Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 87
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 87
„MARGA BÝR YFIR MIKILLI ÞEKKINGU EN ER
HÓGVÆR Í FRAMKOMU. HÚN REYNDI EKKI AÐ
GANGA Í AUGUN Á OKKUR NEMENDUM AÐ NEINU
LEYTI. HÚN ER HREIN OG BEIN.“
á suma af þessum þáttum í myndbandinu. Þá
segir Marga rólega: „Ég á ekki auðvelt með að
sjá þetta en þú Arna getur það auðveldlega,
það er munur á styrk okkar. Þú hefur þetta
klíníska innsæi og reynslu. Þú ert opin fyrir
„observation“ á hegðun og samskiptum.“
Þannig undirstrikaði hún styrk minn og hvatti
mig til að nota hann. Hún hefði getað sleppt
því að segja þetta en þarna jókst sjálfstraust
mitt talsvert. Marga hefur þetta öryggi og
hógværð án þess að vera meðvirk eða mikil
jámanneskja. Hún virðir bæði styrk sinn og
annarra.
Vitur, róleg og rökvís
Við tölum alltaf mikið saman og alltaf kemur
hún mér til að sjá nýja og breiðari fleti á
viðfangefninu. Marga vitur, róleg og rökvís.
Ég hvatvísari og hrárri, óþroskaðri. Ég lærði
snemma að hennar ráð eru góð. Hún er svo
víðsýn. Í samstarfi okkar benti Marga mér
rólega á ýmsa mikilvæga og nauðsynlega hluti
sem hjálpuðu manni að vaxa sem fagmaður.
Eitt sinn stormaði ég framlág og pirruð
inn á skrifstofuna hennar og kvartaði yfir
að ég þyrfti víst að taka enn einn kúrsinn í
„hugmyndafræði“. Ég sagðist engan áhuga hafa
á að eyða tíma í þetta algjörlega ónauðsynlega
efni „hugmyndafræði“. Hún svarar rólega: „En
Arna, þú ert alltaf að tala um hugmyndafræði.“
Og ég hugsa: „Já, einmitt, eða hitt þá heldur.“
Svo leiddi hún mig rólega í sannleikann um
að ég hefði mótaða hugmyndafræði. Að mín
hugmyndafræði væri eins og margra annarra
byggð á bæði fræðimennsku og því sem
reynslan hefur kennt mér.
Ég ber djúpa og mikla virðingu fyrir
hæfileikum Mörgu. Fyrir mig hefur verið
ómetanlegt að vaxa við hlið hennar og
njóta samverunnar. Við, með okkar ólíku
sjónarhorn, höfum unnið saman og speglað
okkur í viðhorfum og þekkingu hvor annarrar,
allt til að fá sem besta heildarmynd. Það er
í raun Mörgu að þakka að mitt sérsvið er
svefnvandi barna. Þó það líði lengra á milli þess
að við hittumst en áður, þá tölum við enn um
sömu hlutina: börn, foreldra, geðheilsu barna
og foreldra í víðu samhengi.
Betri fræðilega móður hefði ég ekki getað
fengið. Takk, Marga.
AFMÆLISKVEÐJA TIL
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
ÍSAGA EHF
KIRKJUHVOLL HJÚKRUNAR- OG
DVALARHEIMILI
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ
LAUGARDALSLAUG
LJÓSMÆÐRAFÉLAGIÐ
LUNDUR HJÚKRUNARHEIMILI
MJÓLKURSAMSALAN
MÚLABÆR DAGÞJÁLFUN
ALDRAÐRA OG ÖRYRKJA
MÖRK HJÚKRUNARHEIMILI
NAUST DVALARHEIMILI
RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS
REYKJALUNDUR
REYNIR BAKARI
SELJAHLÍÐ HEIMILI ALDRAÐRA
SELTJARNARNESBÆR
SIGURJÓNSBAKARÍ
SILVA GISTING
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS
SKÓGARBÆR
SÓLHEIMAR
SSF
STARFSGREINASAMBAND ÍSLANDS
Vigdís Magnúsdóttir verður forstjóri Landspítalans
Dr. Marga Thome á skrifstofunni sinni í Eirbergi.