Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 12
12 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Það var í tíð Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra sem ríkisstjórnin
ákvað að bjóða út byggingu og rekstur
hjúkrunarheimilis undir vinnuheitinu
„Hjúkrunarheimili í Reykjavík –
Einkaframkvæmd.“ Var þetta í fyrsta
sinn sem ríkið óskaði eftir aðilum
til að reka samfélagsverkefni innan
heilbrigðisþjónustu hér á landi
af þessari stærðargráðu. Erlendis
var það vel þekkt og gekk undir
skammstöfuninni PPI eða „Private
Public Initiative.“
Einstakt tækifæri
Öldungur hf., sem var í eigu Securitas og
ÍAV, var stofnað árið 2000 til að bjóða í
verkefnið og var ég fengin sem ráðgjafi
til að vinna að tilboðinu. Mitt hlutverk
var að setja fram hugmyndafræði og
stefnu hjúkrunarþjónustunnar, koma að
hugmyndavinnu í samráði við arkitekta
um hönnun byggingarinnar sem best gæti
uppfyllt þær þarfir og kröfur sem gerðar
voru til starfseminnar. Þá var mér falið að
setja fram mönnunaráætlun sem undirstöðu
rekstraráætlunar og gera áætlun um húsbúnað
og hjálpartæki, notkun velferðarlausna
og upplýsingatækni svo fátt eitt sé nefnt.
Eftir á að hyggja var verkefnið einstakt
tækifæri til að fá að setja fram draumsýn um
fyrirmyndarhjúkrunarheimilið. Hugmyndin
sem tilboðið byggðist á vann samkeppnina og
var gerður samningur við Öldung hf. um að
leggja til og reka hjúkrunarheimili að Sóltúni 2
í Reykjavík og ég var ráðin framkvæmdastjóri
Öldungs og hjúkrunarforstjóri hjúkrunar-
heimilisins.
Einstaklingsmiðuð hjúkrun
og velferðartækni
Það búa 92 íbúar í Sóltúni og koma þeir að
langstærstum hluta frá Landspítala. Þeir
eru fjölveikir, með mikið færnistap og hafa
því orðið fyrir miklum missi. Þeir þurfa
mikla hjúkrun og aðra meðferð. Lykilstefna
heimilisins er að stuðla að vellíðan þeirra þrátt
fyrir sjúkdómsbyrði og fötlun og skapa þeim
sem mest lífsgæði í sinni stöðu. Til þess að svo
megi verða leggur Sóltún áherslu á að laða til
starfa hæft og umhyggjusamt starfsfólk. Það
var metnaðarfullt starfsfólk sem réðst til starfa
og vann að undirbúningi að opnun heimilisins.
Lögð er áhersla á að hjúkrunarfræðingar
og sjúkraliðar hafi góða menntun og eru
margir þeirra með framhaldsnám. Nokkrir
hjúkrunarfræðingar eru með meistarapróf
og sérfræðileyfi í hjúkrun. Á þeim 17 árum
sem Sóltún hefur starfað hefur starfsfólk
verið hvatt til náms og hafa margir menntað
sig til starfa í heilbrigðisgeiranum. Til dæmis
hafa margir umönnunarstarfsmenn lært til
félagsliða og síðan áfram til sjúkraliða og loks
til hjúkrunarfæðings. Starfsmannavelta hefur
ávallt verið lítil, þrátt fyrir að skortur hafi
verið á heilbrigðisstarfsfólki í samfélaginu, og
starfsánægjukannanir komið vel út.
Við opnun heimilisins 2002 var aðbúnaður
íbúa og vinnuumhverfi starfsfólks skipulagt
með þeim hætti sem best var hér á landi og
er enn. Húsið er svokallað snjallt hús þar sem
velferðartækni er innbyggð og upplýsingatækni
notuð til hins ítrasta. Hjúkrunarvöktunarkerfið
Vökull (Vigil) var fengið frá Norður-
Ameríku en það er fullkomið kerfi hannað af
verkfræðingum og hjúkrunarfræðingum til
að sinna þörfum íbúa á hjúkrunarheimilum
sem ekki geta notað hefðbundin bjöllukerfi
Einkarekstur í
hjúkrunarþjónustu -
Sóltúnsþorpið
Anna Birna Jensdóttir
hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Öldungs hf.
og framkvæmdastjóri hjúkrunar í Sóltúni
„LYKILSTEFNA HEIMILISINS
ER AÐ STUÐLA AÐ VELLÍÐAN
ÞEIRRA ÞRÁTT FYRIR
SJÚKDÓMSBYRÐI OG FÖTLUN
OG SKAPA ÞEIM SEM MEST
LÍFSGÆÐI Í SINNI STÖÐU“