Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 58
58 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Starfið er stórkostlegt
Pálína myndi vilja sjá fleiri íslenska
hjúkrunarfræðinga í vinnu fyrir alþjóðaráð
Rauða krossins í framtíðinni. Hún segir að þeir
passi vel í þetta starf, kalli ekki allt ömmu sína
og aðlagist venjulega vel. Enn fremur telur hún
að reynslan sem sendifulltrúar afla sér skili sér
til baka inn á íslenskar heilbrigðisstofnanir.
„Mér fannst alltaf gott að finna, þegar ég
var að koma og fara á bráðamóttökunni,
kannski fyrstu 10-15 árin sem ég var í þessu,
hvað það var vel metið af stjórn spítalans,
hjúkrunarforstjóra, samstarfsfólki og
yfirmönnum. Sú reynsla, sem maður fékk í
útlöndum, reyndist mjög vel þegar eitthvað
mikið var að gerast, náttúruhamfarir eða
stórslys. Ég fann hvernig það hjálpaði í starfinu
auk þess að gera mig þolinmóðari, eins og
ég vék að áður. Það hjálpar að sjá annað og
vera í öðru umhverfi. Maður metur betur
það sem maður hefur og stundum lærir
maður líka að meta fólk betur. Þegar ég kem
heim vonast ég til að geta starfað eitthvað
með Rauða krossinum heima og talað við
hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga eða eru
forvitnir að vita hvernig starfið er og hvernig er
best að undirbúa sig.
Hjúkrunarfræðingar og menntunin sem
þeir hafa nýtist vel í mörgum störfum. Það
kemur að hluta til úr náminu en að hluta til
úr vinnu á spítölum eða heilsugæslu þar sem
unnið er í teymum. Það er ekki bara þessi
tæknilega vinna sem við gerum vel heldur
reynist menntunin líka vel í stjórnun. Það eru
alger forréttindi að hafa unnið við þetta bæði
heima og að heiman. Stundum hefur maður
þurft að sætta sig við lágu launin en ef maður
fær eitthvað út úr starfinu, eins og ég hef alltaf
gert, þá er þetta bara stórkostlegt. En auðvitað
eiga hjúkrunarfræðingar samt að fá borgað það
sem þeim ber. Launin hafa verið til skammar á
undanförnum árum og það er ekkert nýtt þar.
En það koma betri tímar inni á milli.“
Skemmtilegast að sjá árangur
Að lokum er áhugavert að vita hvað hjúkrunar-
fræðingi með jafnvíðtæka reynslu af stjórnun
og starfi á vettvangi bráðaþjónustu og
hjálparstarfs eins og Pálína, finnst skemmti-
legast við starfið.
„Ja, líklega væri ég nú ekki enn þá í þessu
ef ekki væri búið að vera skemmtilegt.
Skemmtilegast er náttúrlega að sjá árangur af
vinnunni sinni hvað sem maður er að gera og
hvar sem maður er. Maður vill sjá árangur og
keppast við sjálfan sig og verða betri og læra
meira. Það er líka búið að vera skemmtilegt að
kynnast öllu þessu fólki og annarri menningu
og vera velkominn á ótrúlegustu svæði. Og
síðan eru það alþjóðlegu kollegarnir sem
maður er að vinna með sem koma frá öllum
heimshornum. Að taka á móti einhverjum sem
kemur mjög illa haldinn, veita meðhöndlun
við þær einföldu aðstæður sem við vinnum við
og horfa svo á eftir þessum einstaklingi ganga
brosandi út í lífið á ný gefur manni mikið. Líka
þegar maður er að vinna með stjórnvöldum í
verkefnum sem byggja upp þjónustu og sjá svo
þjónustuna verða betri fyrir borgarana. Það
getur verið krefjandi og tekið á þolinmæðina
að reyna að gera hlutina sem best, en það er
mjög gefandi.“
2001 — Á Austur-Tímor ásamt samstarfsmanni.
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
fastus.is
SOFÐU RÓTT
Snúningslök fyrir betri nætursvefn
Fastus býður upp á margar gerðir af lökum sem auðvelda snúning og hagræðingu í rúmi.
Hafðu samband í síma 580 3900 og pantaðu tíma í ráðgjöf hjá sérhæfðu starfsfólki okkar.