Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 16
16 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Fræðsla til sjúklinga, aðstandenda og
annarra notenda heilbrigðisþjónustu
er sjálfsagður hluti hjúkrunarstarfsins
og stundum svo óaðgreinanlegur og
samtvinnaður öðrum viðfangsefnum
að hann nýtur ekki þeirrar athygli sem
hann á skilið. Á hundrað ára afmæli
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
er vert að staldra við, líta til baka
og fram á veginn og íhuga hlutverk
hjúkrunarfræðinga í fræðslu og þróun
hennar, þar með talið nýsköpun.
Tvö sjónarhorn
Fræðslu má líta á frá tveimur sjónarhornum,
annars vegar sem hluta af allri hjúkrunar-
meðferð og hins vegar sem meðferð í sjálfu
sér. Í fyrra tilfellinu er fræðslan veitt þegar
svokölluð kennslutækifæri (e. teachable
moments) gefast, t.d. þegar lyf eru gefin, búið
er um sár eða barn slasast. Við þessar aðstæður
er fólk yfirleitt mjög móttækilegt fyrir fræðslu.
Ef við lítum hins vegar á fræðslu sem meðferð í
sjálfu sér er áhugavert að horfa til sögunnar.
Saga sjúklingafræðslu sem fræðigreinar
spannar ekki lengra aftur en til 7. áratugar
síðustu aldar. Fram að því réð læknisfræðilegt
módel í heilbrigðisþjónustu þar sem
forræðishyggja var ráðandi og hlutverk
sjúklingsins var að vera meðferðarheldinn.
Róttækar breytingar í samfélaginu bæði
vestanhafs og í Evrópu fóru síðan að hafa
áhrif, farið var að setja spurningarmerki við
forræðishyggjuna, um markmið meðferðar,
hugtakið heilsu, heilbrigði og fleira. Hugtakið
valdefling kom fram og réttur sjúklinga
til fræðslu, svo þeir geti tekið ákvarðanir
varðandi eigin heilsu, fór að fá hljómgrunn
Meðfram endurskoðun á tilgangi fræðslu fóru
heilbrigðisstarfsmenn að líta í eigin barm,
og hæfni í samskiptum við sjúklinga komst í
brennidepil. Fagið sjúklingafræðsla varð til.
Stutt saga
Erlendis var farið að gefa út skriflegt fræðslu-
efni á heilbrigðisstofnunum á 7. áratugnum.
Koma myndbanda og síðar geisladiska á 8.
áratugnum varð til þess að hægt var að búa til
myndrænt fræðsluefni. Stærsta byltingin varð
þó með tilkomu tölva og síðar internetsins í
kringum 1990.
Í þessu sambandi er vert að nefna nokkur
dæmi um framsýni hjúkrunarfræðinga
á Íslandi. Segja má að sjúklingafræðsla
hafi fengið byr undir báða vængi í lok 9.
áratugarins. Með tilkomu fræðslustjóra og
svokallaðra K-staða hjúkrunarfræðinga, sem
Hjúkrunarfræðingar
sem fræðarar
- horft til framtíðar
Dr. Brynja Ingadóttir
sérfræðingur í hjúkrun og lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ
„HELSTU VIÐFANGSEFNI Í SJÚKLINGAFRÆÐSLU
FRAMTÍÐARINNAR ERU AÐ ÞJÁLFA BÆÐI
HEILBRIGÐISSTARFSFÓLK OG SJÚKLINGA OG
AÐ BEITA RAFRÆNUM LAUSNUM (E-HEALTH) Í
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNI“