Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 33
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 33
Smiðjuvellir 32 - Sími 431 5090 - www.apvest.is
Til hamingju
Þökkum farsælt og gott samstarf á
liðnum árum sem og komandi.
hjúkrunarfræðingar
með 100 ára afmæli félagsins.
1927
Kristneshæli vígt SSN-fundur á Íslandi um Landspítalann
tekið þátt í brautryðjendastarfi hér á landi í
fjarheilbrigðisþjónustu sem hefur að mörgu
leyti gjörbylt aðgengi að sérfræðiaðstoð. Íbúar
hreppsins komu að þessu verkefni með afar
virkum hætti og stóðu meðal annars fyrir
fjársöfnun til nauðsynlegra tækjakaupa.
Það er staðreynd að á litlum stöðum á
landsbyggðinni eru úrræðin takmarkaðri
en á stærri stöðum. Það væri ákjósanlegra
ef fleira heilbrigðismenntað fólk gæti
verið í viðbragðsstöðu en í fámenni er það
hægara sagt en gert. Við búum hins vegar
vel að góðum og fórnfúsum sjálfboðaliðum
annarra viðbragðsaðila, s.s. í björgunarsveit
og slökkviðliði, sem eru hoknir af reynslu
og eru gríðarlega mikilvæg aðstoð. Það
er einnig mjög gott samstarf við lögreglu
og heilbrigðisstarfsfólk í næsta nágrenni,
sérstaklega heilsugæsluna í Vík í Mýrdal. Með
slíkan mannauð stendur maður ekki einn.
Það hefur án efa verið styrkur minn sem
fagmanneskju að hafa fjölþætta menntun.
Til að geta staðið vaktina í „feltinu“ þarf að
hafa yfirgripsmikla þekkingu og geta beitt
henni fljótt, undir miklu álagi, á öruggan
og yfirvegaðan hátt og taka því sem að
höndum ber. Samvinna er lykill að árangri en
grundvöllur samvinnu og árangurs er traust.
Með því að heilbrigðisstéttir leggi saman er
þörfum skjólstæðinga sinnt, skilvirkni eykst og
síðast en ekki síst, sparnaðarkröfur uppfylltar.
Fræðileg þekking og reynsla er lykilatriði að
árangursríku starfi.
Tækifæri felast í teymisvinnu
Það má velta því fyrir sér hvort viðurkenning
á sérhæfingu hjúkrunarfræðinga gæti orðið
til þess að hækka þjónustustig og öryggi
í heilbrigðisþjónustu hér á landi. Hefðin
gerir það að verkum að skjólstæðingar
þekkja hlutverk læknis betur þegar kemur
að greiningu og ákvörðun um meðferð en
eru einfaldlega ekki vanir því að því sé sinnt
af hjúkrunarfræðingum. Ríkisendurskoðun
hefur gefið tóninn til ráðuneytis um
ýmsar breytingar varðandi þjónustu
heilsugæslustöðva á landsbyggðinni, m.a.
með aukinni áherslu á teymisvinnu innan
heilsugæslunnar. Með slíkum aðgerðum ættu
skjólstæðingar heilsugæslunnar í flestum
tilvikum greiðari aðgang að fagaðila til að
fá úrlausn sinna mála auk þess sem nýta má
starfskrafta heilbrigðisstarfsfólks á markvissari
hátt.
Ég vil að lokum hvetja hjúkrunarfræðinga
um allt land til að taka opnum örmum
þeim tækifærum sem felast í teymisvinnu
heilbrigðisstarfsfólks þar sem þekking og
reynsla hvers og eins samtvinnast líkt og vel
ofinn þráður öllum til hagsbóta.