
Við getum gefið fé til hjálparstarfa. Við getum
unnið á vettvangi.
Við getum skrifað bréf til íslenskra stjórnvalda
og hvatt þau til að auka framlög sín til
hjálparstarfs og þróunarsamvinnu.
Öll stríð verða einungis leyst af stjórnmála-
mönnum; hvetjum þá sem ráða til að leita
lausna.
Við sem hjúkrunarfræðingar höfum rödd,
notum hana.
„ÖLL STRÍÐ VERÐA EINUNGIS LEYST AF
STJÓRNMÁLAMÖNNUM; HVETJUM ÞÁ SEM
RÁÐA TIL AÐ LEITA LAUSNA“
Áslaug að störfum á gjörgæsludeild Landspítala.